Morgunblaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
Körfuboltinn á sviðið þessa
dagana og enn sýnir það sig hve
gott skref það var að búa til eins
konar bikarúrslitaviku með því að
færa undanúrslit keppninnar í
Laugardalshöllina. Veislan nær há-
marki í dag þegar tvö allra bestu
karlalið landsins í vetur mætast og
vonandi tekst Stjörnunni einnig að
búa til góðan úrslitaleik gegn ógn-
arsterku liði Vals kvennamegin.
Ekki er hægt að segja að allt
hafi verið upp á 10 í Laugardals-
höllinni í ljósi slagsmála stuðn-
ingsmanna Stjörnunnar og ÍR í
fyrrakvöld. Í annað sinn á skömm-
um tíma varpa fáeinir svartir sauð-
ir dökkum skugga á körfuboltann
því aðeins er hálfur mánuður síð-
an áhorfandi á Sauðárkróki beitti
Kristófer Acox kynþáttaníði. Því
miður virðist ekki takast að finna
þann seka í því máli, sem vænt-
anlega yrði þá refsað með að
minnsta kosti löngu banni á leiki í
Síkinu.
Aðalsökudólg í átökum
stuðningsmanna Stjörnunnar og
ÍR ætti aftur á móti að vera auð-
velt að finna af ljós- og sjónvarps-
myndum og sjá til þess að viðkom-
andi stundi sín slagsmál annars
staðar, helst í einrúmi, og mæti
ekki á fleiri körfuboltaleiki á næst-
unni.
Fjöldi sjálfboðaliða og
starfsfólks, fyrir utan auðvitað
leikmennina sem allt snýst um,
sér til þess að bikarvikan í Höllinni
sé sú skemmtun sem hún alla
jafna er. Síðustu menn út úr Laug-
ardalshöll í fyrrakvöld voru hins
vegar landsliðsþjálfararnir Craig
Pedersen og Finnur Freyr Stef-
ánsson. Þeir virtust hafa margt að
ræða eftir undanúrslitaleiki karla-
liðanna enda skammt í að sumir
þeirra leikmanna sem spiluðu
þessa leiki mæti aftur í Höllina og
spili fyrir Íslands hönd gegn Portú-
gal næsta fimmtudagskvöld. Þar
leikur Jón Arnór Stefánsson sinn
kveðjulandsleik, 100. landsleikinn.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þýskaland
Augsburg – Bayern München................ 2:3
Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs-
burg vegna meiðsla.
Staðan:
Dortmund 21 15 5 1 54:23 50
Bayern Münch. 22 15 3 4 50:26 48
M’gladbach 21 13 3 5 41:21 42
RB Leipzig 21 11 5 5 38:18 38
E.Frankfurt 21 9 6 6 40:27 33
Leverkusen 21 10 3 8 37:32 33
Wolfsburg 21 9 5 7 32:30 32
Hertha Berlín 21 8 7 6 34:31 31
Hoffenheim 21 7 9 5 41:32 30
Werder Bremen 21 8 6 7 36:32 30
Mainz 21 7 6 8 23:33 27
Düsseldorf 21 7 4 10 25:39 25
Freiburg 21 5 8 8 29:37 23
Schalke 21 6 4 11 25:32 22
Augsburg 22 4 6 12 31:40 18
Stuttgart 21 4 3 14 17:47 15
Hannover 21 3 5 13 20:44 14
Nürnberg 21 2 6 13 17:46 12
B-deild:
Sandhausen – Darmstadt ....................... 1:1
Rúrik Gíslason lék allan leikinn með
Sandhausen og lagði upp markið.
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Frakkland
Nimes – Dijon........................................... 2:0
Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamanna-
bekknum hjá Dijon.
Belgía
Standard Liege – Lokeren ..................... 3:1
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Lokeren.
Danmörk
SönderjyskE – AGF................................. 0:2
Eggert Gunnþór Jónsson sat á vara-
mannabekknum hjá SönderjyskE.
