Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 3
Eitt
ogannað
skipta, enda toppliðin í Vesturdeildinni
öll í góðum málum hvað varðar styrk-
leika leikmannahópsins.
Fjörið vestanmegin er meira í Holly-
wood, þar sem Lakers er vikuleg sápu-
ópera.
Magic Johnson, forseti Los Angeles
Lakers, rembdist eins og rjúpan við
staurinn að ná í stjörnuleikmanninn
Anthony Davis hjá New Orleans Pelic-
ans. Umboðsmaður Davis, sem einnig
er vinur og umboðsmaður LeBron
James, varpaði sprengju í fjölmiðla viku
fyrir lok leikmannaskiptanna um að
hans maður vildi fara frá New Orleans
og að hann væri með ákveðið lið í huga
(þ.e. Lakers).
Þetta reitti skiljanlega forráðamenn
New Orleans til reiði því leikmönnum
og umboðsmönnum er bannað að óska
opinberlega eftir slíku samkvæmt
reglum NBA. Þar að auki eru sár
íþróttaunnenda New Orleans-búa enn
ekki gróin eftir grimmt tap NFL-
ruðningsliðs borgarinnar í undan-
úrslitaleik Saints gegn Los Angeles
Rams um daginn. Alvarleg dómaram-
istök seint í þeim leik tóku unninn leik
úr höndum heimamanna, sem máttu
horfa á Rams liðið í Ofurskálarleiknum.
Þrátt fyrir að Johnson hefði lofað
fjórum góðum ungum leikmönnum,
plús tvo háskólavalrétti, og að taka á sig
erfiðan samning eins leikmanns Pelic-
ans – þ.e. hann bauð allt nema LeBron
James – neituðu forráðamenn New Or-
leans að ræða þau skipti á endanum.
Johnson sat eftir með sárt ennið og er
nú að reyna að ýta undir sjálfstraust
leikmanna sinna eftir þetta leikrit.
Stjörnuleikmenn í lykilstöðu
Sagan um beiðni Davis sýnir enn
einu sinni hve mikil völd stjörnuleik-
menn hafa nú í NBA-deildinni. Ólíkt því
sem knattspyrnuáhugafólk á að venjast
frá Evrópuboltanum, þar sem lið geta
einfaldlega keypt sér það sem þau vant-
ar, er launaþak og háskólaval í NBA.
Það gerir framkvæmdastjórum liðanna
kleift að byggja upp lið og styrkja þau
síðan með leikmannaskiptum.
Þegar LeBron James ákvað að hann
ætti betri kost á að vinna meistaratit-
ilinn með því að yfirgefa Cleveland Ca-
valiers og gera samning við Miami Heat
árið 2010, breytti hann stöðunni enn
frekar með því að fá Chris Bosh hjá To-
ronto Raptors til að koma með sér til
Miami. Þeir voru vinir og með lausan
samning hjá sínum liðum. Með Dwyane
Wade þegar til staðar hjá Miami sköp-
uðu þeir þríeyki stjörnuleikmanna sem
skiluðu tveimur titlum.
Síðan þá hafa ýmsir leikmenn reynt
hið sama og í dag stíla margar stór-
stjörnur á að hafa stjórn á því með hvaða
liði þeir spila, með því að gera samninga
sem þeir geta sagt upp á tveggja eða
þriggja ára fresti.
Þessi staða hefur gert það að verkum
að forráðamenn NBA-liðanna eru lík-
legri en fyrr að gera skammtímaáætl-
anir þegar um leikmannahópa þeirra
ræðir. Mórallinn er að bíða ekki með að
vinna titilinn þegar tækifærið gefst. Það
er nú eða aldrei.
Harden óstöðvandi
James Harden, skotmaskínan hjá
Houston Rockets, hefur verið leikmaður
ársins það sem af er. Hann hefur haldið
Rockets á floti eftir að liðið missti tvo
lykilmenn síðasta sumar og síðan lang-
varandi meiðsl leikstjórnandans Chris
Paul. „Skeggið“ skoraði 42 stig í tapi
gegn Minnesota Timberwolves á mið-
vikudag og hafði því skorað 30 stig eða
meira í 31. leik í röð. Án hans væri Hou-
ston ekki nálægt sætum í úrslitakeppn-
inni.
Það virðist erfitt fyrir margt NBA-
áhugafólk að meta hæfni Hardens vegna
leikstíls hans. Margir telja hann reyna
að fiska of mörg vítaskot í sniðskotum.
Hann einokar boltann líka mjög mikið í
sókn og oft virðist sem samherjar hans
séu til lítils annars en að setja tálma fyrir
hann til að skora.
Ég hef lengi verið einn af þessum
gagnrýnendum, en Harden er í raun ein-
faldlega að gera það sem til þarf til sig-
urs Rockets. Það er undir varnarleik
andstæðinganna og útfærslu dómara á
reglum boltans komið að stöðva hann.
