Fréttablaðið - 24.04.2019, Síða 44
Helga Lilja Magn-
ússdóttir fata-
hönnuður hefur
undanfarin ár staðið
fyrir koddaslag við
Reykjavíkurhöfn á
sjómannadaginn,
fyrsta sunnudag
í júní. Hér á árum
áður var svipuð
keppni haldin við
höfnina þar sem sjó-
menn kepptust um
að sýna hreysti sína.
Keppnin hafði legið
niðri í tæpa tvo ára-
tugi og fannst Helgu
Lilju kjörið að endur-
vekja þessa hefð.
Fyrsta keppnin í nýrri mynd var haldin árið 2017 þar sem sex þrekmenni börðust á plankanum við Vesturbugt,“ útskýrir Helga.
Nú í ár ákvað Helga að opna fyrir
umsóknir frá almenningi í fyrsta
sinn en hún stofnaði fatamerkið
Bið að heilsa niðrí Slipp ásamt tón
listarmanninum Stephan Stephan
sen árið 2013. Sjálf hafði hún áður
hannað undir merkinu Helicopter.
,,Mér var boðið að halda sam
sýningu árið 2013 á HönnunarMars
þar sem yfirskriftin var samvinna
hönnuðar og tónlistarmanns. Við
vorum par á þessum tíma svo það lá
beinast við að við ynnum eitthvað
saman. Okkur langaði að fara óhefð
bundnar leiðir og stofnuðum fata
merki sem fékk nafnið Bið að heilsa
niðrí Slipp. Nafnið kemur úr lagi
eftir Stephan og um leið og nafnið
var komið fannst okkur gefa auga
leið að einbeita okkur að útvistar
fatnaði.“ segir Helga um tilkomu
samstarfsins en nafn fatamerkisins
er oftar en ekki stytt í BAHNS.
Þau ákváðu í sameiningu að finna
frumlega leið til að kynna merkið.
„Okkur Stephan langaði að gera
eitthvað skemmtilegt og öðruvísi
til að vekja athygi á merkinu okkar.
Fatamerkið samanstendur mest af
merinoullarfatnaði og sundbolum
svo þetta átti vel við. Þetta er í raun
nokkurs konar tískusýning, bara í
öðru og skemmtilegra formi,“ segir
Helga.
Þá klæðast keppendur sund
fatnaði frá merki þeirra Helgu og
Stephans þegar barist e.
,,Fyrsta árið voru bara karlmenn
og í fyrra var komið að konunum.
Þar bar bardagakonan Dóra Har
aldsdóttir sigur úr býtum. Núna
tókum við þá ákvörðun að leyfa
hverjum sem hefur áhuga að sækja
um en auðvitað þarf einstaklingur
inn að vera hraustur enda getur
þetta reynt á.“
Svipaði slagir eru enn við lýði í
nokkrum bæjarfélögum og bætir
Helga við að sambærileg átök fari
fram niðri við höfn á sjómannadag
inn í Grindavík svo dæmi sé tekið.
,,Þetta er bilað gaman, maður fær
algjört adrenalínkast, svo ég mæli
hiklaust með að taka þátt,“ segir
Helga að lokum og skorar á sem
flesta að gera sér ferð niður að höfn á
sjómannadaginn til að taka þátt eða
fylgjast með koddaslagnum.
Opið er fyrir umsóknir út apríl
á heimasíðu merkisins, bahns.org.
steingerdur@frettabladid.is
Koddaslagur við Reykjavíkurhöfn
Sigurvegari og hluti keppenda síðasta árs með farandbikarinn sem gerður var af Irmu. Allir geta sótt um að taka þátt en auðvitað þarf einstaklingurinn að vera hraustur. MYND/MARÍA GUÐRÚN
Helga Lilja segir að keppendur þurfi að vera hraustir. MYND/MARÍA GUÐRÚN
ÞETTA ER BILAÐ
GAMAN, MAÐUR FÆR
ALGJÖRT ADRENALÍNKAST, SVO
ÉG MÆLI HIKLAUST MEÐ AÐ
TAKA ÞÁTT
Helgu Lilju fannst kjörið að endurvekja þessa hefð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
9
-6
A
9
8
2
2
D
9
-6
9
5
C
2
2
D
9
-6
8
2
0
2
2
D
9
-6
6
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K