Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
dk iPos snjalltækjalausn
fyrir verslun og þjónustu
Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi
Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
510 5800, dk@dk.is, www.dk.is
dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar.
Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum
sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Hlaupa ekki í skarð WOW
Eva Sóley tekur við af Boga
Spá nýrri uppsveiflu árið 2020
LED-væðing og Snorrabraut ...............
Gestirnir fengu að smakka...................
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Canalix ehf. sem er í eigu GoPro ehf.
samsteypunnar sem aftur á hugbún-
aðarfyrirtækið Hugvit, mun taka yf-
ir GoPro Opis hugbúnaðarlausnina
sem hefur verið að hluta til þróuð
innan Hugvits ásamt GoPro Foris.
Eftir breytinguna verða Canalix og
Hugvit lykilfyrirtæki samsteyp-
unnar en Canalix mun einnig taka
yfir fyrirtæki GoPro í Bretlandi. Er
það hluti af þeim skipulagsbreyt-
ingum sem félagið hefur unnið að
um nokkurt skeið en ætlunin er að
skerpa áherslur og auka sókn fyr-
irtækjanna ásamt því að einfalda
fjármögnun þeirra og þjónustu.
GoPro Foris er hugbúnaður frá
Hugviti og er lausn fyrir millistór
fyrirtæki og stofnanir á sviði mála-,
skjala- og ferlastjórnunar.
Lítil samlegðaráhrif
GoPro Opis er hugbúnaðarlausn
sem ætluð er fyrir stór umhverfi og
skýið, jafnvel tugþúsundir notenda,
en hún hefur ekki verið seld hér-
lendis en er þegar komin í notkun
hjá viðskiptavinum fyrirtækisins í
Bretlandi og á Norðurlöndum.
„Þessi Opis vara er ný nálgun og
notar reglu- og gervigreindartækni
til þess að stýra ferlum, forgreina
gögn hjá stórum fyrirtækjum er-
lendis og stýra málavinnslu í sam-
ræmi við reglur og fordæmi,“ segir
Ólafur Daðason, framkvæmdastjóri
Hugvits, við ViðskiptaMoggann.
„Við höfum komist að því að vegna
þess hversu ólíkar þessar lausnir
eru, ólíkir notendahópar o.s.frv., eru
samlegðaráhrifin þegar kemur að
sölu og fleiru, mjög lítil,“ segir Ólaf-
ur. Hugvit verður áfram rekið með
óbreyttum hætti en áhersla verður
lögð á að sinna GoPro Foris og selja
hana bæði hérlendis og erlendis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GoPro Opis er hugbúnaðarlausn sem er hugsuð fyrir tugþúsundir notenda.
Miklar skipu-
lagsbreytingar
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Canalix ehf. er nýtt félag
sem heldur utan um hug-
búnaðarlausn GoPro sam-
steypunnar sem hugsuð er
fyrir erlendan markað.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Nú í vikunni voru fluttar af þvífréttir að allir greiddir reikn-
ingar þeirra stofnana sem heyra und-
ir A-hluta ríkissjóðs, þ.e. eru reknar
fyrir skattfé almennings, væru nú að-
gengilegir á vefsvæðinu opnirreikn-
ingar.is. Verkefninu var raunar
hleypt af stokkunum fyrir rúmu ári
en stofnunum sem það nær til hefur
fjölgað jafnt og þétt þar til nú.
Þetta fyrirkomulag er til bóta fráþví sem áður var og eykur á
sjálfsagt gagnsæi þegar kemur að
aðhaldi með því hvernig opinberu fé
er ráðstafað. Þótt þar sé eflaust um
hreina óskhyggju að ræða, er von-
andi að opið bókhald og aukin með-
vitund fólks um ráðstöfun ríkisfjár,
verði til þess að þeir sem haldi utan
um ríkisbudduna geri allt sem í
þeirra valdi stendur til að koma í veg
fyrir sóun. Það er sérstaklega mikil-
vægt þegar kemur að rekstri ríki-
sins, þar sem það er að stærstum
hluta rekið fyrir fjármuni sem teknir
eru af einstaklingum og lögaðilum
með valdboði.
