Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019FRÉTTIR
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim.
Af síðum
Í hvert skipti sem hulunni er svipt
af nýjum rafmagnsbíl er einhver
sem spyr: „Mun hann gera út af
við Tesla?“ Rafbílaframleiðandinn
í Kísildal er jú enn það fyrirtæki
sem allir nota sem viðmið þegar
kemur að verði, útliti og raf-
hlöðustærð, og það þrátt fyrir að
sölutölurnar hafi valdið fjárfestum
einhverjum áhyggjum að undan-
förnu.
Volkswagen hefur unnið að
nýrri tækni til höfuðs Tesla síðan
síðla árs 2015. En ekki er um að
ræða rafmagnsbíl heldur bílgrind
sem fengið hefur nafnið MEB. Það
er ofan á þessa grind sem VW
hyggst smíða 50 nýjar gerðir
rafmagnsbíla fyrir árið 2025.
Sumir fjárfestar og markaðs-
greinendur telja að nýja bíl-
grindin, sem verður notuð í flesta
rafmagnsbíla VW, muni gefa fyr-
irtækinu mikilvægt forskot á
þeirri rafbílaöld sem er að ganga í
garð.
„Þessi bílgrind er kjarninn í öllu
sem Volkswagen mun bjóða upp á
á fólksbílamarkaði,“ segir Jo-
hannes Buchman, stjórnandi bíla-
markaðs-ráðgjafarfyrirtækisins
FEV Consulting.
„MEB er ekki einungis undir-
staðan fyrir hönnun nýrra bíla,
heldur mun hafa áhrif á allan
rekstur fyrirtæksins, birgðakeðju
þess og gæði framleiðslunnar – er
varla nokkuð sem er undanskilið.“
Risastórt veðmál
Af öllum stóru bílaframleið-
endum er VW að leggja mest undir
með því að setja 30 milljarða evra í
þróun rafmagnsbíla á aðeins
næstu fimm árum.
Er mest áhersla lögð á MEB,
sem lýsa má sem n.k. „hlaupa-
brettis-bílgrind“ sem hönnuð hef-
ur verið gagngert fyrir rafmagns-
bíla, frekar en að vera bílgrind
fyrir bensínbíl sem búið er að að-
laga að rafhlöðum.
VW stendur og fellur með þeirri
stefnu að gera fyrirtækið að
stærsta rafbílaframleiðanda heims
og ná sama afburðaárangri þar og
tókst við framleiðslu bensín- og
díselbíla sem VW hefur, í fjögur ár
samfellt, selt meira af á heimsvísu
en nokkur annar framleiðandi.
Frá árinu 2012 hafa vörumerkin
sem heyra undir VW, s.s. Audi,
Skoda og Seat, smíðað 50 milljónir
bíla ofan á MQB-bílgrindina.
Á rafbílamarkaði vill fyrirtækið
ná enn lengra. Að sögn tveggja
heimildarmanna sem þekkja til hjá
fyrirtækinu standa vonir til að raf-
bílagrindin geti orðið ráðandi stað-
all í rafbílaheiminum, rétt eins og
VHS var eitt sinn ráðandi á mynd-
bandamarkaði.
Á VW núna í viðræðum við
fjölda bílaframleiðenda um að
leyfa þeim að notast við nýju bíl-
grindina. Ford er einn af þessum
framleiðendum og staðfesti það á
bílasýningunni í Detroit fyrr í
mánuðinum þegar félagið greindi
frá „alþjóðlegu bandalagi“ þeirra
og VW.
Að svo stöddu snýst samstarf
Ford og VW fyrst og fremst um
minni atvinnubifreiðar. En
markaðsgreinendur hjá Barclays
segja það bæði „augljóst“ og bjóða
upp á „verulegan ávinning“ ef
samstarfið verður víkkað út svo að
Ford geti smíðað fólksbíla ofan á
rafmagnsbílgrind VW.
Ef svo færi þá myndi það vera
þvert á þá stefnu sem bílaframleið-
endur hafa reynt að fylgja að
reyna að aðgreina sig frá keppi-
nautum sínum með því að smíða
sínar eigin vélar, gírkassa og drif-
sköft.
