Morgunblaðið - 19.02.2019, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.02.2019, Blaðsíða 3
Bikarmeistarar Fram áttu greiða leið í undanúrslit Coca Cola-bikars kvenn, bikarkeppni HSÍ, í gærkvöldi þegar liðið vann Selfoss, 34:22, í Iðu á Selfossi. Sigurinn var jafnvel enn öruggari en úrslitin gefa til kynna. Framliðið tók leikinn föstum tök- um í upphafi og skoraði 12 af fyrstu 13 mörkunum. Að loknum fyrri hálf- leik var munurinn 12 mörk, 17:5, Fram í vil. Eins og gefur að skilja var það nánast formsatriði fyrir Framara að vinna leikinn þótt liðið slakaði nokk- uð á klónni þegar á leið hálfleikinn. Steinunn Björnsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir voru markahæst- ar í liði Fram með átta mörk hvor. Karen Knútsdóttir skoraði fjögur mörk. Annars dreifðist markaskorun liðsins vel, ellefu af tólf tókst að skora mark. Harpa Sólveig Brynjarsdóttir, Katla María Magnúsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir skoruðu fjögur mörk hver fyrir Selfossliðið. Greið leið í undanúrslit hjá bikarmeisturum Fram Eitt ogannað  Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leik Paris SG og Zagreb í B- riðli Meistaradeildar Evrópu í hand- knattleik karla á sunnudaginn. Leik- urinn fór fram í París og lauk með sigri heimaliðsins, 33:28. Þetta er fimmti leikurinn sem Anton og Jónas dæma í Meistaradeild karla á þessari leiktíð.  Leonard Sigurðsson, knatt- spyrnumaður frá Keflavík, er genginn til liðs við úrvalsdeildarlið Fylkis. Leon- ard, sem er 22 ára sóknarmaður, lék 17 leiki fyrir Keflavík í Pepsi-deildinni í fyrra og á alls 30 leiki þar að baki með liðinu.  Vicente Car- rasco og Ólafur Helgi Hreinsson voru sæmdir gull- merku Karate- sambands Íslands á karateþingi sem haldið var um liðna helgi. Báðir hafa þeir unnið öt- ullega að vexti og viðgangi karateí- þróttarinnar hér á landi í ríflega þrjá áratugi.  Ekki var farið rétt með nöfn verð- launahafanna í svigi karla á heims- meistaramótinu í alpagreinum í blaðinu í gær. Á eftir heimsmeist- aranum, Marcel Hirscher frá Aust- urríki, komu tveir landar hans, Mich- ael Matt og Marco Schwarz. Frakkinn Alexis Pinturault varð hinsvegar fjórði.  Kristófer Óskar Óskarsson, 18 ára knattspyrnumaður úr Fjölni, er til reynslu hjá danska liðinu Vejle þessa dagana. Kristófer kom inn í meist- araflokkshóp Fjölnis síðasta sumar og skoraði sigurmark gegn Íslandsmeist- urum Vals í Reykjavíkurmótinu í síð- asta mánuði.  Knattspyrnumað- urinn Ari Leifsson hefur framlengt samning sinn við Fylki en þetta staðfesti félag- ið í tilkynningu sem það sendi frá sér í gær. Ari er tví- tugur mið- vörður sem er uppalinn í Ár- bænum en samningurinn gildir til ársins 2021. AFP Leikbann Virgil van Dijk miðvörður Liverpool missir af leiknum gegn Bayern í kvöld. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Kevin Durant, leikmaður Golden State Warriors, bandarísku meistaranna í körfuknattleik, var valinn besti leikmaðurinn í Stjörnuleik NBA sem fór fram í Charlotte í fyrrinótt. Durant skoraði 31 stig og tók 7 fráköst fyrir „Lið LeBron“ sem sigraði „Lið Giann- is“ í fjörugum leik, 178:164. Durant sýndi góð tilþrif allan tímann og sérstaklega í fjórða leikhluta þegar lið hans tryggði sér sigurinn. Þetta er í annað skipti sem Durant hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun en hann var einnig kjörinn bestur í Stjörnuleiknum árið 2012. Giannis Antetokounmpo, Grikkinn kraftmikli, var ásamt LeBron James kjörinn til að fara fyrir lið- unum tveimur í leiknum. Hann átti stórleik og skor- aði 38 stig, sem hefði væntanlega tryggt honum nafnbótina besti leikmaðurinn, hefði lið hans borið sigur úr býtum. Giannis, sem er 24 ára leikmaður Milwaukee Bucks og lék sinn þriðja Stjörnuleik, tók 11 fráköst og tróð boltanum 10 sinnum í körfuna hjá LeBron og félögum. Sjálfur náði LeBron sér ekki á strik fyrr en á lokakafla leiksins en hann endaði með 19 stig. vs@mbl.is Durant sá besti í annað skipti AFP Reyndur Kevin Durant lék sinn tíunda Stjörnuleik og var valinn bestur í annað skipti. Rakel Hönnudóttir og liðsfélagar hennar í enska knattspyrnuliðinu Reading mæta Man- chester United í átta liða úrslitum ensku bik- arkeppninnar en dregið var í gær. Reading lagði Birmingham í sextán liða úrslitum keppninnar um helgina, 2:1, og skoraði Rakel sigurmark leiksins. Rakel samdi við Reading í síðasta mánuði og hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum fyrir félagið, þrátt fyrir að hafa byrjað á bekknum í þeim öllum. Dráttinn í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar er sem hér segir: