Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 5

Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 5 Fræðslufulltrúi Vatnajökulsþjóðgarðs Laust er til umsóknar starf fræðslufulltrúa Vatna jökulsþjóðgarðs. Um er að ræða nýtt starf til að fylgja eftir fræðsluáætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og uppbyggingarstarfi við miðlun upplýsinga. Starfið heyrir beint undir framkvæmdastjóra þjóðgarðsins en því skal sinna frá einhverri af meginstarfsstöðum þjóðgarðsins á landsbyggðinni; í Ásbyrgi, Mývatnssveit, á Skriðuklaustri/Fellabæ, Höfn í Hornafirði, Skaftafelli eða Kirkjubæjarklaustri. Helstu verkefni og ábyrgð • Þróa og framfylgja fræðsluáætlun þjóðgarðsins í samvinnu við þjóðgarðsverði/starfsfólk • Umsjón með fræðslu fyrir gesti þjóðgarðsins og rekstraraðila í þjóðgarðinum • Umsjón með skiltagerð og merkingum • Umsjón með og samræmingu á útgáfu á vegum þjóðgarðsins • Umsjón með vefssvæði og samfélagsmiðlum þjóðgarðsins • Í starfinu felast m.a. ferðalög milli svæða þjóðgarðsins • Önnur tilfallandi verkefni Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Leiðtogahæfni og frumkvæði til að hvetja aðra til árangurs • Þekking og reynsla á starfsemi þjóðgarða, náttúru vernd og ferðamálum • Reynsla af landvörslu, umhverfis- og náttúrutúlkun eða grenndarkennslu er kostur • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund • Nákvæmni, faglegur metnaður og skipulagsfærni • Reynsla og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku • Tölvufærni og geta til að vinna eftir verkferlum • Þekking á og reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019. Sótt er um starfið á Starfatorgi og skal umsóknum fylgja ítarlegt yfirlit um menntun og starfsferil. Hvetjum jafnt konur sem karla að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019 Umsóknareyðublöð vegna starfsins eru á Starfatorgi Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Smáradóttir – ingibjorg@vjp.is – s 575 8403 Leikskólastjóri Holti Reykjanesbær auglýsir starf leikskólastjóra við leikskólann Holt laust til umsóknar. Leikskólinn er fjögurra deilda með um 95 börn á aldrinum tveggja til sex ára. Í skólanum er starfað í anda Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing, sköpun og þekkingarleit. Leikskólinn er staðsettur þar sem stutt er í skemmtileg og fjölbreytt útivistarsvæði. Útinámssvæði er í nálægð skólans sem byggt var upp af leikskólum og grunnskólanum í hverfinu. Holt hefur verið þátttakandi í Evrópusamstarfi Erasmus+ og eTwinning og hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni. Leikskólinn er einnig þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi leikskóli á vegum Embættis landlæknis. Holt hefur fjórum sinnum fengið Grænfánann. Leitað er að metnaðarfullum stjórnanda sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur góða þekkingu á leikskólastarfi. Starfssvið • Vera faglegur leiðtogi • Bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi leikskólans, stjórna daglegri starfsemi hans og hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu leikskólans • Vinna náið með starfsfólki að því að skapa frjótt námsumhverfi þar sem vellíðan er tryggð og styrkleiki hvers og eins fá að njóta sín • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins Menntunar- og hæfniskröfur • Leikskólakennaramenntun • Framhaldsskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af stjórnun og rekstri • Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf • Góðir samskipthæfileikar og sveigjanleiki í starfsháttum • Framsækni og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi • Hæfni í mannlegum samskiptum Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2019. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókninni fylgi starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda í leikskólum. Umsækjendur eru beðnir að sækja um rafrænt á ráðningarvef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is undir Laus störf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar ingibjorg.b.hilmarsdottir@reykjanesbaer.is Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar: kopavogur.is Grunnskólar Aðstoð í mötuneyti í Kópavogsskóla Aðstoðarskólastjóri í Snælandsskóla Deildarstjóri í Snælandsskóla Forfallakennari í Hörðuvallaskóla Skólaliði í Álfhólsskóla Leikskólar Deildarstjóri í Austurkór Leikskólakennari í Arnarsmára Leikskólakennari í Austurkór Leikskólakennari í Baug Leikskólakennari í Efstahjalla Leikskólakennari í Læk Leikskólasérkennari í Læk Leikskólakennari í Sólhvörf Leikskólasérkennari í Sólhvörf Stjórnsýslusvið Innheimtufulltrúi í ármáladeild Velferðarsvið Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk Umsóknir ásamt upplýsingum um störfin eru á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is. Laus störf hjá Kópavogsbæ Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is 200 mílur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.