Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 6

Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 Seltjarnarnesi Spennandi störf í boði Hjúkrunardeildarstjórar – Hjúkrunarfræðingar – Sjúkraliðar – Starfsfólk við aðhlynningu – Iðjuþjálfar – Sjúkraþjálfarar – Húsvörður Leitað er eftir áhugasömu fólki til starfa á nýja 40 rýma hjúkrunarheimilinu að Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi. Í boði er dagvinna- kvöld-helgar-og næturvaktir Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2019. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf 1. mars eða eftir nánari samkomulagi. Upplýsingar gefur Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og Kristín Sigurþórsdóttir mannauðsstjóri: sími 560-4107. Sótt er um á heimasíðu www//sunnuhlid.is merkt Nes-fyrir framan starfið sem sótt er um. Nýtt hjúkrunarheimili Hjúkrunarheimilið Seltjarnarnesi, Safnatröð 1, 170 Seltjarnarnes Við finnum rétta einstaklinginn í starfið www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Tillögur átakshóps stjórn- valda í húsnæðismálum eru vel unnar og gott innlegg í umræðuna að mati BSRB. Fagna ber samstöðu sem hef- ur náðst um aðgerðir. Nú þurfa stjórnvöld að hafa hraðar hendur og fjármagna tillögurnar og tryggja að þær nái fram að ganga. Þetta seg- ir í tilkynningu frá BSRB sem send var fjölmiðlum í gær. Mikilvægt er að tillögum um áframhaldandi uppbygg- ingu almennra íbúða verði fylgt eftir. Einnig að ríki og sveitarfélög auki fjárveit- ingar í stofnframlög á næstu árum. Jafnframt er þarft að skoða tekjumörk leigjenda í almenna íbúðakerfinu og að lækka fjármagnskostnað þeirra félaga sem standa að uppbyggingu þar til að tryggja framgang kerfisins. Þá er jákvætt að átaks- hópurinn taki undir áherslur BSRB um stuðning við önnur íbúðafélög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Þörfum ólíkra hópa sé mætt BSRB telur mikilvægt að byggt sé í samræmi við þörf- ina hverju sinni. Til þess þarf að efla upplýsingaöflun en út frá henni má sjá betur þörf- ina og koma í veg fyrir eins- leita uppbyggingu dýrari íbúða. Byggja verði íbúðir sem tekjulágir hópar á vinnu- markaði hafi svigrúm til að kaupa. „Nú hafa fulltrúar stjórn- valda, sveitarfélaga og heildarsamtaka launafólks og atvinnurekenda sameinast um hvernig eigi að bregðast við uppsöfn- uðum skorti á íbúðum sem leitt hefur til mikillar verðhækk- unar á íbúða- og leigumarkaði og húsnæðis- óöryggis. Það gefur okkur von um að húsnæðisþörf ólíkra hópa verði mætt. Það á að vera forgangsverkefni stjórnvalda að húsnæð- iskostnaður lækki og að tryggt verði nægilegt fram- boð á húsnæði svo að fólk hafi raunverulegt val um hvort það eigi eða leigi húsnæði,“ segir Sonja Ýr Þorbergs- dóttir, formaður BSRB, í ti- kynningu. Eftir henni er enn fremur haft: Verkalýðshreyfingunni að þakka „Það er mjög jákvætt að húsnæðismálin eru loksins komin á dagskrá og það er ekki síst verkalýðshreyfing- unni að þakka. Afrakstur um- fangsmikillar vinnu liggur nú fyrir og mikilvægt að unnið sé hratt að útfærslum tillagn- anna því verkefnið skiptir fjölmarga gríðarlegu máli. Alltof stór hluti launa of margra fer nú í húsnæðis- kostnað og BSRB leggur áherslu á að unnið sé hratt og vel að lækkun hans. Að sama skapi þarf að auka framboð svo að allir eigi kost á því að búa í viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjavík Hrinda þarf tillögum í húsnæðismálum hratt í framkvæmd enda skiptir það fjölskyldurnar í landinu miklu. Tillögur verði fjármagnaðar  Gott innlegg í húsnæðismálin Sonja Ýr Þorbergsdóttir Þó að Norður- lönd séu framar- lega víðvíkjandi jafnrétti kynj- anna eru launa- munur, valda- ójafnvægi og útilokun enn út- breidd vandamál á svæðinu. Á þemaþingi Norðurlandaráðs verður sérstaklega fjallað um jafnrétti á vinnumarkaði. Málefnið er beintengt áætlun SÞ um sjálfbærni til ársins 2030 og felur í sér útfærslu á 5. heimsmarkmiði sem jafn- rétti kynjanna. Þrátt fyrir alla þá vinnu sem lögð hefur verið í að jafna stöðu kynjanna á vinnu- markaði síðustu áratugi, eig- um við enn langt í land með að ná markmiðinu, fullyrðir Jessica Polfjärd, forseti Norðurlandaráðs, í tilkynn- ingu. Í formennskuáætlun Sví- þjóðar verður því velt upp hvaða aðgerðir þurfi til að auka lýðræðislega þátttöku í samfélaginu. Staða kvenna af erlendum uppruna er sér- staklega viðkvæm og öll nor- rænu löndin standa frammi fyrir hliðstæðum áskorunum varðandi aðlögun og þátt- töku. Fjalla um ESB Til viðbótar við jafnrétti kynjanna, koma kosningar til Evrópuþingsins til með að vera í brennidepli á þema- þinginu sem verður í Kaup- mannahöfn 8. og 9. apríl. Þingmennirnir munu fjalla um Norðurlönd og ESB og hvernig norrænu löndin skuli starfa innan ESB eftir kosn- ingarnar. Þingið verður hald- ið í Kaupmannahöfn dagana 8.-9. apríl. Kaupmannahöfn Við Nýhöfnina á fallegum degi. Jafnrétti í norrænum brennidepli Morgunblaðið/Sigurður Bogi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.