Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 7

Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 7 Sálfræðingur Skólaþjónusta Árborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á starfi í skólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun, samstarf fagsviða og stofnana, m.a. um þróun úrræða fyrir börn og foreldra. Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 9500 íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: - ráðgjöf til nemenda, foreldra og kennara, m.a. v/hegðunar- og tilfinningavanda barna - þverfaglegt samstarf um málefni barna í leik- og grunnskólum - sálfræðilegar skimanir og greiningar - fræðsla og námskeið fyrir foreldra, börn og starfsfólk skóla Menntunar- og hæfniskröfur: - kandidatspróf (cand. psych. gráða) í sálarfræði - reynsla af starfi með börnum æskileg - góðir skipulagshæfileikar - hæfni í mannlegum samskiptum Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri, sími 480-1900, 852-3918. Áhugasamir geta sent umsóknir á skolathjonusta@arborg.is eða í pósti merktum fræðslusviði Árborgar v/sálfræðings, Austurvegi 2, 800 Selfoss. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2019. Miðað er við að ráðið verði í stöðuna frá 1. mars nk. eða eftir samkomulagi. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum. Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Starf rannsóknarlektors við handritasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er laust til umsóknar. Um er að ræða tímabundið fullt starf til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum. Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á rannsóknarsviði stofnunarinnar. Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum, starfsreynslu og ritverkum sýnt fram á kunnáttu í handritafræðum og hafi næga þekkingu og reynslu til að vinna að handritarannsóknum og textaúgáf- um. Góð kunnátta í íslensku máli að fornu og nýju er skilyrði; enn fremur er kunnátta í ensku og dönsku eða öðru norrænu máli nauðsynleg og frekari tungumálakunnátta er kostur. Gerð er krafa um góða samskiptahæfni. Rannsóknir á handritum og útgáfa texta eru hornsteinar starfsins á handritasviði, en auk þess er rannsóknarlektornum ætlað að taka þátt í öðrum verkefnum sem unnið er að á sviðinu, svo sem skráningu handrita og fornbréfa, fræðslu og miðlun. Í starfinu er fólgin 40% rannsóknarskylda. Áætlað er að ráða í starfið frá og með 1. september 2019. Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er farið eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum nr. 40/2006 og reglu- gerðar um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 861/2008. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki- lega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um náms- feril sinn og störf. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur standa að ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækj- endur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknar- verkefni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og netföng tveggja einstaklinga sem eru til þess bærir að veita umsagnir um verk þeirra og hæfni. Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar og skal umsókn- um og fylgigögnum skilað í þríriti til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík eða á rafrænu formi á netfangið sigurborg.stefansdottir@arnastofnun.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðningu í starfið þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðvarður Már Gunnlaugsson, stofustjóri handritasviðs (s. 525 4024, gudvardur.mar.gunnlaugsson@arnastofnun.is). Rannsóknarlektor við handritasvið Árnastofnunar www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi Menntunar- og hæfniskröfur · Leikskólakennaramenntun · Reynsla af starfi í leikskóla kopavogur.is Lækur er sex deilda leikskóli. Í Læk er lagt upp með lýðræðislega nálgun í starfi með börnunum. Lækur er vináttuleikskóli sem vinnur með Blæ-vináttuverkefni í samvinnu við Barnaheill. Allar deildir vinna með námsefnið Lubbi finnur málbein. Leikskólinn er staðsettur í Kópavogsdal þar sem stutt er í góð og skemmtileg útivistarsvæði á öllum árstímum. Einkunnarorð leikskólans eru sjálfræði, virðing og hlýja. Ráðningartími og starfshlutfall Starfið er laust nú þegar. Starfshlutfall er 100% Menntunar- og hæfniskröfur · Leikskólakennaramenntun · Reynsla af starfi í leikskóla · Reynsla af stjórnun æskileg · Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum · Gott vald á íslenskri tungu · Góð tölvukunnátta Nánari upplýsingar Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FSL. Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags stjórnenda leikskóla en starfslýsingar má finna á http://ki.is Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veita: Kristín Laufey Guðjónsdóttir leikskólastjóri, kristinlaufey@kopavogur.is sími 441 5900 / 840 2685 Guðrún Bjarnadóttir leikskólaráðgjafi, gudrunb@kopavogur.is sími 441 0000 / 860 9166 Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is Aðstoðarleikskólastjóri í Læk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.