Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Umsóknarfrestur 15. febrúar 2019 Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál Liðsauki á samgöngusvið EFLA verkfræðistofa leitar að öflugu starfsfólki á samgöngusvið fyrirtækisins. EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki sem starfar á öllum helstu sviðum verkfræði og tækni. EFLA býður upp á afbragðs starfsumhverfi, áhugaverðan starfsvettvang í alþjóðlegu umhverfi og sterka liðsheild tæplega 400 samhentra starfsmanna. ÍSLAND • NOREGUR • SVÍÞJÓÐ • SKOTLAND • FRAKKLAND • ÞÝSKALAND • PÓLLAND • TYRKLAND • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum • Góð almenn tölvukunnátta • Gott vald á íslensku og ensku, Norðurlandamál er kostur Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum vefsíðu EFLU, efla.is/laus-storf fyrir 15. febrúar næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar 412 6000 eða job@efla.is Umferðar- og skipulagssvið: Fjölbreytt verkefni á sviði umferðarskipulags, umferðartækni og forhönnunar mannvirkja með áherslu á reynslu í verkefnastýringu í þess konar verkefnum. Vegasvið: Verkefni sem snúa að veg- og gatnahönnun, viðhaldi vega, eftirliti með gatnaframkvæmdum og hönnunarstjórnun. Brúarsvið: Viðfangsefnin eru hönnun nýrra brúarmannvirkja á Íslandi og í Noregi, ásamt hönnun styrkinga og greiningu á mannvirkjum í rekstri. Sérstaklega er sóst eftir starfsfólki með reynslu af þrívíðri hönnun og hönnunarstjórnun. Hæfniskröfur: • Háskólapróf í samgönguverkfræði, skipulagsfræði, byggingarverkfræði eða byggingartæknifræði • Miklir skipulagshæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Kjötafurðastöð KS óskar eftir viðhaldsmanni Við leitum að metnaðar- og ábyrgðarfullum einstaklingi, sem getur unnið sjálfstætt í mjög fjölbreyttu starfi. Um er að ræða almennt viðhald og umsjón og eftirlit með tækjum og mannvirkjum Kjötafurðastöðvar KS á Sauðárkróki. Starfið getur hentað rafvirkja , vélstjóra eða einstaklingi með sambærilega menntun og/eða reynslu. Allar umsóknir óskast sendar á netfangið edda.thordardottir@ks.is Starf rannsóknarlektors við handritasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er laust til umsóknar. Um er að ræða tímabundið fullt starf til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum. Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á rannsóknarsviði stofnunarinnar. Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum, starfsreynslu og ritverkum sýnt fram á kunnáttu í handritafræðum og hafi næga þekkingu og reynslu til að vinna að handritarannsóknum og textaúgáf- um. Góð kunnátta í íslensku máli að fornu og nýju er skilyrði; enn fremur er kunnátta í ensku og dönsku eða öðru norrænu máli nauðsynleg og frekari tungumálakunnátta er kostur. Gerð er krafa um góða samskiptahæfni. Rannsóknir á handritum og útgáfa texta eru hornsteinar starfsins á handritasviði, en auk þess er rannsóknarlektornum ætlað að taka þátt í öðrum verkefnum sem unnið er að á sviðinu, svo sem skráningu handrita og fornbréfa, fræðslu og miðlun. Í starfinu er fólgin 40% rannsóknarskylda. Áætlað er að ráða í starfið frá og með 1. september 2019. Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er farið eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum nr. 40/2006 og reglu- gerðar um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 861/2008. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki- lega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um náms- feril sinn og störf. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur standa að ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækj- endur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknar- verkefni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og netföng tveggja einstaklinga sem eru til þess bærir að veita umsagnir um verk þeirra og hæfni. Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar og skal umsókn- um og fylgigögnum skilað í þríriti til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík eða á rafrænu formi á netfangið sigurborg.stefansdottir@arnastofnun.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðningu í starfið þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðvarður Már Gunnlaugsson, stofustjóri handritasviðs (s. 525 4024, gudvardur.mar.gunnlaugsson@arnastofnun.is). Rannsóknarlektor við handritasvið Árnastofnunar Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.