Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 6
Pallíettupils
og toppur
frá Lindex.
Pallíettujakki frá
Gucci. Hann fæst á
Net-a-porter.com.
Ef það er eitthvað sem getur
hresst fólk við í frekar tíð-
indalausum janúar þá er
það að fara á gott þorrablót.
Gleyma því um stund að
þú sért að spara eftir vísa-
fyllirí desembermánaðar
og sért í aðhaldi eftir jólin.
Til þess að vera stjarnan
á þorrablótinu væri ekki úr
vegi að klæða sig upp.
Fara í pallíetturnar sem
þú keyptir þér fyrir jólin
en nenntir svo ekki
að klæðast í jóla-
boðinu, blása á sér
hárið, naglalakka sig
og setja á sig varalit.
Vertu stjarnan á þorrablótinu!
Dúskaeyrna-
lokkar úr Lindex.
Í vorlínu Chanel eru rauðar varir áberandi
ásamt gylltum augnskugga. Því ekki að
prufukeyra þetta útlit á þorrablótinu?
S
elma flutti í Garðabæinn fimm ára að
aldri og gekk þar í skóla. Síðan flutti
hún til Reykjavíkur og bjó þar í 22
ár. Hún segist vera nýkomin aftur
heim, í Sjálandshverfið. Henni er því
ljúft og skylt að stýra einum stærsta viðburði
bæjarfélagsins um þessar mundir.
„Ég datt inn í bransann að vera með stórar
árshátíðir fyrir nokkrum árum, nánar tiltekið
árið 2016. Mig langar ekki að segja of mikið frá
því hvernig þorrablótið verður en ég lofa ein-
stakri skemmtun og frábærri tónlist.“
Vill láta gott af sér leiða
Hvað er á dagskrá á næstunni?
,,Ég er mikið að stýra veislum
um þessar mundir. Ég syng mik-
ið og svo er ég að fara að leik-
stýra verki í Þjóðleikhúsinu í
vor. Það er ekki tímabært að
tala um hvaða verk það er á
þessari stundu. En það er
kominn tími til að ég hitti mitt
listræna teymi og við búum
saman til rammann utan um
verkið. Síðan er ég mikið í því að
gifta fólk, stjórna nafngiftum og
síðan mun ég taka að mér ferm-
ingar í vor.“ Selma tók námskeið í að
vera athafnastjóri hjá Siðmennt síðasta
sumar og hefur því rétt til þess að fram-
kvæma þessar athafnir á vegum Siðmenntar.
Hún segir þetta starf þjóna vel hugsjónum
hennar sem eru í anda húmanískra kenninga.
Hún aðhyllist siðfræðikenningar þeirra og alla
hugsun sem miðast að því að miðla kærleika og
fallegri hugsun út í samfélagið.
,,Ég fór í þetta eftir að hafa verið að leita að
tilgangi lífsins og þeirri andlegu næringu sem
við öll þurfum á að halda. Ég trúi ekki á neitt yf-
irnáttúrulegt í þessu lífi og lifi frekar eftir sið-
ferðislegum og heimspekilegum kenningum. Ég
er virðingu fyrir ást og kærleik, umburðalyndi
og náungavinsemd.“
Selma segir að hún hafi verið leitandi lengi
þegar kom að trúmálum og þegar hún hafi
kynnst Siðmennt hafi hún uppgötvað að margt
af því sem þau boðuðu var í anda þeirrar lífs-
skoðunar sem hún er með.
,,Ég vildi láta gott af mér leiða. Eins finnst
mér þetta frábær leið til að gefa af mér til sam-
félagsins. Það er gefandi og dásamlegt starf að
vera athafnastjóri.“
Að stugga við og ögra
Lítur þú á öll störfin sem þú vinnur sem þjón-
ustu við samfélagið?
,,Í leikhúsinu erum við að fræða fólk. Hreyfa
við fólki, skemmta því og stugga við. Jafnvel að
ögra. Við fáum fólk til að hlæja, gráta, hlusta og
læra ef svo má segja.“
Hvað með sönginn, við sem fylgdumst með
þér koma fram í fyrstu skiptin og syngja vitum
að söngurinn bjó innra með þér og kom frekar
fullskapaður út frá byrjun. Ertu sammála því?
,,Já ætli það megi ekki segja það bara.
