Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019FRÉTTIR Vatnshitablásarar hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10, græn gata | 200 Kópavogi TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Framundan eru tímamót hjá Öskju því um miðjan mánuðinn opnar fyrirtækið nýtt sölu- og þjónustuhús fyrir Kia á Krók- hálsi. Hljóðið er gott í Jóni Trausta forstjóra, þó það væri ef- laust enn betra ef minna flökt væri á gengi krónunnar. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Orkuskiptin hafa mikil áhrif á bílamarkaðinn en okkar birgjar, KIA og Mercedes-Benz, eru sem betur fer vel í stakk búnir að tak- ast á við þau tímamót. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Fór á kynningarfund Samtaka atvinnulífsins í Hörpu þar sem Halldór Benjamín og Ásdís Krist- jánsdóttir voru með mjög góða kynningu á efnahagsstöðu lands- ins. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Í MBA-náminu var ég með frá- bæran prófessor í markaðsmálum. Hann kynnti mér sína sýn á P-in í markaðsmálum. Þau eru fimm og standa fyrir people, people, people, people og people. Hver myndi leika þig í kvik- mynd um líf þitt og afrek? Fyrri partinn væri það örugg- lega Tom Cruise, en eftir fertugt tæki Russel Crowe við – ætli það væri svo ekki Harrison Ford sem sækti um framhaldsmyndina. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég hlusta á fólkið í kringum mig og kynni mér það sem er að gerast í minni grein. Les blöð eins og Automotive News og sæki mér þjálfun til framleiðenda Öskju sem eru fremstir á sínu sviði. Hugsarðu vel um líkamann? Daglegur göngutúr með hundana telur auðvitað en svo hef ég reynt að sækja spinning-tíma eins og ég get. Þessi spurning er mér samt hvatning til að gera betur. Nýársloforðið klárt hér með. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ég held ég myndi vilja verða fararstjóri, keyra um með erlenda ferðamenn og segja þeim frá Ís- landi. Bara keyra um á 10-15 manna rútu, að sjálfsögðu Merce- des-Benz. Fara í góðar dagsferðir um Snæfellsnes eða Borgarfjörð- inn. Einfalt og örugglega gefandi starf. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég myndi fara í málaskóla og ná þýskunni betur. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Gengisbreytingar á Íslandi eru alltof miklar, og það er endalaus óvissa sem kemur upp með reglu- bundnum hætti. Líklega af því við erum svo lítið hagkerfi en gerum allt sjálf. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Mér gengur alltaf best þegar ég næ jafnvægi á milli vinnu, hreyfingar og fjölskyldu. Ég reyni að ferðast með eiginkonu minni þegar tækifæri gefst til og sæki mikið til hennar. Þá legg ég upp úr að vera í góðu sambandi við viðskiptavini og birgja og horfa á hvað aðrir eru að gera. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Ég myndi klára vegamálin á fimm árum. Setja vegtolla á og rukka ferðamenn fyrir notkun á vegum til jafns við okkur hin – þeir keyra enda á við hálfa þjóð- ina að minnsta kosti. Eftir fimm ár verðum við hvort sem er öll á rafbílum og þurfum ekki elds- neyti. Vil frekar borga sömu upp- hæð í tolla, fá betri vegi og laga umferðaröryggi um leið. SVIPMYND Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju Til ama að reglulega skapist óvissuástand Jón Trausti segir brýnt að koma vegakerfinu í lag og rukka ferðamenn til jafns við innfædda fyrir slit á vegum. AUKAHLUTURINN Leitun er að stærra nafni í heimi iðn- og vöruhönnunar en Dieter Rams. Þessi 86 ára gamli Þjóðverji setti mark sitt rækilega á fagið og mótaði hönnuarmál sem margir reyna að apa eftir enn þann dag í dag. Má t.d. sjá greinileg áhrif Rams í verkum Jony Ive, aðalhönnuðar Apple. Fyrir skemmstu var ný Rams-vara að bætast við: handtaska sem hann hannaði fyrir lið- lega hálfri öld. Rams segir sjálfur að taskan hafi orðið til fyrir hálfgerða slysni, þegar hann var að vinna að verkefni fyrir Braun. Honum hugkvæmdist að hanna tösku fyrir konu sína Ingeborg en aldrei varð af því að fjölda- framleiða gripinn – eða ekki þar til hann hitti eigendur tískufyrirtæk- isins Tsatsas. Varð úr að dusta rykið af gömlum skissum og útkoman taska sem hefur fengið nafnið 931. Hand- bragð Rams leynir sér ekki, enda handtaskan stílhrein, kassalaga, og í senn glæsileg og lágstemmd. Taskan kostar 900 evrur hjá www.tsatsas- .com og fæst í svörtu eða ljósgráu leðri. ai@mbl.is Handtaska eftir Dieter Rams lítur dagsins ljós NÁM: Stúdent frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi 1990; rekstrar- fræðingur 1998 og viðskiptafræðingur 2006, hvort tveggja frá Bif- röst og MBA frá Háskólanum í Reykjavík 2011. STÖRF: Fararstjóri í Portúgal 1994-1998; sölustjóri, þjónustustjóri og síðar markaðsstjóri hjá Heklu á árunum 1998-2010; fram- kvæmdastjóri Öskju frá árinu 2010 og formaður Bílgreina- sambandsins frá árinu 2013. ÁHUGAMÁL: Allur minn frítími fer í áhugamál fjölskyldunnar sem eru íþróttir, útivera, hundarnir okkar tveir og ferðalög. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Eddu Björk Kristjánsdóttir, mann- auðsstjóra Húsasmiðjunnar, og við eigum þrjú börn: Dilju Björk, Arnar Inga og Hildi Karitas. Börnin eru 22, 21 og 12 ára gömul. HIN HLIÐIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.