Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 10

Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019FRÉTTIR Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Í hvert skipti sem hulunni er svipt af nýjum rafmagnsbíl er einhver sem spyr: „Mun hann gera út af við Tesla?“ Rafbílaframleiðandinn í Kísildal er jú enn það fyrirtæki sem allir nota sem viðmið þegar kemur að verði, útliti og raf- hlöðustærð, og það þrátt fyrir að sölutölurnar hafi valdið fjárfestum einhverjum áhyggjum að undan- förnu. Volkswagen hefur unnið að nýrri tækni til höfuðs Tesla síðan síðla árs 2015. En ekki er um að ræða rafmagnsbíl heldur bílgrind sem fengið hefur nafnið MEB. Það er ofan á þessa grind sem VW hyggst smíða 50 nýjar gerðir rafmagnsbíla fyrir árið 2025. Sumir fjárfestar og markaðs- greinendur telja að nýja bíl- grindin, sem verður notuð í flesta rafmagnsbíla VW, muni gefa fyr- irtækinu mikilvægt forskot á þeirri rafbílaöld sem er að ganga í garð. „Þessi bílgrind er kjarninn í öllu sem Volkswagen mun bjóða upp á á fólksbílamarkaði,“ segir Jo- hannes Buchman, stjórnandi bíla- markaðs-ráðgjafarfyrirtækisins FEV Consulting. „MEB er ekki einungis undir- staðan fyrir hönnun nýrra bíla, heldur mun hafa áhrif á allan rekstur fyrirtæksins, birgðakeðju þess og gæði framleiðslunnar – er varla nokkuð sem er undanskilið.“ Risastórt veðmál Af öllum stóru bílaframleið- endum er VW að leggja mest undir með því að setja 30 milljarða evra í þróun rafmagnsbíla á aðeins næstu fimm árum. Er mest áhersla lögð á MEB, sem lýsa má sem n.k. „hlaupa- brettis-bílgrind“ sem hönnuð hef- ur verið gagngert fyrir rafmagns- bíla, frekar en að vera bílgrind fyrir bensínbíl sem búið er að að- laga að rafhlöðum. VW stendur og fellur með þeirri stefnu að gera fyrirtækið að stærsta rafbílaframleiðanda heims og ná sama afburðaárangri þar og tókst við framleiðslu bensín- og díselbíla sem VW hefur, í fjögur ár samfellt, selt meira af á heimsvísu en nokkur annar framleiðandi. Frá árinu 2012 hafa vörumerkin sem heyra undir VW, s.s. Audi, Skoda og Seat, smíðað 50 milljónir bíla ofan á MQB-bílgrindina. Á rafbílamarkaði vill fyrirtækið ná enn lengra. Að sögn tveggja heimildarmanna sem þekkja til hjá fyrirtækinu standa vonir til að raf- bílagrindin geti orðið ráðandi stað- all í rafbílaheiminum, rétt eins og VHS var eitt sinn ráðandi á mynd- bandamarkaði. Á VW núna í viðræðum við fjölda bílaframleiðenda um að leyfa þeim að notast við nýju bíl- grindina. Ford er einn af þessum framleiðendum og staðfesti það á bílasýningunni í Detroit fyrr í mánuðinum þegar félagið greindi frá „alþjóðlegu bandalagi“ þeirra og VW. Að svo stöddu snýst samstarf Ford og VW fyrst og fremst um minni atvinnubifreiðar. En markaðsgreinendur hjá Barclays segja það bæði „augljóst“ og bjóða upp á „verulegan ávinning“ ef samstarfið verður víkkað út svo að Ford geti smíðað fólksbíla ofan á rafmagnsbílgrind VW. Ef svo færi þá myndi það vera þvert á þá stefnu sem bílaframleið- endur hafa reynt að fylgja að reyna að aðgreina sig frá keppi- nautum sínum með því að smíða sínar eigin vélar, gírkassa og drif- sköft. Áhersla á annað en rafhlöður En þegar rafmagnaðir og net- tengdir bílar taka markaðinn yfir má reikna