Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
YANMAR
Aðalvélar
9 - 6200 hö.
Mynd: Landhelgisgæslan
Vísa þeir til viðtals við Axel sem
birtist í sérblaði 200 mílna um
sjávarútveg sem fylgdi Morgun-
blaðinu 14. desember og var end-
urbirt á vefnum fyrr í þessum
mánuði. Fjallaði viðtalið um svipt-
ingu á MSC-vottun grásleppuveiða
vegna meðafla annarra tegunda,
þar sem Axel gagnrýndi útreikn-
inga um áætlaðan meðafla.
Í eftirlitsferðum Hafrannsókna-
stofnunar hefðu til að mynda
veiðst 46 útselir, þar af nánast allir
í þremur eftirlitsferðum við Vest-
firði og í innanverðum Breiðafirði,
og þeir reiknaðir upp í fjöldann
2.870 á landsvísu. Sagði hann þá
niðurstöðu afar merkilega, enda
hefði stærð stofnsins síðast verið
metin í kringum 4.200 seli, árið
2012. Samkvæmt þessum útreikn-
ingum ættu því 68% stofnsins að
veiðast á hverju ári sem meðafli.
„Þetta stenst enga skoðun“
„Nú er komið nýtt stofnmat sem
hljóðar upp á 6.000 seli og er því
um að ræða 50% fjölgun á sex ár-
um. Það vekur upp spurningar um
áreiðanleika þessara talna sem
verið er að vinna með. Þetta stenst
enga skoðun. Ef þetta væri rétt
gerðu menn vart annað en að
draga sel um borð,“ sagði Axel
meðal annars.
Benti hann einnig á að víða er-
lendis þekkist það, þegar meðafli
sé uppreiknaður, að undanskilin
séu þau svæði þar sem viðkomandi
tegund haldi sig ekki.
„Það sem við mótmælum sér-
staklega er að svæðin fyrir norðan
og austan, sem hafa ekki teistuna,
skarfinn og útselinn í sama magni,
séu ekki undanskilin. Samanlagður
veiðileyfafjöldi á þessum svæðum
er 53% af heildinni á landinu. Það
hefði varla neitt átt að uppreiknast
á þessi svæði.“
Skýrslan hafi svör við flestu
Í skriflegu svari sem Guð-
mundur og Guðjón hafa sent 200
mílum segir að rétt sé að benda á
að umræddri gagnrýni hafi, eins
og áður sagði, þegar verið svarað í
ítarlegri skýrslu sem komið hafi út
í marsmánuði og finna megi á vef
Hafrannsóknastofnunar.
„Í skýrslunni var gögnunum
skipt upp eftir svæðum, tíma og
dýpi og því hefur gagnrýni for-
mannsins nú verið svarað. Í reynd
má finna svör í skýrslunni við
flestum þeim atriðum sem for-
maðurinn tínir til og því verður að
telja sérstakt að hann endurtaki
gagnrýni sem svarað var ítarlega
fyrir tæplega ári síðan,“ segja
Guðmundur og Guðjón. Í stuttu
máli megi segja að þeir þættir sem
Axel telji upp í viðtalinu hafi haft
lítil áhrif á heildarmat á meðafla
fugla og sjávarspendýra. Hér á
eftir fer svar þeirra í heild sinni:
„Gögn úr 193 róðrum eftirlits-
manna Fiskistofu voru notuð til
uppreikningsins í skýrslunni, og
voru róðrarnir farnir frá 2014-
2017. Meðaflinn var metinn á fjóra
vegu; án skiptingar, skipt upp eftir
svæðum, skipt upp eftir dýpi og
skipt upp eftir mánuðum, auk þess
sem skráningar skipstjórnarmanna
á meðafla voru teknar saman.
Breytileiki í meðafla milli ára og
áhrif handahófskenndrar sýnatöku
voru líka könnuð.
Matið fyrir sjávarspendýr var
lægst skipt upp eftir svæðum
(3100 ± 1086 dýr á ári), næst
lægst án skiptingar (3570 ± 607
dýr á ári), en matið skipt eftir dýpi
var aðeins hærra (3620 ± 2860 dýr
á ári) og hæst var matið skipt upp
eftir mánuðum (3850 ± 1577 dýr á
ári). Skráningar sjávarspendýra í
afladagbækur voru mun minni eða
988 dýr, þar af 700 selir, árið 2017.
Mat á meðafla sjófugla fylgdi álíka
mynstri, en matið var lægst skipt
upp eftir svæðum (7210 ± 3030
fuglar), næst lægsta var það án
svæðaskiptingar (8150 ± 1222
fuglar), matið skipt upp eftir dýpi
kom þar á eftir (8800 ± 3962 fugl-
ar) en hæst var matið skipt upp
eftir mánuðum (9100 ± 3180 fugl-
ar). Til samanburðar voru 2417
fuglar skráðir í afladagbækur grá-
sleppubáta árið 2017.