Reading – Manchester United Aston Villa – West Ham Durham – Chelsea Manchester City – Liverpool. Rakel mætir Man. Utd Rakel Hönnudóttir Zinedine Zidane, fyrrverandi knattspyrnu- stjóri Real Madrid, er orðaður við stjórastöð- una hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea þessa dagana. Zidane lét af störfum hjá Real Madrid síðasta sumar eftir að hafa stýrt Real Madrid til sigurs í Meistaradeild Evrópu, þriðja árið í röð. Maurizio Sarri tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea síðasta sumar af Antonio Conte en liðið fór mjög vel af stað undir stjórn Sarri. Gengi liðsins hefur hins vegar dalað mikið á síðustu vikum og liðið tapaði illa fyrir Man- chester City í ensku úrvalsdeildinni um þarsíðustu helgi, 6:0. Ekki hefur tapið fyrir hinu Manchester-liðinu í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í gærkvöldi orðið til þess að blási byrlegar fyrir Ítalanum hjá útgerðinni á Stamford Bridge. Leysir Zidane Sarri af? Zinedine Zidane Skagamenn hafa bætt við sig sænskum varn- armanni fyrir baráttuna í fótboltanum í sumar en þeir endurheimtu sæti sitt í efstu deild eftir eins árs fjarveru. Þeir hafa samið við sænskan varnarmann, Marcus Johansson, sem er 25 ára gamall og var síðasta hálfa árið í röðum Silke- borg í dönsku B-deildinni. Johansson, sem er 195 cm á hæð, er uppal- inn hjá Halmstad og lék með liðinu til loka tímabilsins 2017, alls 26 leiki í úrvalsdeild og 17 í B-deild. Hann var þá samherji Tryggva Hrafns Haraldssonar, sem nú er kominn aftur til ÍA frá Halmstad. Johansson lék fyrri hluta síðasta árs með Jönköping í B-deildinni en fór þaðan til Silkeborg. Þar átti hann erfitt uppdráttar vegna meiðsla og náði ekkert að spila með lið- inu. vs@mbl.is Svíi í vörnina hjá ÍA Marcus Johansson Á SELFOSSI Guðmundur Karl sport@mbl.is Valsmenn voru í gær fyrstir til þess að tryggja sér sæti í 4-liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta með sannfærandi sigri á Selfyssingum á útivelli í gærkvöldi, 31:24. Það var spenna í loftinu fyrir leik- inn enda tvö af sterkustu liðum Ol- ísdeildarinnar að mætast. Valsmenn sýndu strax mátt sinn og megin. Þeir spiluðu frábæra vörn allan leikinn og voru virkilega ákveðnir í sókninni. Allt var undir í þessum leik og Vals- menn voru mættir austur fyrir fjall til þess eins að sigra. Miðað við spila- mennskuna í gærkvöldi verða þeir að teljast líklegir bikarkandídatar. Sérstaklega var gaman að fylgjast með Magnúsi Óla Magnússyni sem var frábær í fyrri hálfleik og algjör lykilmaður í sóknarleik Vals. Þá voru þeir heldur ekki árennilegir í vörninni bræðurnir Orri og Ýmir Gíslasynir. Anton Rúnarsson var líka virkilega öflugur og á lokakaflanum fann Sveinn Aron Sveinsson fjölina sína. Selfyssingar hlupu á vegg í gær- kvöldi og sterkur varnarleikur Vals- liðsins neyddi heimamenn til þess að gera ýmislegt erfitt í sókninni, enda voru töpuðu boltarnir margir. Heima- menn reyndu að hleypa leiknum upp á síðustu tíu mínútunum. Neyðarúrræði sem gekk ekki upp, en eitthvað þurfti að reyna til þess að ná sigrinum. Selfyssingar treystu mikið á Hauk Þrastarson og Elvar Örn Jónsson í leiknum. Haukur var markahæstur Selfyssinga og Elvar var sterkur í vörninni en átti lengst af erfitt í sókn- inni gegn miðjublokk Vals. Þeir vín- rauðu eygðu örlitla von þegar tæpar fimm mínútur voru eftir en fengu þá þrisvar sinnum brottrekstur á skömmum tíma og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Val. Morgunblaðið/Eggert Markahæstur Anton Rúnarsson var aðsópsmikill hjá Val og skoraði 8 mörk. Valsmenn sýndu styrk sinn  Léku frábæra vörn gegn leikmönnum Selfoss sem voru í eltingaleik frá upphafi Hleðsluhöllin, Coca Cola-bikar karla, 8-liða úrslit, mánudag 18. febrúar 2019. Gangur leiksins: 1:2, 2:5, 5:5, 7:8, 8:10, 9:13, 11:15, 14:17, 16:19, 18:23, 20:26, 24:31. Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 7/1, Hergeir Grímsson 4/1, Guðjón Baldur Ómarsson 4, Elvar Örn Jónsson 3, Nökkvi Dan Elliðason 3, Árni Steinn Steinþórsson 1, Einar Sverrisson 1, Guðni Ingvarsson 1. Varin skot: Pawel Kiepulski 9, Al- exander Hrafnkelsson 1. Selfoss – Valur 24:31 Utan vallar: 14 mínútur. Mörk Vals: Anton Rúnarsson 8/3, Magnús Óli Magnússon 7, Sveinn Aron Sveinsson 6, Vignir Stef- ánsson 4, Ýmir Örn Gíslason 3, Daníel Freyr Andrésson 1, Ásgeir Snær Vignisson 1, Alexander Örn Júlíusson 1. Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 11/1. Utan vallar: 14 mínútur. Dómarar: Sigurður Hjörtur Þrast- arson og Svavar Ólafur Pétursson. Áhorfendur: 575.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.