Tyrkland
B-deild:
Elazigspor – Genclerbirligi.................... 1:2
Kári Árnason lék allan leikinn með
Genclerbirligi.
Pólland
Pogon Szczecin – Górnik Zabrze .......... 3:1
Adam Örn Arnarson lék allan leikinn
með Górnik Zabrze.
England
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
QPR – Watford ......................................... 0:1
Ítalía
Juventus – Frosinone .............................. 3:0
Spánn
Eibar – Getafe .......................................... 2:2
Lengjubikar karla
A-deild, 2. riðill:
Njarðvík – Víkingur Ó. ........................... 1:0
KSÍ birti ekki leikskýrsluna í gær.
A-deild, 3. riðill:
HK – Fjölnir ............................................. 1:2
Brynjar Jónsson 6. – Guðmundur K.Guð-
mundsson 39., Ingibergur Sigurðsson 86.
Fram – Afturelding................................. 1:3
Jökull Steinn Ólason – Andri Freyr Jón-
asson, Ragnar Már Lárusson, Róbert Orri
Þorkelsson.
A-deild, 4. riðill:
Víkingur R. – FH ..................................... 2:3
Rick Ten Voorde 63., Halldór Smári Sig-
urðsson 66. – Jákup Thomsen 18., 82., Jón-
atan Ingi Jónsson 77.
KNATTSPYRNA
Grill 66 deild kvenna
Afturelding – Fram U.......................... 29:27
Staðan:
Afturelding 15 12 1 2 389:306 25
ÍR 15 12 0 3 435:346 24
Fylkir 14 10 1 3 383:332 21
Valur U 14 9 1 4 392:332 19
FH 16 9 1 6 419:355 19
Fram U 16 9 1 6 424:376 19
Grótta 14 5 1 8 311:348 11
HK U 14 5 0 9 332:373 10
Fjölnir 15 5 0 10 384:402 10
Víkingur 16 2 0 14 304:423 4
Stjarnan U 15 1 0 14 290:470 2
Þýskaland
B-deild:
Dormagen – Hüttenberg .................... 21:20
Ragnar Jóhannsson skoraði 3 mörk fyrir
Hüttenberg.
Frakkland
Chambray Touraine – Dijon ............. 24:25
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði ekki
fyrir Dijon.
Svíþjóð
Kristianstad – Skuru........................... 22:26
Andrea Jacobsen skoraði 1 mark fyrir
Kristianstad.
Austurríki
Aon Fivers – Schwaz........................... 31:26
Ísak Rafnsson var ekki í leikmannahópi
Schwaz.
HANDBOLTI
Norðmaðurinn Henrik Kristoffersen varð í gær heims-
meistari í stórsvigi í Åre í Svíþjóð. Eftir góða fyrri ferð var
Kristoffersen í þriðja sæti og mjakaði sér upp um tvö til
viðbótar í frábærri seinni ferð. Kristoffersen er þekkt nafn
eftir að hafa fengið silfur í greininni á síðustu Ólympíu-
leikum. Fyrir fram bjuggust þó flestir við að heims- og ól-
ympíumeistarinn Marcel Hirscher frá Austurríki myndi
sigra en hann varð að gera sér silfrið að góðu.
Kristoffersen státar af verðlaunum frá tvennum Ólymp-
íuleikum en hafði aldrei fyrr unnið til verðlauna á heims-
meistaramóti í alpagreinum. Sturla Snær Snorrason var
eini Íslendingurinn sem komst í aðalkeppnina, hann varð í
20. sæti undankeppninnar í fyrradag. Sturla féll hinsvegar
í fyrri ferðinni í gær eins og margir fleiri keppendur.