Harden hefur verið óstöðvandi í vetur –
tekur næstum 40% af öllum skotum
Rockets og gefur 40% af öllum körfum
samherja sinna. Andstæðingar hans
verða að taka tillit til mögulegrar stoð-
sendingar hans í sókn og það gefur hon-
um það litla svigrúm sem hann þarf í
skot.
Rétt eins og Boston austanmegin, er
Houston einnig í fimmta sætinu í deilda-
keppninni það sem af er. Með endur-
komu Chris Paul þessa dagana ætti Roc-
kets að komast upp töfluna og ná í þriðja
sætið, því Oklahoma City virðist ekki á
þeim buxunum að gefa eftir annað sætið.
Á meðan bíður Golden State á toppnum
eftir úrslitakeppninni. gval@mbl.is
í Austurdeildinni
AFP
Gasol hefur byrjað vel með Toronto
allra liða í NBA-deildinni.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
Þór Akureyri er með sex stiga for-
skot á toppi 1. deildar karla í körfu-
bolta eftir sannfærandi 99:81-útisigur
á Sindra á Hornafirði í gær. Pálmi Geir
Jónsson átti glæsilegan leik fyrir Þór
og skoraði 35 stig og tók 10 fráköst.
Með sigrinum fór Þór upp í 28 stig, en
Höttur er í öðru sæti með 22 stig,
eins og Fjölnir. Þar á eftir koma Vestri
og Hamar með 20 stig. Liðið í efsta
sæti deildarinnar fer beint upp í efstu
deild.
Víkingur Ólafsvík og FH hafa kom-
ist að samkomulagi um að miðjumað-
urinn Grétar Snær Gunnarsson gangi
til liðs við Víking og hefur hann skrif-
að undir tveggja ára samning við liðið.
Grétar Snær, sem er 22 ára gamall og
hefur spilað samtals 18 leiki með
yngri landsliðunum, var í láni hjá HB í
Færeyjum á síðustu leiktíð og varð
færeyskur meistari með liðinu undir
stjórn Heimis Guðjónssonar. Þá hafa
Ólafsvíkingar samið við Englendinginn
Harley Willard. Hann verður 22 ára
gamall á árinu. Willard er alinn upp í
akademíu Arsenal.
Anthony Martial og Jesse Lingard,
leikmenn enska knattspyrnuliðsins
Manchester United, verða frá keppni
næstu tvær til þrjár vikurnar vegna
meiðslanna sem þeir urðu fyrir í tapi
liðsins gegn Paris SG í 16-liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar á Old Traf-
ford í vikunni. Þetta þýðir að þeir
missa af bikarleiknum gegn Chelsea á
Stamford Bridge á mánudagskvöldið
og sömuleiðis af leiknum gegn Liver-
pool í ensku úrvalsdeildinni sem fram
fer á Old Trafford annan sunnudag.
ALGARVEBIKAR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Ef komið væri haust og íslenska
kvennalandsliðið í knattspyrnu á leið í
sína fyrstu leiki í undankeppni EM
2021 þá hefði Jón Þór Hauksson ekki
valið sama leikmannahóp og hann til-
kynnti í gær. Það er ljóst. Í komandi
leikjum gegn sterkum liðum Kanada og
Skotlands í Algarve-bikarnum, og á æf-
ingum í Portúgal, um næstu mán-
aðamót gefst hinum nýja þjálfara hins
vegar gott tækifæri til að skoða og
meta leikmenn og nýta þannig tíma-
frestinn fram að hausti.
Einna mesta athygli vekur að Jón
Þór skuli skilja Fanndísi Friðriks-
dóttur eftir utan hóps, leikmann sem
alla jafna væri ofarlega á blaði. Fanndís
hefur hins vegar leikið nær sleitulaust
frá vorinu 2017, með Breiðabliki, Mar-
seille í Frakklandi, Val og Adelaide
United í Ástralíu, og þjálfarinn taldi
rétt að gefa henni pásu þó Fanndís
væri ósammála:
„Fanndís er auðvitað frábær fót-
boltamaður, það efast enginn um henn-
ar hæfileika og hún hefur verið lyk-
ilmaður í íslenska landsliðinu í mörg ár.
Það eru augljóslega ekki forsendurnar
fyrir því að hún er tekin út núna,“ sagði
Jón Þór við Morgunblaðið. Hann
kveðst ekki vera að reyna að „stuða“
leikmannahópinn með því að velja ekki
Fanndísi nú, eða Söndru Maríu Jessen
í leikmannahópinn sem vann Skota á
La Manga í janúar. Sandra María, besti
leikmaður síðasta Íslandsmóts, talaði
opinskátt um það hve mikið andlegt
högg það hefði verið að fá ekki sæti í
fyrsta landsliðshópi Jóns Þórs í janúar.
„Við áttum saman spjall. Sandra
María var að fara til Þýskalands og
hefja sinn feril með Leverkusen og við
töldum á þeim tímapunkti að það væri
betra að hún einbeitti sér að því og
kæmi svo með til Algarve. Nú er bara
undir henni komið eins og öllum í hópn-
um að stimpla sig inn,“ sagði Jón.