Í athugun sem var framkvæmd
árið 2017 hvort handahófskennt
róðraval hefði áhrif á meðaflann
kom í ljós að meðafli bæði spen-
dýra og fugla var hærri í þeim
róðrum sem valdir voru af handa-
hófi heldur en í þeim róðrum sem
valdir voru með áhættumati út frá
meðafla þorsks eða annarra þátta.
Því er ólíklegt að sjálft áhættu-
matið hafi nokkur áhrif á mat
meðafla sjávarspendýra og fugla.
Af þeim tegundum sem vottunin
féll á var meðaflatíðni landsels
nokkuð jöfn milli svæða, dýpa og
mánaða og veiddust selir á öllum
veiðisvæðum nema Suðurlandi, og
ekki var hægt að sjá mun milli
mánaða eða dýpis. Metinn meðafli
landsels (uppskipt eftir veiðisvæð-
um) var í kringum 1200-1300 dýr
(700-1700 dýr), en á sama tíma
skráði flotinn 700 seli af öllum teg-
undum.
Mikil óvissa er í kringum með-
aflamat útsels. Meðaflatíðni útsels
var hærri í Breiðafirði og við Vest-
firði heldur en á öðrum svæðum,
auk þess sem tíðnin var hærri á 0-
10 metra dýpi heldur en á öðrum
dýptarbilum. Metinn meðafli útsels
(uppskipt eftir veiðisvæðum) var í
kringum 1000 dýr (500-1600 dýr),
en eins og áður sagði er óvissa
þessa mats mjög mikil og mun ná-
kvæmni þess ekki batna nema með
því að auka þekju eftirlits töluvert.
Meðaflatíðni teistu var hærri í
Faxaflóa, Breiðafirði, Húnaflóa og
á Austurlandi heldur en öðrum
svæðum, auk þess sem meira
veiddist af henni á 0-10 metra dýpi
og 20-30 metra dýpi heldur en á
öðrum dýptarbilum. Fullyrðing
formannsins um að það sé „sann-
að“ að teista veiðist ekki á meira
dýpi en 15 metrum er byggð á
rannsókn sem Birdlife Int-
ernational stóð fyrir, stenst því
ekki nánari skoðun, en formaður-
inn gagnrýnir jafnframt Birdlife
International harðlega á öðrum
stað í viðtalinu. Auk þess sýna
upplýsingar úr róðrum eftirlits-
manna að fullyrðing Axels um að
teistu sé lítið að finna fyrir austan
er einfaldlega röng. Metinn með-
afli teistu (uppskipt eftir veiði-
svæðum) var í kringum 1500 fuglar
(700-2325), og eru því neðri örygg-
ismörk matsins nálægt þeim fjölda
sem grásleppuflotinn skráði í afla-
dagbækur 2017 (600 fuglar).
Hægt er að taka undir at-
hugasemdir formannsins um bein-
ar veiðar á sel, og hefur Haf-
rannsóknastofnun lagt til að
stjórnvöld leiti leiða til að koma í
veg fyrir beinar veiðar á bæði
landsel og útsel í árlegri ráðgjöf
sinni, auk þess að leggja til að lög-
binda skráningu beinnar veiði á
sel.
Uppreikningar á meðafla eru
ekki einföld aðgerð, og töluverð
óvissa er í gögnunum eins og sést
á víðum öryggismörkum í kringum
matið hjá flestum tegundum. Til
að minnka þá óvissu þarf því að
fjölga eftirlitsferðum eða afla
gagna á annan hátt t.d. með
myndavélum eða stórbættri skrán-
ingu sjómanna í afladagbækur en
mikill misbrestur er á að sjómenn
skrái meðafla líkt og lög gera ráð
fyrir. Einnig er mikilvægt að halda
áfram öflugri vöktun á stærð
sjávarspendýrastofna við landið,
og líklegt er að auka þurfi eftirlit
og rannsóknir á stofnstærð þeirra
spendýra og sjófuglastofna sem
verða fyrir áhrifum frá fiskveiðum
við landið.“
Svara gagnrýni formanns LS
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Guðmundur Þórðarson,
sviðsstjóri botnsjávarsviðs
Hafrannsóknastofnunar,
og Guðjón Sigurðsson,
sérfræðingur í meðafla-
útreikningum, segjast telja
það sérstakt að Axel
Helgason, formaður
Landssambands smá-
bátaeigenda, endurtaki í
samtali við 200 mílur gagn-
rýni sem svarað hafi verið í
ítarlegri skýrslu stofnunar-
innar í mars á síðasta ári.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Grásleppu landað á Þórshöfn. Guðmundur og Guðjón segja að uppreikningar á meðafla séu ekki einföld aðgerð.