Heimsmeistaramótinu lýkur um helgina. Í dag keppa all-
ir átta Íslendingarnir, en þá er undankeppni í svigi karla og
síðan aðalkeppnin í svigi kvenna. Íslensku konurnar fjórar
fara allar beint í hana, án undankeppni. Að lokum er keppt
til úrslita í svigi karla á morgun.
sport@mbl.is
Norskur sigur í stórsviginu í Åre
AFP
Sigri hrósandi Henrik Kristoffersen heldur stoltur um gullverðlaunin eftir stórsvigið í Svíþjóð í gær.
NBA
Gunnar Valgeirsson
Í Los Angeles
Stjörnuleikurinn í NBA deildinni í
körfuknattleik fer fram á morgun og að
venju notum við tækifærið hér á Morg-
unblaðinu að spá í málin á þessum tíma-
mótum.
Það skiptast á skin og skúrir í langri
deildakeppninni, þótt erfitt sé fyrir
margt stuðningsfólk að líta á úrslit ein-
stakra leikja í lengra samhengi. Hár-
missir og hækkandi blóðþrýstingur
vegna tímabundinna erfiðleika uppá-
haldsliða er óþarfur yfir langa deilda-
keppnina. Meðalgeta liðanna jafnar sig
út á endanum.
Í Vesturdeildinni hafa t.d. bæði Gol-
den State Warriors og Houston Rockets
– þau lið sem við á þessum síðum spáð-
um tveimur toppsætunum vestanmegin
– átt erfiða kafla það sem af er, en und-
irritaður er staðfastur í trúnni á að
rjóminn mun fljóta á toppinn á end-
anum í vor vestanmegin.
Toppslagurinn spennandi í
Austurdeildinni
Hver hefð trúað því fyrir keppn-
istímabilið að keppni liðanna í Aust-
urdeildinni yrði meira spennandi og at-
hyglisverðari en Vesturdeildar-
slagurinn? Fimm jöfn og góð lið eru í
daglegri baráttu um toppsætin og lík-
legt er að sú staða vari út deildakeppn-
ina, þótt Indiana Pacers muni sennilega
gefa eftir á endanum eftir meiðsl besta
leikmanns síns, Victor Oladipo.
Mikið var um pælingar í leik-
mannaskiptum hjá NBA-liðunum und-
anfarnar vikur, en í síðustu viku lokaðist
fyrir gluggann svokallaða fyrir leik-
mannaskipti þetta keppnistímabil.
Í Austurdeildinni er augljóst að for-
ráðamenn þriggja af fjórum topp-
liðunum – Toronto, Milwaukee, og
Philadelphia – reyndu allir að styrkja lið
sín fyrir lok gluggans, enda hafa nú opn-
ast tækifæri fyrir þessi lið að komast í
lokaúrslitin eftir að LeBron James fór
til Los Angeles. Lið hans í Austurdeild-
inni höfðu komist í lokaúrslitin síðustu
átta árin.
„Þessi lið núna vita að þau eiga betra
tækifæri eft, þurfa ekki að yfirbuga Cle-
veland lengur í úrslitakeppninni. Þau
þurfa ekki að eiga við mig lengur, sagði
James um síðustu helgi í viðtali. „Það
var gaman að fylgjast með leik-
mannaskiptunum síðustu dagana, enda
verða þetta hörkuviðureignir í undan-
úrslitunum og úrslitunum í Austurdeild-
inni.“
Philadelphia 76ers fórnaði há-
skólavalrétti og ungum bakverði fyrir
framherjann Tobias Harris frá LA Clip-
pers, en bæði hann og Jimmy Butler eru
með lausan samning í sumar. Ljóst er að
forráðamenn liðsins ætla sér ekkert að
bíða lengur eftir að stjörnuleikmennirnir
Joel Embiid Ben Simmons leiði liðið í
lokaúrslitin. Hann hefur átt góða byrjun
og fellur vel inn í leik liðsins.