Mér hefur alltaf þótt gaman að syngja og
ég hef lært ýmislegt í söng frá því ég kom
fram fyrst. Ég hef lært meiri tækni, að
stjórna röddinni og fleira. En það er
margslungið að halda öllu við, ég er ennþá
að syngja en hef lagt meiri stund á leik-
húsið svo dæmi séu tekin.“
Þegar kemur að því að leikstýra þá er
eitthvað sem lifnar innra með henni þegar
hún segir: ,,Ég elska að leikstýra. Það hefur
verið mín aðalstarfsgrein frá árinu 2007. En ég
hef leikið endrum og sinnum og það er gaman
líka. Í raun alveg frábært að fá að standa á svið-
inu og túlka ólíkar persónur.“
Hvernig finnst Selmu að vera að þroskast
með aldrinum?
,,Ég finn að með vaxandi aldri þá átta ég mig
á því að það er stöðug vinna að vera maður
sjálfur. Ég vinn í sjálfri mér á hverjum degi,
legg rækt við sjálfa mig í stað þess að vera í
stöðugu kapphlaupi við lífið. Ég hef verið ein-
stæð móðir lengi og þá eru öll verk á mínum
höndum. Maður er stöðugt með hugann við
næstu mánaðamót. En ég ákvað árið 2017 að
kaupa mér árskort í Hilton Spa. Ég fer þangað
til að fá axlanudd, hugleiða en ekki einvörðungu
að fá six pack og að keppast að því að hafa eitt-
hvert útlit. Þessi ákvörðun hefur gefið mér
mikið. Ákveðin sjálfsást sem ég hef gefið mér
nú í eitt og hálft ár. Það er mikilvægt að við
elskum okkur sjálf, kannski meira en við ætl-
umst til að aðrir geri, leyfa okkur að slaka á,
staldra við og gefa heilsunni gaum. Það er svo
auðvelt að klessa á vegg, ég hef gert það sjálf og
legg því mikið upp úr því að halda í góða heilsu,
jafnvægi og að ástunda það sem gefur mér þá
sjálfsvirðingu sem ég þarf að hafa í þessu lífi.“
Selma er með þetta þögla öryggi sem er svo
eftirsótt.
Hún er líka alltaf í góðu formi.
Mætir með læti
,,Þegar kemur að hreyfingu þá hef ég reynt
margt. Sem dæmi langaði mig lengi að líka vel
við jóga. En það var aldrei fyrir mig. Mér bara
hundleiddist í tímunum. Ég þarf að stunda
hreyfingu, þar sem ég fæ útrás, ég geri það á
minn hátt, fer svo og teygi og hugleiði eftir æf-
ingar. Það er allt leyfilegt, og maður á einmitt
að gera það sem manni finnst gaman.“
Hverju lofar þú gestum sem ætla að mæta á
þorrablótið að þessu sinni? ,,Ég mun mæta og
vera með læti, gleðjast með fólki, syngja og
dansa og hafa rosalega gaman. Markmiðið er að
fólk skemmti sér sem best og fái eitthvað pínu-
lítið gott í sálartetrið í leiðinni.“
Hvað með dressið?
,,Ég verð í nokkrum geggjuðum dressum.
Sérsaumuðum kjólum sem og einhverju sem ég
hef verslað erlendis. Maður getur ekki látið sjá
sig í sama dressinu allt kvöldið. Það verður
glimmer og gleði.“
Ertu með tískuráð fyrir gestina? ,,Guð, ég
veit ekki. Held ég sé ekki sérfræðingur í því, en
kannski bara að fólk hafi það hugfast að það
sem lætur manni líða vel, fær mann til að geisla.
Ætli það sé ekki það sem ég hef helst í huga á
kvöldum sem þessum.“
„Ég er komin heim!“
Selmu Björnsdóttur er margt til
lista lagt. Hún er frábær söngkona
eins og flestir vita. Hún hefur hæfi-
leika á sviði leiklistar, leikstjórnar og
dans svo dæmi séu tekin. Hún hef-
ur einnig tekið að sér að vera
veislustjóri á stórum árshátíðum og
öðrum viðburðum. Hún verður
veislustjóri þorrablóts Stjörnunnar
að þessu sinni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Selma er mikil fjölskyldu-
manneskja. Hér er hún
með börnin sín tvö.
Selma kom fram í dags-
ljósið nánast með full-
skapaða rödd til að
syngja frá upphafi að
mati margra.
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019