með að rafhlöður fyrir bíla verði nánast verslunarvara – rétt eins og rafhlöður fyrir farsíma – og að hinn almenni neytandi muni hafa meiri áhuga á raf- magns- og upplýsinga- og afþrey- ingarbúnaði bíla frekar en hversu mörgum hestöflum þeir hafa úr að spila. „Ef ekki þarf að eyða miklum fjármunum í að þróa undirstöður bílsins þá er hægt að einblína í staðinn á hvernig rafbúnaður öku- tækisins virkar, bæta upplifun ökumanns og farþega og bæta kerfin sem leyfa bílnum að aka sér sjálfur,“ segir Chris Borroni-Bird, fyrrverandi stjórnandi hjá GM og Waymo. Borroni-Bird hefur verið eign- aður heiðurinn af að hafa fundið upp „hlaupabrettisgrindina“ snemma á 10. áratugnum. Það var með slíkri grind sem rafbíla- framleiðandinn Tesla í Kaliforníu gat komið fyrir í bílum sínum risa- stórum rafhlöðum sem eru allt að 600 kg að þyngd og veita allt að 500 km drægi á einni hleðslu. Dreifa áhættunni En VW er að taka mikla áhættu með því að veðja nærri öllu á raf- bílatæknina. Ef rafbílar ná ekki mikilli útbreiðslu er hætt við að VW sitji uppi með margra millj- arða evra tap. Og ef eitthvað mis- heppnast við þróun og smíði raf- bílagrindarinnar þá myndi þurfa að innkalla ótrúlegan fjölda bif- reiða. Að selja öðrum framleiðendum leyfi til að smíða rafbílagrindina dregur úr þessari áhættu. Ef VW tækist það þá væru áhrifin gríðar- leg. Heimildarmaður sem þekkir til áætlana VW segir að fyrirtækið gæti orðið ráðandi á viðhalds- og varahlutamarkaði og bílaumboðin sem þjónusta merki VW væru með pálmann í höndunum ef rafmagns- bílgrind samsteypunnar verður staðallinn fyrir bílamarkaðinn eins og hann leggur sig. Það sem meira er, þá mun nýja bílgrindin hafa stjórnkerfi sem tengir ökutækið við bílatölvuský VW, sem smíðað var í samvinnu við Microsoft og leyfir bílunum að „tala saman“ og hlaða niður hug- búnaði þráðlaust. Þar með yrði til markaður fyrir upplýsingatæknilausnir þriðju að- ila, rétt eins og við höfum séð ger- ast hjá Apple Store og Google Play – nokkurs konar „verslunarmið- stöð“ fyrir stafræna þjónustu, líkt og Ralf Brandstätter, fram- kvæmdastjóri VW, hefur bent á. Tara Prakriya, sem stýrir þróun hugbúnaðar fyrir nettengda bíla hjá Microsoft, segir: „MEB er hugbúnaðarumhverfi, og ekki bara vélbúnaður … það er ekkert til lengur sem heitir bara vélbún- aður.“ Það hefur tekið tímann sinn að gera rafbílagrindina tilbúna fyrir markaðinn, en þegar hún er klár til notkunar síðar á þessu ári hyggst VW auka framleiðsluna hratt. Átta verksmiðjur í þremur heimsálfum eiga að vera farnar að nota rafbílagrindina árið 2022. Ár- ið 2018 seldu vörumerkin tólf sem heyra undir VW-samsteypuna ekki nema um 40.000 rafmagnsbíla en stefnan er sett á að árið 2025 nemi salan allt að þremur milljónum bíla árlega og að fjórði hver bíll samsteypunnar verði rafmagnsbíll. Þá er áætlað að hagnaður verði af sölu rafbíla VW ekki seinna en Volkswagen vill greiða Tesla náðarhögg Eftir Patrick McGee í Frankfurt Ef allt gengur að óskum gæti VW náð yfirburða- stöðu á rafbílamarkaði með MEB-bílgrindina að vopni. Byltingarkenndur undirvagn sem ætlað er að draga úr framleiðslukostnaði og afla Volkswagen forskots á markaði ætti. Öll á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.