Toronto Raptors fyllti skarðið í mið-
herjastöðunni með því að ná í Marc Ga-
sol frá Memphis Grizzlies. Eftir að hafa
fengið Kawhi Leonard – sjálfsagt í eitt
ár áður en að hann ákveður að fara til
annars hvors Los Angeles-liðsins – er
ljóst að á þeim bænum ætla menn sér
ekki að halda aftur af sér. Gasol hefur
einnig byrjað mjög vel og á eftir að vera
lykilmaður fyrir liðið það sem eftir er af
tímabilinu.
Á síðasta klukkutíma leikmannaskipt-
anna ákvað framkvæmdastjóri Milwau-
kee Bucks að fara í veiðina líka og hann
landaði skyttunni Nikola Mirotic frá
New Orleans Pelicans. Með þessu var
topplið Austurdeildarinnar enn sterkara.
Við hér á Morgunblaðinu spáðum
Boston toppsætinu í Austurdeildinni, en
eins og staðan er nú þætti það gott ef lið-
ið næði í þriðja sæti í lok deildakeppn-
innar. Boston tók ekki þátt í neinum al-
varlegum samningaviðræðum um
leikmannaskiptin fyrir lok gluggans.
Danny Ainge, framkvæmdastjóri Bost-
on, og eigendur liðsins hafa að sögn
ákveðið að leikmannahópur liðsins eins
og hann er nú sé nógu góður til að vinna
sigur í Austurdeildinni.
Lítið um hreyfingar vestanmegin
Málin horfa dálítið öðruvísi við í Vest-
urdeildinni, þar sem fæstir fram-
kvæmdastjórar sáu ástæðu að fórna
framtíð liða sinna – aðeins til að tapa
fyrir Golden State í úrslitakeppninni.
Ekkert af toppliðunum fór í alvarleg
leikmannaskipti fyrir lok leikmanna-
Hörkubarátta fjögurra liða í
Að vanda elta allir Golden State Warriors í Vesturdeildinni
Mikilvægur Spænski miðherjinn Marc G
Raptors sem er með næstbesta árangur
Nokkrir íslenskir landsliðsmenn í
knattspyrnu voru á ferðinni með liðum
sínum í Evrópu í gær. Rúrik Gíslason
átti stoðsendingu þegar Íslend-
ingaliðin Sandhausen og Darmstadt
mættust í þýsku B-deildinni. Mark
Sandhausen kom eftir hornspyrnu Rú-
riks sem lék allan leikinn og það gerði
Guðlaugur Victor Pálsson einnig hjá
Darmstadt. Darmstadt er í 13. sæti,
sex stigum frá fallsvæðinu, en Sand-
hausen er í 16. sæti sem er fallsæti
með 17 stig. Liðið hefur aðeins unnið
þrjá leiki af tuttugu og tveimur.
Miðherjinn reyndi Kári Árnason og
samherjar hans í
Genclerbirligi unnu
langþráðan sigur
er liðið lagði Ela-
zigspor á útivelli,
2:1, í B-deild Tyrk-
lands. Kári lék all-
an leikinn hjá
Genclerbirligi sem
var í afar góðum
málum um áramót-
in og með fínt for-
skot á toppi deildarinnar. Liðið tapaði
hins vegar fyrstu fjórum leikjum sín-
um á nýju ári, fyrir leikinn í gær, og
sigurinn því kærkominn. Genclerbir-
ligi er nú í öðru sæti deildarinnar með
44 stig, tveimur stigum minna en topp-
liðið Denizlispor.
Augsburg tókst að skora tvö mörk
gegn þýsku meisturunum Bayern
München í Bundesligunni í gær þótt
Alfreðs Finnbogasonar njóti ekki við
vegna meiðsla. Bayern sigraði 3:2 eftir
að Augsburg komst yfir 2:1.
Ari Freyr Skúlason lék allan tímann
hjá Lokeren sem tapaði 3:1 fyrir
Standard Liege í Belgíu en markið
kom eftir hornspyrnu Ara. Lokeren er
í miklu basli í neðsta sæti deildarinnar.
Stoðsendingar hjá Rúrik og Ara
Rúrik
Gíslason