Frá því að verkefninu um opnareikninga var hleypt af stokk-
unum hafa nærri 170 þúsund reikn-
ingar verið birtir á fyrrnefndri vef-
síðu. Þar er hægt að skoða viðskipti
ríkisstofnana út frá stofnununum
sjálfum, birgjum, tegund kostnaðar
og dagsetningum reikningana. Auð-
vitað myndi það æra óstöðugan að
fylgjast með öllu því sem þarna lekur
í gegn en mestu skiptir er að þeir
sem ákveða að stofna til kostnaðar í
nafni ríkisins, viti að þær ráðstafanir
verða að lokum fyrir allra augum.
Opið og
betraSkömmu fyrir áramót keyptiverktakafyrirtækið Vinci meiri-
hluta hlutafjár í Gatwick-flugvelli í
Bretlandi. Nú hefur fyrirtækið aug-
un á flugvöllum Parísarborgar, Orly
og Charles de Gaulle. Víða um heim
hefur nefnilega sú stefna verið tekin
að skattgreiðendur beri ekki allan
þungann og alla áhættuna af upp-
byggingu og rekstri þeirra innviða
sem tryggja flugumferð milli landa
og innan þeirra.
Þetta er ofarlega í huga Innherjanú þegar hann hefur rýnt í far-
þegaspá Isavia fyrir komandi ár en
hún var kynnt með pompi og prakt á
þriðjudagsmorgun. Samkvæmt
spánni er nú gert ráð fyrir að 8,95
milljónir farþega fari um völlinn í ár
en þeir voru 9,8 milljónir í fyrra. Það
jafngildir 9% fækkun milli ára.
Gangi spáin eftir með þessum hætti
verður það í fyrsta sinn í manna
minnum sem samdráttur verður í
fjölda farþega sem um völlinn fara.
Á sama tíma og þessi miklu um-skipti verða á rekstrarhorfum
vallarins, sem að fullu og öllu leyti er
í eigu ríkisins, standa enn óhögguð
áform um að leggja 20 milljarða á ári
í nýfjárfestingar á þessu ári, og
næstu þrjú árin þar á eftir. Nemur
heildarfjárfestingin skv. svörum
samgönguráðherra alls 91 milljarði
yfir tímabilið. Fjárfestingar þessar
byggjast á áætlunum sem gera ráð
fyrir áframhaldandi vexti og þessum
áfanga framkvæmda við völlinn er
ætlað að tryggja að hægt sé að taka
við 14 til 15 milljónum farþega á ári
hverju. Það eru 6 til 7 milljónum
fleiri farþegar en líkur standa til að
fara muni um völlinn í ár!
Uppbyggingaráformin erusannarlega metnaðarfull og
vonandi rætast spárnar. Geri þær
það ekki, verður kannski við for-
svarsmenn Isavia að sakast, en þeir
munu ekki sitja uppi með svarta-
pétur. Það munu aðeins skattgreið-
endur gera. Mun nær væri að dreifa
áhættunni af uppbyggingu og
rekstri vallarins. Þar mætti líta til
valla á borð við Kastrup, en kana-
díski lífeyrissjóðurinn OTPP og
danski lífeyrissjóðurinn ATP eiga
59,4% hlut í honum á móti danska
ríkinu og öðrum fagfjárfestum. Það
er betra að fá fleiri að borðinu sem
annt er um þá fjármuni sem leggja
þarf í skýjaborgirnar.
Staldra má við í Keflavík
Carlos Ghosn, fyrrver-
andi stjórnarformaður
Nissan, telur stjórn-
endur Nissan vera á
bak við mál gegn sér.
Stjórnendur á
bak við málið
1
2
3
4
5