Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019FRÉTTIR
Ert þú að spila í
myrkri?
Borgartúni 20
105 Reykjavík
sími 585 9000
www.vso.isV E R K F R Æ Ð I S T O F A
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
GRND
-2,99%
30,85
ARION
+6,93%
80,2
S&P 500 NASDAQ
-0,64%
7.118,764
+0,11%
2.667,66
+1,94%
6.941,63
FTSE 100 NIKKEI 225
31.7.‘18 31.7.‘1830.1.‘19
1.800
90
2.081,00
1.909,50
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
62,43-1,04%
20.556,54
74,25
50
2.400
30.1.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
SMÁSALA
Hagar hf. högnuðust um tæpan 1,8
milljarð króna á þriðja ársfjórðungi,
sem stendur frá mars – nóvember.
Hagnaðurinn jafngildir 3,1% af veltu
en hagnaður á fyrra ári var rúmur
1,9 milljarðar, eða 3,6% af veltu.
Heildareignir samstæðunnar
námu tæpum 53 milljörðum króna í
lok tímabilsins og eigið fé nam tæp-
um 24 milljörðum. Eiginfjárhlutfall
Haga var 45% í lok tímabilsins.
Í tilkynningunni segir að vörusala
tímabilsins hafi numið rúmum 56
milljörðum króna, samanborið við 54
milljarða árið áður. Söluaukning
tímabilsins milli ára í krónum talið
sé því 4%. „Í matvöruverslanahluta
félagsins hafa seld stykki aukist um
1,0% og viðskiptavinum hefur fjölg-
að um 1,6% milli ára,“ segir í til-
kynningu Haga.
Hagkaupi í Borgarnesi lokað
Í tilkynningunni segir einnig að í
apríl nk. renni út leigusamningur
Hagkaups í Borgarnesi og versl-
uninni verði lokað eftir 12 ár í
rekstri.
Þann 7. janúar sl. var tilkynnt um
breytta afkomuspá félagsins en
EBITDA áætlun fyrir rekstrarárið
er nú 4.600-4.700 milljónir króna, að
undanskildum kostnaði við samruna
og einskiptiskostnað og án tekju-
áhrifa frá Olís og DGV en Hagar yf-
irtóku félögin þann 30. nóvember á
síðasta ári. tobj@mbl.is
Hagnaður
Haga 1,8
milljarðar
Þorrablót á vegum íþróttafélaga
voru haldin víða síðustu tvær helgar
og samkvæmt úttekt Viðskipta-
Moggans nema heildartekjur þeirra
sjö félaga sem haft var samband við
tæpum 65 milljónum króna. Bætist
þar ofan á sala á veigum og því gætu
tekjurnar hæglega verið talsvert
hærri. Rétt er þó að taka fram að
töluverður kostnaður felst í því að
halda veislur af þessu tagi en flest
félaganna skila jafnan á bilinu 3 til 5
milljónum í hagnað sem rennur í
starfsemi félaganna.
Heimsmet í Grafarvogi
Þorrablótin eru hjá sumum félög-
um stærstur hluti þeirra fjáraflana-
verkefna sem haldin eru. Almennt
eru þó þorrablótin aðallega hugsuð
sem félagslegur viðburður fyrir
bæjarfélögin þar sem félögin eru
staðsett og allir viðmælendur sem
ViðskiptaMogginn ræddi við segja
viðburðinn hafa farið afar vel fram.
Fjölmennasta þorrablótið var haldið
í Grafarvogi þar sem Fjölnismenn
komu saman. 1.240 manns voru í mat
að viðbættum um 200 sem mættu á
ball að sögn Jóns Karls Ólafssonar,
formanns Fjölnis. Samtals námu
tekjurnar af miðasölu þar því um
13,6 milljónum króna. Verður
hagnaðurinn líklega yfir fimm millj-
ónir króna sem renna í starf félags-
ins að sögn Jóns sem í léttum tón tel-
ur að heimsmet hafi verið slegið í
aðsókn. „Þetta er stærsta fjáröflun
félagsins á hverju ári og hefur farið
stækkandi og við erum mjög sátt
með það,“ segir Jón Karl og telur að
tekjur af þorrablótinu séu um 20-
30% af því sem kemur inn úr fjáröfl-
unum.
3 milljóna hagnaður að jafnaði
Í Vesturbænum héldu KR-konur
800 manna þorrablót þar sem miða-
sölutekjur námu tæpum átta millj-
ónum króna. Þar á bæ fer allur ágóð-
inn, um 3 milljónir króna, í barna- og
unglingastarf KR. Sama á við um
Mosfellinga en á þorrablót Aftureld-
ingar mættu samtals 1.000 manns
sem skilaði tekjum upp á 7,1 milljón
króna og hagnaði upp á 3-4 milljónir.
