Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Aðstoðarleikskólastjóri og leikskólakennarar Aðstoðarleikskólastjóri /Sérkennslustjóri Leikskólinn Brimver/Æskukot auglýsir eftir leikskólakennara í stöðu aðstoðarleikskólastjóra/ sérkennslustjóra frá og með 1. mars 2019. Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist í 30% stöðu aðstoðarleikskólastjóra og 70% stöðu sérkennslustjóra. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær um að taka að sér stjórnunarlega ábyrgð, þátttöku í stjórnunarteymi og umsjón með sérkennslu. Menntun og hæfniskröfur: • Leikskólakennararéttindi • Reynsla og/eða menntun í sérkennslu og stjórnun æskileg • Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum • Færni í mannlegum samskiptum • Jákvæðni, frumkvæði, áhugasemi og góður samstarfsvilji • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Góð íslenskukunnátta • Færni til að tjá sig í ræðu og riti Meginverkefni: • Staðgengill leikskólastjóra • Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á rekstri leikskólans • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu Árborgar • Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum og veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu • Veita foreldrum/forráðamönnum barna stuðning, fræðslu og ráðgjöf • Þátttaka í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og öðru samstarfsfólki Leikskólakennarar Brimver/Æskukot auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% starfshlutfall frá og með 1. mars 2018. Menntun og hæfniskröfur: • Leikskólakennararéttindi • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum • Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji • Góð færni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Góð íslensku kunnátta • Færni til að tjá sig í ræðu og riti Helstu verkefni og ábyrgð: • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu Árborgar • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum Störfin henta jafnt körlum sem konum, launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2019. Frekari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Birna Birgisdóttir í netfangið sigridurb@arborg.is. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið sigridurb@arborg.is. Verkefnastjóri íbúatengsla kopavogur.is P ip a r\TB W A \ SÍA Helstu verkefni: • Ber ábyrgð á stefnumörkun á sviði þátttökulýðræðis og innleiðingu verkefna á því sviði. • Skipuleggur íbúafundi eftir atvikum í samráði við fagsvið, deildir og stofnanir. • Stýrir verkefninu „Okkar Kópavogur“ sem snýr að þátttöku íbúa bæjarins við ráðstöfun fjármagns til framkvæmda. • Stýrir framkvæmd íbúakosninga. • Ber ábyrgð á innleiðingu Heimsmarkmiðs Sameinuðu þjóðanna nr. 16.7: Teknar verði ákvarðanir á öllum sviðum þar sem brugðist er við aðstæðum og víðtæk þátttaka tryggð. • Heldur utan um ábendingarkerfi bæjarins í samráði við gæðastjóra. Laust er til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra íbúatengsla. Hlutverk verkefnastjóra er að sinna tengslum bæjarins við íbúa og halda utan um öll samskipti, önnur en þau sem falla undir almannatengsl. Horft er til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Verkefnastjóri heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019. Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Páll Magnússon, pallm@kopavogur.is, s. 441 0000. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags innan BHM. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar kopavogur.is. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem opinber stjórnsýsla, verkefnastjórnun, fjölmiðlafræði eða sambærilegt. • Góð samskipta- og samstarfshæfni. • Reynsla af kynningarmálum og/eða blaða- eða fréttastörfum kostur. • Framkoma á opinberum vettvangi kostur. • Reynsla af verkefnastjórnun kostur. • Góð íslenskukunnátta og hæfni í ræðu og riti. • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi. • Þekking á opinberum rekstri kostur. • Þekking á starfsemi sveitarfélaga kostur. Mjólkursamsalan setti á dög- unum á markað Næringu+ sem er orku- og prótínríkur næringardrykkur sem hentar vel þeim sem þurfa að þyngj- ast eða sporna við þyngdar- tapi. Drykkurinn er vítamín- og steinefnabættur og getur meðal annars hentað eldra fólki, en með aldrinum minnkar oft matarlystin þótt þörf fyrir orku, prótín, víta- mín og steinefni sé enn fyrir hendi. „Til að fyrirbyggja vöðva- rýrnun og þyngdartap hjá eldra fólki er mikilvægt að það neyti orku og prótína í ríkum mæli. Að mæta þess- ari þörf var hugsun okkar með því að þróa þessa vöru og setja í framleiðslu,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðs- stjóri MS. Við þróun á Næringu+ var sérstaklega tekið mið af nýj- um ráðleggingum um matar- æði eldra fólks. Sérstök áhersla var lögð á að hafa drykkinn eins prótín- og orkuríkan og hægt var án þess að láta það bitna á bragðgæðum vörunnar. Gott milli mála Næring+ fæst í 250 ml fernum með súkkulaðibragði og kaffi- og súkkulaðibragði. „Þrátt fyrir að drykkurinn sé orkuríkur er gætt að því að stilla magni viðbætts sykurs í hóf og engin sætuefni eru í honum. Búið er að kljúfa all- an mjólkursykur, sem aðrir kalla laktósa, í drykknum sem er góður kostur til að hjálpa til við að tryggja næga orkuinntöku og uppfylla prótínþörf. Við segjum samt að best sé að nota drykkinn milli mála og gæta jafnframt að því að fá reglulegar mál- tíðir,“ segir Guðný Steins- dóttir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mjólkurfólk Guðný Steinsdóttir markaðsstjóri MS og Her- mann Erlingsson vöruhússtjóri hér með drykkinn nýja. Orka til þyngdar  Næring+  Orku- og pró- teindrykkur  Er án laktósa Friðlýsing Drangajökuls- víðerna er líkleg til að styrkja umtalsvert samfélag og nátt- úru í Árneshreppi. Þetta er niðurstaða mats sem félaga- samtökin Ófeig – náttúru- vernd létu gera. Borin voru saman hver áhrif yrðu af frið- lýsingu víðernanna og þess kosts að virkja Hvalá. Í skýrslu Environice er komist að þeirri niðurstöðu að friðlýsing víðerna við Dranga- jökul hefði mun jákvæðari efnahagsleg áhrif á sam- félagið til langs tíma en virkj- un gæti mögulega haft. Tölu- vert af varanlegum störfum myndi skapast við náttúru- tengda ferðaþjónustu til frambúðar beint og óbeint vegna friðlýsingar. Störf við byggingu Hvalárvirkjunar yrðu mörg til skamms tíma, en engin að framkvæmdum loknum. „Með byggingu virkjunar ykjust þannig tekjur sveitar- félagsins til skamms tíma, en um leið væri mikilvægum hluta af aðdráttarafli svæðis- ins eytt til frambúðar og lok- að á þá atvinnuuppbyggingu til langs tíma sem felst í að- dráttarafli náttúru og þjóð- menningar. Um yrði að ræða fyrstu friðlýsingu víðerna á Íslandi, en friðlýsing jarðar- innar Dranga, sem er hluti svæðisins, er þegar í vinnslu að tilhlutan landeigenda,“ segir í tilkynningu Ófeigar. Þar kemur fram að efni skýrslunnar verði kynnt fólki í Árneshreppi og ráðamönn- um. Er minnt á að íslenska ríkið hefur gert kröfu um Drangajökul sem þjóðlendu sem falli að áliti Ófeigar að friðlýsingu. Drangajökull og umhverfi hans njóti þegar hverfisverndar skv. ákvörð- unum Strandabyggðar og Ísafjarðarbæjar og Náttúru- fræðistofnun Íslands leggi til friðlýsingu jökulsins og um- hverfis hans. Skapar tækifæri „Meginniðurstaða skýrslu Environice er sú að friðlýsing Drangajökulsvíðerna sé til þess fallin að skapa ný at- vinnutækifæri á svæðinu til langs tíma, bæði í ferðaþjón- ustu, opinberri þjónustu og í afleiddum greinum,“ segir Ófeig. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Drangaskörð Sólarlag á Ströndum um Jónsmessuleytið. Friðlýsing styrkir  Drangajökulsvíðernum verði þyrmt  Tekjur og skapar störf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.