Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019FRÉTTIR Að mati Andrésar hefur umhverfið í almannatengslum tekið miklum breytingum síðustu ár. Fyrirtæki hans, Góð samskipti, fæst t.d. minna við stök verkefni en gerir meira af því að vinna með fyrir- tækjum og stofnunum til langs tíma og er kallað fyrr að málum þar sem ráðgjafar er þörf. Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir? Ég sótti peningastefnufund Viðskiptaráðs í desember síðast- liðnum. Það var áhugavert að heyra þar sjónarmið bæði seðla- bankastjórans og nýs aðstoðar- seðlabankastjóra, Rannveigar Sig- urðardóttur, varðandi stöðu og horfur í hagkerfinu og sýn þeirra á peningastefnuna, ríkisfjármálin og yfirstandandi kjarasamninga. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Rework eftir David Heinmeier Hansen og Jason Fried hafði mikil áhrif á mig. Hún storkar mörgum viðteknum hugmyndum um vinnu- lag, velgengni og verðmætasköpun. Annars er ég ekki barnanna bestur í þessum efnum. Ég kaupi yfirleitt um 5-10 bækur á mánuði en kemst svo aðeins yfir að lesa 1-2 þeirra. Ég gef sjálfum mér prik fyrir við- leitni en konan mín er ekki alveg þar. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Ég er í mjög erilsömu starfi en nýt þess um leið að halda mörgum boltum á lofti. Konan mín gaf mér listaverk í jólagjöf sem á er letrað: „Það má taka pásu“ og það hangir nú uppi á skrifstofunni. Við erum annars líka dugleg að skipta um umhverfi, heyra í fólki og sækja viðburði til að fá innblástur. Reynsla mín er líka sú að maður eigi að bera virðingu fyrir því þeg- ar andinn kemur yfir mann og gefa sér þá tíma til að skrifa niður og vinna úr hugmyndunum. Maður veit ekki hvenær það gerist næst. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég er sífellt að lesa, hlusta eða horfa á eitthvað. Tímarit, bækur, hlaðvarp, fréttasíður eins og Axios og alls konar viðtöl og fyrirlestra á YouTube, eða bandarískar kapal- stöðvar eins og CNN og MSNBC. Hliðarafleiðingin er sú að ég fæ lík- lega óhæfilegan dagskammt af Trump. Annars finnst mér ég læra mest af því að kenna – eins öfug- snúið og það kann að hljóma. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ég hef mjög gaman af að kenna og miðla þannig að líklegast myndi ég sækjast eftir að gera kennslu að mínu aðalstarfi. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Við erum afar lánsöm að hafa fundið þá hillu sem Góð samskipti eru á. Þörfin fyrir þjónustuna fer síst minnkandi og okkur hefur farnast vel. Til langs tíma hef ég hins vegar dálitlar áhyggjur af einsleitni í atvinnulífinu. Við þurf- um að hafa mörg fyrirtæki sem geta boðið spennandi og vel launuð störf. Ef við hefðum ekki fyrirtæki eins og Marel, Össur og CCP þá væru mun færri tækifæri fyrir vel menntað fólk hér á landi. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Líklega myndi ég slaka duglega á innflytjendalöggjöfinni og fá bæði fleiri flóttamenn og aðra innflytj- endur til landsins. Ég er sann- færður um að Ísland yrði enn betra samfélag ef við værum hálf milljón eða jafnvel milljón sem byggjum hér. Það myndi til lengri tíma litið skapa aukna velmegun að fá inn- spýtingu innflytjenda. Það er reynsla annarra þjóða víða um heim. SVIPMYND Andrés Jónsson, eigandi Góðra samskipta Með áhyggjur af einsleitninni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Ég er sannfærður um að Ísland yrði enn betra samfélag ef við værum hálf milljón,“ segir Andrés um hvernig íbúafjöldi landsins mætti þróast. STÖRF: Dagskrárgerðar- maður á Rás 1 og Rás 2 og síðar dagskrárstjóri á útvarpsstöðinni Mono á árunum 1995-1999. Stofn- aði í kjölfarið hugbúnaðarfyrirtæki með öðrum. Starfaði síðan sem almannatengill hjá Íslenskum almanna- tengslum árin 2005-2006. Ritstjóri og meðstofnandi fréttavefsins Eyjan árið 2007. Hef svo starfað sem almannatengill og eigandi Góðra samskipta frá árinu 2008 og sem ráðgjafi við stjórnenda- ráðningar frá 2014. Ég sinni jafnframt í hlutastarfi kennslu í almanna- tengslum og tengdum greinum við Opna háskól- ann í HR og MBA-nám Háskóla Íslands og hef gert frá árinu 2014. ÁHUGAMÁL: Stjórnmál, efnahagsmál og önnur samfélagsmál, félags- störf, ferðalög um Suður- Evrópu og Asíu. FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona mín er Ása Laufey Sæmundsdóttir, héraðsprestur í Reykjavík. HIN HLIÐIN GRÆJAN Það ku vera leitun að betra æfingatæki en róðravél. Ef mark- miðið er að brenna hitaeiningum í miklu magni, og um leið stæla hér um bil alla þá vöðva líkamans sem máli skipta, þá jafnast fátt á við þá alhliða og um leið mjúku hreyf- ingu sem fæst með því að róa. Vandinn er, eins og með flest önnur æfingatæki, að róðravélar þykja yfirleitt ekki mikilheim- Róðravél sem má hafa á stofugólfinu miðju Einstaklega smekkleg hönnun sem myndi sæma sér vel inn á hvaða heimili sem er. ilisprýði og flestum finnst róð- urinn einhæfur og leiðinlegur til lengdar. Hydrow er ný gerð af róðravél sem bæði er smekklega hönnuð og hlaðin tækni sem gerir æfingarnar skemmtilegri. Þannig kemur Hy- drow með stórum áföstum sjón- varpsskjá og hægt að horfa þar á upptöku meðan róið er og herma eftir því að keppa með samstilltu liði á sumum fallegustu ám sem finna má. Þeir sem vilja aðeins minni asa geta hermt eftir róleg- um róðri í afslappaðri náttúrufeg- urð, og loks má nota tækið til að gera alls kyns teygju- og styrk- leikaæfingar. Panta á Hydrow á www.hydrow- .com fyrir 1.999 til 2.599 dali eftir því hvers konar auka- hlutir fylgja með. ai@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.