Á Akranesi mættu 650 Skagamenn á
þorrablót sem skipulagt var af ’71-
árgangnum frá Akranesi og skilaði
það ÍA, Björgunarfélagi Akraness
og Þjóti, íþróttafélagi fatlaðra á
Akranesi, um 4 milljónum króna. Á
næsta ári verður þorrablótið á Akra-
nesi haldið í 10. sinn og taka þá nýir
skipuleggjendur við. Í Keflavík
mættu 700 gestir á þorrablót suður
með sjó sem skilaði tekjum upp á 6,9
milljónir og hagnaði upp á rúma
milljón króna sem rennur til knatt-
spyrnu- og körfuknattleiksdeildar.
Fjölmennt í Kópavogi
og Garðabæ
Um 900 miðar voru seldir á þorra-
blót Sjörnunnar í Garðabæ og námu
miðasölutekjur um 10,4 milljónum
króna. Rekstrarniðurstaða vegna
þorrablótsins í ár liggur ekki fyrir í
Garðabæ en ágóðinn rennur til
knattspyrnudeildar Stjörnunnar.
Stórt þorrablót á vegum HK,
Breiðabliks og Gerplu var einnig
haldið í Kópavogi þar sem 1.200
manns mættu í mat og þar námu
miðasölutekjur 11,9 milljónum
króna. Sameiginleg ákvörðun þeirra
sem héldu þorrablótið í Kópavogi
var að gefa ekki upp hagnaðinn sem
rennur í starfsemi félaganna.
Þorrablótin góð búbót
fyrir íþróttafélög landsins
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Þorrablót íþróttafélaganna
skila iðulega á bilinu 3 til 5
milljónum í hagnað sem
rennur í starfsemi þeirra.
KR-konur skipulögðu glæsilegt 800 manna þorrablót í Vesturbæ Reykjavík-
ur og rennur allur ágóði þess í barna- og unglingastarf félagsins.
UPPLÝSINGATÆKNI
Árið 2018 var metár hjá Origo, sem
skilaði ársuppgjöri í gær. Hagnaður
félagsins á fjórða ársfjórðungi var
5,29 milljarðar króna, sem er það
mesta í sögu félagsins samanborið
við 167 milljóna hagnað á fjórða árs-
fjórðungi ársins 2017. Þennan mikla
hagnað á fjórða ársfjórðungi má
rekja til sölu Origo á 55% hlut í
Tempo. Fyrir það fékk Origo 34,5
milljónir bandaríkjadala en áhrif söl-
unnar á hagnað Origo voru 5,1 millj-
arður króna. Rekstrarhagnaður fé-
lagsins fyrir afskriftir, fjármagns-
kostnað og skatta (EBITDA) nam
423 milljónum króna á fjórða árs-
fjórðungi samanborið við 246 mill-
jóna króna rekstrarhagnað á fjórða
ársfjórðungi 2017.
Sé litið til ársins 2018 í heild sinni
var heildarhagnaðurinn 5,42 mill-
jarðar, sem einnig er það mesta í
sögu félagsins, samanborið við 433
milljóna króna heildarhagnað árið
2017. EBITDA ársins 2018 í heild
nam 1,1 milljarði króna en var 928
milljónir árið 2017. Eignir Origio
námu 12,3 milljörðum króna í lok árs
2018 samanborið við sjö milljarða ár-
ið 2017 og skuldirnar námu 4,15
milljörðum. Eigið fé nam 8,2 mill-
jörðum. Eiginfjárhlutfall félagsins
var 66,1% í lok árs 2018 en var 41,6%
árið 2017. Finnur Oddsson, forstjóri
Origo, segir árið 2018 það besta í
sögu félagsins og það marki þátta-
skil í sögu Origo. Hann segir að
endurmörkun vörumerkisins og
sameining Nýherja, Applicon og TM
Software hafi skilað sér í auknum
ávinningi fyrir hið nýja félag. Starf-
semi Origo hafi þróast töluvert á
árinu til viðbótar við sterka sölu á
tölvubúnaði til atvinnurekstrar
ásamt auknu lausnaframboði á sviði
hugbúnaðar. peturhreins@mbl.is
Segja árið 2018 marka
þáttaskil í sögu Origo
Morgunblaðið/Ómar
Heildarhagnaður Origo á árinu 2018
nam 5,42 milljörðum króna.