Áhersla á annað en rafhlöður
En þegar rafmagnaðir og net-
tengdir bílar taka markaðinn yfir
má reikna með að rafhlöður fyrir
bíla verði nánast verslunarvara –
rétt eins og rafhlöður fyrir farsíma
– og að hinn almenni neytandi
muni hafa meiri áhuga á raf-
magns- og upplýsinga- og afþrey-
ingarbúnaði bíla frekar en hversu
mörgum hestöflum þeir hafa úr að
spila.
„Ef ekki þarf að eyða miklum
fjármunum í að þróa undirstöður
bílsins þá er hægt að einblína í
staðinn á hvernig rafbúnaður öku-
tækisins virkar, bæta upplifun
ökumanns og farþega og bæta
kerfin sem leyfa bílnum að aka sér
sjálfur,“ segir Chris Borroni-Bird,
fyrrverandi stjórnandi hjá GM og
Waymo.
Borroni-Bird hefur verið eign-
aður heiðurinn af að hafa fundið
upp „hlaupabrettisgrindina“
snemma á 10. áratugnum. Það var
með slíkri grind sem rafbíla-
framleiðandinn Tesla í Kaliforníu
gat komið fyrir í bílum sínum risa-
stórum rafhlöðum sem eru allt að
600 kg að þyngd og veita allt að
500 km drægi á einni hleðslu.
Dreifa áhættunni
En VW er að taka mikla áhættu
með því að veðja nærri öllu á raf-
bílatæknina. Ef rafbílar ná ekki
mikilli útbreiðslu er hætt við að
VW sitji uppi með margra millj-
arða evra tap. Og ef eitthvað mis-
heppnast við þróun og smíði raf-
bílagrindarinnar þá myndi þurfa
að innkalla ótrúlegan fjölda bif-
reiða.
Að selja öðrum framleiðendum
leyfi til að smíða rafbílagrindina
dregur úr þessari áhættu. Ef VW
tækist það þá væru áhrifin gríðar-
leg.
Heimildarmaður sem þekkir til
áætlana VW segir að fyrirtækið
gæti orðið ráðandi á viðhalds- og
varahlutamarkaði og bílaumboðin
sem þjónusta merki VW væru með
pálmann í höndunum ef rafmagns-
bílgrind samsteypunnar verður
staðallinn fyrir bílamarkaðinn eins
og hann leggur sig.
Það sem meira er, þá mun nýja
bílgrindin hafa stjórnkerfi sem
tengir ökutækið við bílatölvuský
VW, sem smíðað var í samvinnu
við Microsoft og leyfir bílunum að
„tala saman“ og hlaða niður hug-
búnaði þráðlaust.
Þar með yrði til markaður fyrir
upplýsingatæknilausnir þriðju að-
ila, rétt eins og við höfum séð ger-
ast hjá Apple Store og Google Play
– nokkurs konar „verslunarmið-
stöð“ fyrir stafræna þjónustu, líkt
og Ralf Brandstätter, fram-
kvæmdastjóri VW, hefur bent á.
Tara Prakriya, sem stýrir þróun
hugbúnaðar fyrir nettengda bíla
hjá Microsoft, segir: „MEB er
hugbúnaðarumhverfi, og ekki bara
vélbúnaður … það er ekkert til
lengur sem heitir bara vélbún-
aður.“
Það hefur tekið tímann sinn að
gera rafbílagrindina tilbúna fyrir
markaðinn, en þegar hún er klár
til notkunar síðar á þessu ári
hyggst VW auka framleiðsluna
hratt.
Átta verksmiðjur í þremur
heimsálfum eiga að vera farnar að
nota rafbílagrindina árið 2022. Ár-
ið 2018 seldu vörumerkin tólf sem
heyra undir VW-samsteypuna ekki
nema um 40.000 rafmagnsbíla en
stefnan er sett á að árið 2025 nemi
salan allt að þremur milljónum
bíla árlega og að fjórði hver bíll
samsteypunnar verði rafmagnsbíll.
Þá er áætlað að hagnaður verði
af sölu rafbíla VW ekki seinna en
Volkswagen vill greiða Tesla náðarhögg
Eftir Patrick McGee í Frankfurt
Ef allt gengur að óskum
gæti VW náð yfirburða-
stöðu á rafbílamarkaði
með MEB-bílgrindina að
vopni.
Byltingarkenndur undirvagn sem ætlað er að draga úr framleiðslukostnaði og afla Volkswagen forskots á markaði
ætti. Öll á