Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 3
Spennandi sumarstörf
hjá traustu fyrirtæki
Alcoa hefur verið leiðandi í áliðnaði frá því að fyrirtækið var stofnað árið 1888 og álver Fjarðaáls við
Reyðarfjörð er meðal þeirra fullkomnustu í heiminum. Öryggi er í fyrirrúmi og mikið er lagt upp úr góðum
aðbúnaði starfsmanna, öflugu félagsstarfi og stuðningi við samfélagið.
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum
20. febrúar. Áhugasamir eru hvattir til að sækja
um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og
verður þeim öllum svarað.
Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við Reyðarfjörð.
Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum í kerskála, skautsmiðju og steypu-
skála Fjarðaáls. Sumarstarfsmenn þurfa að geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan
mánuð. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Almennar hæfniskröfur
Sterk öryggisvitund og árvekni
Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
Heiðarleiki og stundvísi
Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Frekari upplýsingar veitir
mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 7700 eða í gegnum netfangið fjardaal@alcoa.com.
Hægt er að sækja um sumarstarf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is.
•
•
•
•
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Mannauðsstjóri Stofnfisks tilheyrir mannauðsteymi Benchmark í Bretlandi og vinnur með þeim að innleiðingu
mannauðsstefnu félagsins auk þess að bera ábyrgð á öðrum mannauðsmálum Stofnfisks. Mannauðsstjóri hefur
aðsetur á skrifstofu Stofnfisks í Hafnarfirði en mun ferðast milli starfsstöðva fyrirtækisins á Íslandi auk þess sem
gera má ráð fyrir ferðalögum erlendis.
MANNAUÐSSTJÓRI
Helstu verkefni
• Ráðgjöf og stuðningur til stjórnenda og
starfsmanna vegna mannauðsmála
• Innleiða gildi og menningu Benchmark hjá
Stofnfiski
• Innleiðing og eftirfylgni mannauðsstefnu
• Umsjón með ráðningum og nýliðaþjálfun
• Umsjón með þjálfunar- og starfsþróunarmálum
• Aðstoð við launasetningu og þróun launa
• Önnur tengd verkefni
Hæfniskröfur
• Farsæl starfsreynsla á sviði mannauðsmála
• Háskólamenntun á sviði viðskipta og/eða
mannauðsmála kostur
• Góð þekking á íslenskum vinnurétti og
viðskiptaháttum
• Starfsreynsla erlendis frá eða frá alþjóðlegu
fyrirtæki er kostur
• Framúrskarandi enskukunnátta, geta til að tjá
sig í ræðu og riti á ensku
• Frumkvæði, metnaður og framúrskarandi
samskiptafærni
• Góð færni í tímastjórnun og forgangsröðun
verkefna
Nánari upplýsingar veitir:
Inga S. Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og
kynningarbréf, hvoru tveggja á ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.
Stofnfiskur er stærsti framleiðandi laxahrogna á Íslandi og er leiðandi í kynbótarannsóknum fyrir fiskeldi en býður jafnframt upp á
hrognaframleiðslu, kynbætur fyrir fiskeldi, rannsóknir og ráðgjöf. Fyrirtækið var stofnað árið 1991 og selt til breska líftæknifélagsins
Benchmark Holdings plc. árið 2014. Hjá Stofnfiski starfa um 70 starfsmenn og eru skrifstofur félagsins í Hafnarfirði en aðrar
starfsstöðvar eru við Kalmannstjörn, Vogavík, Hafnir og í Kollafirði. Nánari upplýsingar á www.stofnfiskur.is