Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 1
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
Sérfræðingur í eignastýringu
Lífeyrissjóðurinn hefur þjónað sjóðfélögum
sínum frá 1956. Starfsmenn vinna í þágu
sjóðfélaga við uppbyggingu lífeyrisréttinda
og ávöxtun eigna.
Eignasafn nam ríflega 700 milljörðum króna
um síðustu áramót og fer ört vaxandi.
Árlega greiða um 52 þúsund sjóðfélagar
iðgjöld til sjóðsins og um 18 þúsund njóta
mánaðarlegra lífeyrisgreiðslna.
Markmið sjóðsins er að vera áhugaverður
vinnustaður, gæta að jafnvægi milli vinnu og
einkalífs og bjóða gott starfsumhverfi fyrir
samhentan hóp til að vinna að krefjandi
verkefnum.
Nánari upplýsingar um sjóðinn eru á vefnum
www.live.is
Kröfur:
! "
#!
"
! $
%
&% % "
'
Helstu verkefni:
(
%
)
"
* *
%+
'
%+
' "
&
"
&
"%
"
Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir að ráða öflugan einstakling til starfa í
eignastýringarteymi sjóðsins. Leitað er að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi með
reynslu af fjármálamarkaði og mikinn áhuga á eignastýringu. Næsti yfirmaður sérfræðings
er forstöðumaður eignastýringar.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf við ört vaxandi eignasafn sjóðsins.
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og
umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf og þarf umsækjandi að
geta sýnt fram á að persónuleg fjármál og önnur fjárhagsleg umsýsla sé flekklaus.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í tímabundin hlutastörf við átaksverkefni á sviði aðgengismála á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Samanlagt er gert ráð fyrir 100% starfshlutfalli sem skiptist á milli starfsmanna eftir samkomulagi. Átaksverkefnið mun standa yfir í sex mánuði.
Aðgengi um almannarými og byggingar hefur batnað til muna undanfarin ár. Þó þarf að gera miklu betur. ÖBÍ hyggst taka út aðgengi víða í samfélaginu og
leggja til úrbætur þar sem við á. Markmiðið er að vekja athygli stjórnvalda, stjórnsýslu og almennings á málaflokknum um mikilvægi aðgengis fyrir alla.
Úttektir verða gerðar á völdum byggingum ætluðum almenningi. Unnið er eftir hugmyndafræði algildrar hönnunar með notkun gátlista. Starfsmenn fá fræðslu
og þjálfun áður en úttektir hefjast. Unnið er í nánu samstarfi við skrifstofu ÖBÍ, málefnahóp ÖBÍ um aðgengismál og starfsmann hans. Gert er ráð fyrir að annar
starfsmaðurinn haldi utan um verkefnið, skrifi skýrslur og sjái um skjalavörslu en þeir fari saman í úttektir, miðla upplýsingum o.fl. Önnur verkefni taka mið af
menntun, reynslu og áhuga.
Aðgengisátak ÖBÍ
Verkefni
• Undirbúningur, skipulagning og utanumhald
• Úttektir á aðgengi
• Skráning á niðurstöðum
• Skýrslugerð
• Miðlun niðurstaðna og eftirfylgni
• Ljósmyndun, upptökur og miðlun efnis
Hæfniskröfur
• Framhaldsskólamenntun æskileg og/eða
menntun á háskólastigi
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og ritfærni
• Tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum
æskileg
• Reynsla af aðgengishindrunum
• Góð samskipti og samstarfshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir:
Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Fatlað fólk/fólk með skerðingar er sérstaklega hvatt
til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) er heildarsamtök fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra.
Aðildarfélög bandalagsins eru 43 talsins. Hlutverk ÖBÍ er að vinna að samfélagslegu réttlæti, bættum lífsgæðum og kjörum auk þess
að vera stefnumótandi í réttindamálum hagsmunahópsins. Öflun og miðlun þekkingar er mikilvægur þáttur í starfseminni. Þá tekur
ÖBÍ þátt í erlendu samstarfi. Nánari upplýsingar er að finna á obi.is.