Margrét Lára Viðarsdóttir og Dagný
Brynjarsdóttir snúa aftur inn í lands-
liðið eftir barneignir og meiðsli. Dagný
lék síðast alvöru fótboltaleik haustið
2017 og Margrét hefur leikið með Val
að nýju í vetur eftir að hafa ekki spilað
síðan um vorið 2017. Á ferilskránni
eiga þær samtals 193 landsleiki og 99
mörk. „Við erum að taka Margréti og
Dagnýju með út til þess að sjá hvar
þær eru raunverulega staddar eftir
hlé,“ segir Jón og viðurkennir að óvíst
sé að þær hefðu verið valdar núna ef
um leiki í undankeppni EM væri að
ræða.
Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörð-
ur er að jafna sig eftir aðgerð, Elísa
Viðarsdóttir og Anna Rakel Péturs-
dóttir missa sæti sitt frá því í janúar,
og ákveðið var að Alexandra Jóhanns-
dóttir léki frekar með U19-landsliðinu í
næstu verkefnum þess. Þórdís Hrönn
Sigfúsdóttir kemur inn sem nýliði en
hún getur leikið sem vinstri bakvörður
og leyst fleiri hlutverk.
Tímafresturinn nýttur
Fanndís ekki til Algarve Jón Þór segir hana lykilleikmann sem þurfi nú hvíld
Vill sjá hvar Dagný og Margrét Lára standa Þórdís Hrönn með sem nýliði
Morgunblaðið/Eggert
Breytingar Dagný Brynjarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir koma inn í landsliðið á ný fyrir leikina þrjá í Algarve-
bikarnum en Fanndís Friðriksdóttir verður eftir heima. Ísland mætir Kanada og Skotlandi í riðlakeppni mótsins.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Geysisbikar kvenna, úrslitaleikur:
Laugardalshöll: Stjarnan – Valur .... L13.30
Geysisbikar karla, úrslitaleikur:
Laugardalsh.: Njarðvík – Stjarnan . L16.30
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66 deildin:
Origo-höllin: Valur U – Fylkir............... L18
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Fífan: Breiðablik – Grótta ................ L10.15
Boginn: KA – Valur ................................ L17
Egilshöll: Fylkir – Þróttur R ............ S16.15
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Fífan: Breiðablik – Selfoss................ L12.15
Egilshöll: Valur – ÍBV....................... L15.15
Boginn: Þór/KA – Stjarnan............... S16.30
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Egilshöll: Björninn – SA ................... L18.50
UM HELGINA!
1. deild karla
Sindri – Þór Ak. ...................................... 81:9
Staðan:
Þór Ak. 17 14 3 1685:1384 28
Höttur 15 11 4 1433:1179 22
Fjölnir 16 11 5 1498:1368 22
Vestri 16 10 6 1411:1276 20
Hamar 16 10 6 1582:1492 20
Selfoss 16 7 9 1320:1309 14
Sindri 18 1 17 1349:1779 2
Snæfell 16 1 15 992:1483 2
Frakkland
Deildabikarinn, 8-liða úrslit:
Nanterre – Limoges............................ 75:98
Haukur Helgi Pálsson tók 5 fráköst,
skoraði 4 stig og gaf 2 stoðsendingar en lék
aðeins í 7 mínútur.
NBA-deildin
Orlando – Charlotte ........................... 127:89
Atlanta – New York ........................... 91:106
New Orleans – Oklahoma City........ 131:122
KÖRFUBOLTI
MARKVERÐIR:
Sandra Sigurðardóttir, Val 19
Sonný Lára Þráinsd., Breiðab. 5
Bryndís L. Hrafnkelsd., Þór/KA 1
FRAMHERJAR:
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 117
Rakel Hönnudóttir, Reading 94
Elín Metta Jensen, Val 37
Berglind B. Þorvaldsdóttir, PSV 35
Agla María Albertsd., Breiðab. 20
Svava Guðmundsd., Kristianst. 12
MIÐJUMENN:
Sara B. Gunnarsd., Wolfsburg 120
Dagný Brynjarsdóttir, Portland 76
Gunnhildur Yrsa Jónsd., Utah 59
Sandra M. Jessen, Leverkusen 25
Sigríður Lára Garðarsd., ÍBV 14
Selma Sól Magnúsd., Breiðab. 9
Andrea Rán Hauksd., Breiðab. 7
VARNARMENN:
Hallbera Guðný Gísladóttir, Val 99
Sif Atladóttir, Kristianstad 77
Glódís P. Viggósd., Rosengård 71
Anna Björk Kristjánsd., PSV 40
Ingibjörg Sigurðard., Djurgården 18
Guðrún Arnard., Djurgården 5
Þórdís H. Sigfúsd., Kristianst. 0
Hópurinn fyrir Algarve-bikarinn
JÓN ÞÓR HAUKSSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI VALDI 23 LEIKMENN