Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Raðauglýsingar
Skipulagsnefnd Skútustaðahrepps kynnir hér með eftirfarandi skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðrar deiliskipu-
lagsgerðar í Skútustaðahreppi:
Deiliskipulag Höfða:
Markmið deiliskipulagstillögunnar er að vinna skipulag af útvistarsvæðinu Höfða til að móta stefnu um upp-
byggingu stíga og áningarstaða og ákvarða forsendur um framkvæmdir og rekstur á svæðinu. Markmiðið er
að Höfði og Kálfaströnd verði bætt sem útivistarsvæði og áningarstaður og tryggt verði að umferð gesta spilli
hvorki umhverfi né menningarminjum. Áhersla verður lögð á bætt aðgengi og þar með betri stýringu gesta
um svæðið í þeim tilgangi að minnka og dreifa álagi. Bæta á gönguleiðir og tryggja aðgengi fyrir alla þar sem
því verður komið við og lögð verður áhersla á fjölbreytni svæðisins og einkenni. Gert verið ráð fyrir aðstöðu
til fræðslu um sögu svæðisins og umhverfi og fyrir ferðamenn og þjónustu við þá, m.a. með salernum og
aðgangsstýringu þar sem við á.
Deiliskipulag Tengivirkis á Hólasandi:
Bygging tengivirkis á Hólasandi er hluti af framkvæmdum við Hólasandslínu 3, sem áætlað er að liggi á milli
tengivirkis á Rangárvöllum á Akureyri og fyrirhugaðs tengivirkis á Hólasandi. Jafnframt munu núverandi raflínur
frá Kröflu og Þeistareykjum tengjast tengivirkinu.
Hólasandslína 3 verður hluti meginflutningskerfis raforku. Tilgangur Landsnets með byggingu línunnar er að
auka flutningsgetu og bæta stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi, auka hagkvæmni í orku-
vinnslunni með sterkari samtengingu virkjanasvæða og þjóna núverandi starfsemi á Norður- og Austurlandi
auk þeirrar uppbyggingar sem reikna má með á næstu áratugum. Framkvæmdirnar eru einnig mikilvægar fyrir
flutningskerfi landsins í heild sinni þar sem um er að ræða mikilvægan lið í styrkingu á veiku flutningskerfi utan
suðvesturhornsins. Línan mun bæta afhendingaröryggi raforku til notenda á Norður- og Austurlandi
Breyting á deiliskipulagi þéttbýlis Reykjahlíðar:
Tillaga að breyttu deiliskipulagi þéttbýlis Reykjahlíðar er sett fram þar sem óskað hefur verið eftir stækkun
á verslun Samkaupa. Einnig er áætlað að byggja þjónustukjarna á svæðinu þar sem m.a. gert er ráð fyrir
veitingastað, skrifstofuhúsnæði, áfengisverslun, bankastofnun, almennum snyrtingum o.fl. Mikill fjöldi
ferðamanna sækir þjónustu sem þarna er boðið uppá og skapast oft á tíðum vandamál með bíla- og rútu-
stæði. Nauðsynlegt er að stækka bílastæði og gera ráð fyrir sérstökum stæðum fyrir rútur og bíla með ferða-
vagna. Í breytingartillögunni verða metnir byggingarmöguleikar vestan Helluhrauns. Þar kemur til greina að
byggja lágreist íbúðarhús sem falla vel að aðliggjandi byggð.
Athugasemdir við skipulagslýsingar:
Þegar vinna við gerð deiliskipulagstillögu hefst, skal sveitarstjórn taka saman lýsingu á skipulagsverkefninu.
Í skipulagslýsingu koma fram áherslur sveitarstjórn við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og
fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, svo sem um kynningu og samráð við skipulagsgerðina
gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.
Skipulagslýsingar skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 munu liggja frammi á skrifstofu Skútustaða-
hrepps frá og með fimmtudeginum 31. janúar 2019 til og með fimmtudeginum 21. febrúar 2019. Lýsingarnar
verða einnig aðgengilegar á sama tíma á heimasíðu Skútustaðahrepps: www.skutustadahreppur.is undir:
Skipulagsauglýsingar (hnappur efst á forsíðu). Þeim sem vilja gera athugasemdir við lýsingarnar eða koma
með ábendingar er gefinn frestur til og með 21. febrúar 2019 til að koma þeim skriflega á framfæri til skrifstofu
Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn og/eða á tölvupósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Guðjón Vésteinsson,
Skipulagsfulltrúi Skútustaðahrepps.
Auglýsing um fyrirhugaða deiliskipulagsgerð
í Skútustaðahreppi
Tilkynningar
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð verður haldið að Hlíðasmára 1, 202 Kópavogi 2.hæð.
Hlutafjáreign í einkahlutafélaginu Kuldi ehf., kt. 470915-0210 eign
Jóns Óla Ólafssonar, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitar-
félaga, fimmtudaginn 7. febrúar nk. kl. 10:00.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
30. janúar 2019
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á
henni sjálfri, sem hér segir:
Birkihlíð 6, Hafnarfjörður, fnr. 221-7233, þingl. eig. Kristín Jóhanna
Ágústsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 5. febr-
úar nk. kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
30. janúar 2019
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Leirubakki 2, Seyðisfjörður, fnr. 216-8492, þingl. eig. Vilhjálmur
Konráðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 5. febrúar
nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Austurlandi
30. janúar 2019
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Litla-Holtsland, Dalabyggð, fnr. 137871, þingl. eig. Fóðuriðjan
Ólafsdal ehf., gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 5. febrúar
nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
30. janúar 2019
Tilboð/Útboð
Lýsing á breytingu á aðal-
og deiliskipulagi á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu á
breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017
vegna Skógarhverfis og gerð deiliskipulags fyrir
3. og 4. áfanga Skógarhverfis skv. 30. gr. og
40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Aðalskipulagsbreytingin nær til svæða Íb-13B í
kafla 3.3.2. íbúðabyggð og O-9 og O12 í kafla
3.3.6 opin svæði til sérstakra nota.
Deiliskipulagið verður unnið í samræmi við
meginatriði rammaskipulagsins frá 2005 með
breyttum mörkum í norðri og austri.
Hægt er að nálgast lýsinguna er á heimasíðu
Akraneskaupstaðar www.akranes.is og í
þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.
Ábendingum varðandi tillögugerðina eiga að
vera skriflegar og berast fyrir 15. febrúar 2019 í
þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18
eða á netfangið skipulag@akranes.is
Skógarhverfi 3. áfangi
Sviðstjóri
skipulags og
umhverfissviðs
Dreifingardeild Morgun-
blaðsins leitar að
dugmiklu fólki 13 ára og
eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga
til laugardaga og þarf að vera
lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar
í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða
líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi