Morgunblaðið - 21.02.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 21.02.2019, Síða 2
„Landsliðið hefur verið risastór hluti af lífinu“ 125 Hlynur Bæringsson kveður sem sjötti leikja- hæsti lands- liðsmaður Ís- lands frá upphafi. Höfðingjar  Vatnaskil í kvöld þegar Hlynur og Jón Arnór le tveir áratugir síðan þeir komu inn í liðið  Lítið um „Hlynur er hæglátur strákur sem er alinn upp fyrir utan borgina og vel utan um hann haldið. Hann sóttist eftir því sem hann vildi gera og fékk til dæmis að fara til Reykja- víkur til að æfa körfu með KR þegar hann var að komast á unglingsár. Hlynur er mjög rólegur utan vallar. Hann er húmoristi sem er mjög traustur og góður félagi. „Easy going“ gæi sem er klár einstaklingur og pælir í hlut- unum. Hann hefur fundið jafnvægi milli alvörunnar og gleðinnar. Inni á vellinum og á æfingum er hann duglegasti mað- ur sem þú getur unnið með. Hann fer í einhvern ham þeg- ar þangað er komið. Hann er eins og tvær ólíkar persónur, innan vallar og utan. Það er einkennandi hversu mikill baráttumaður hann er og ofan á það bætast útsjón- arsemi og klókindi. Stundum finnst manni hann alveg fáránlega klókur þegar hann er að kljást við hávaxnari menn. Þar nýtur hann þess að vera sterkur frá náttúr- unnar hendi og þyngdarpunkturinn er á réttum stað. Hann kann að nýta sér það og oft eiga stærri og breiðari miðherjar ekki möguleika gegn honum á vellinum,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson sem þjálf- aði Hlyn hjá Snæfelli þegar liðið varð Íslands- og bikarmeistari árið 2010 með Hlyn sem fyrirliða. „Hann er fæddur leiðtogi. Hann hefur fyrirlið- ann í sér og maður finnur það bara þegar mað- ur er í kringum hann. Hann heldur ekki lengstu ræðurnar yfir mönnum en leysir fyrirliða- hlutverkið mjög vel. Hann fer fyrir mönnum með því sem hann gerir á æfingum og í leikj- um,“ sagði Ingi þegar leitað var til hans. Hlynur fer í einhvern ham á körfuboltavellinum INGI ÞÓR ÞJÁLFAÐI HLYN HJÁ SNÆFELLI „Já mjög. Ég verð að vera hreinskilinn varðandi það,“ sagði Hlynur þegar Morgunblaðið spurði hann hvort það væri skrítin tilhugsun að komið væri að leiðarlokum hjá honum og landsliðinu. „Þetta hefur verið risastór hluti af mínu lífi svo lengi. Lífið hefur verið planað út frá því hvenær landsliðið er að keppa. Fyrir utan einkalífið þá hefur þetta hlutverk að vera landsliðsfyrirliði verið stór hluti af mínu lífi. Það er leiðinlegt að geta ekki spilað landsleiki enda- laust, nú mun gefast tími til að horfa með stolti til baka.“ Hlynur segir það skipta sig máli að vera ennþá með hlut- verk í liðinu þegar hann spilar síðasta leikinn. „Menn eru ekki alltaf dómbærir á eigin getu en ég held að ég hefði verið valinn í Portúgalsleikinn þótt ekki stæði til að kveðja. Það er góð tilfinning og ágætt að spila síðasta leikinn á heimavelli. En ætli maður fari ekki að sjá eft- ir þessari ákvörðun strax í sumar,“ sagði Hlynur og brosti. kris@mbl.is 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 Lið Keflavíkur hreinlega kjöldró lið KR í uppgjöri tveggja efstu liða Dominos-deildar kvenna í körfu- knattleik í Keflavík í gærkvöldi þegar þrír leikir af fjórum í 21. umferð deildarinnar fóru fram. Lokatöl- ur í Keflavík voru 91:59. Brittanny Dinkins fór enn einu sinni á kostum í liði Keflavíkur. Hún skoraði 34 stig. Birna Val- gerður Benónýsdóttir var næst með 19 stig og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 13 stig. Orla O’Reilly var stigahæst í liði KR með 25 stig og Kiana Johnson var næst með 20 stig. Stjarnan vann öruggan sigur á neðsta liði deild- arinnar, Breiðabliki, 79:56, í Ásgarði. Danielle Vic- toria Rodriguez var stigahæst hjá Stjörnunni með 14 stig og Bríet Sif Hinrikdsóttir var næst með 13 stig. Sanja Orazovic skoraði 17 stig fyrir lið Breiða- bliks. Haukar lögðu Skallagrím með 72 stigum gegn 59 í Borgarnesi. þar sem gestirnir tryggðu sér sigurinn í fjórða leikhluta. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði 23 stig fyrir Skallagrím og Eva Margrét Kristjáns- dóttir var með 24 stig fyrir Hauka. iben@mbl.is Keflavíkurliðið kjöldró KR-inga Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Sótt Birna V. Benónýsdóttir sækir að körfu KR þar sem Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir er til varnar. Albert Jónsson, Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir tryggðu sér í gær sæti í aðalkeppninni á lengri vegalengdum á heimsmeistaramótinu í nor- rænum greinum skíðaíþrótta sem þá hófst í Seefeld í Austurríki. Albert varð í þriðja sæti undankeppn- innar í karlaflokki, þar sem gengnir voru 10 kíló- metrar, og Dagur í sjötta sæti en tíu bestu komust áfram og geta keppt í 15 og 30 km göngu á mótinu. Þeir náðu líka að vera undir punktalágmarki, 140 FIS-punktum, sem þurfti til að fara áfram. Kristrún Guðnadóttir varð sjöunda í undankeppni kvenna, þar sem gengnir voru 5 kílómetrar. Hún náði hinsvegar ekki að vera undir punktalágmark- inu í kvennaflokki, 180 FIS-punktum, og átti ekki að komast áfram. Skíðasamband Íslands gerði at- hugasemd til mótsstjórnar vegna þeirrar niðurstöðu og úrskurðað var í kjölfarið að tíu efstu í kvenna- flokki kæmust allar áfram. Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen þurftu ekki að fara í undankeppnina þar sem þeir höfðu unnið sér inn fullan keppnisrétt fyrir mótið. vs@mbl.is Íslendingarnir í aðalkeppni á HM Meistaradeild karla 16-liða úrslit, fyrri leikir: Atlético Madrid – Juventus .................. (0:0) Schalke – Manchester City................... (2:1)  Staðan í leikjunum þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Sjá mbl.is/sport. Evrópudeild UEFA 32 liða úrslit, seinni leikur: Sevilla – Lazio........................................... 2:0  Sevilla áfram, 3:0 samanlagt. Ítalía Bikar kvenna, 8-liða úrslit, seinni leikur: Roma – Res Roma.................................... 3:1  Kristrún Rut Antonsdóttir var á meðal varamanna Roma.  Roma áfram, 9:4 samanlagt, og mætir Fiorentina í undanúrslitum. Lengjubikar karla A-deild, 4. riðill: Keflavík – FH........................................... 2:2 Ingimundur Aron Guðnason 53., Anton Freyr Hauks Guðlaugsson 89. – Steven Lennon 45.(víti), Brandur H. Olsen 88.  Keflavík 4, FH 4, Breiðablik 3, Víkingur R. 0, Haukar 0, Grótta 0. Vináttuleikur U17 kvenna Ísland – Írland.......................................... 5:2 Hafrún Rakel Halldórsdóttir 19., Arna Ei- ríksdóttir 27., Ída Marín Hermannsdóttir 30., Andrea Rut Bjarnadóttir 75., Ólöf Sig- ríður Kristinsdóttir 85. KNATTSPYRNA Danmörk Skjern – SönderjyskE......................... 35:25  Björgvin Páll Gústavsson varði 12 skot af 24 í marki Skjern. Tandri Már Konráðs- son er frá keppni vegna meiðsla.  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir SönderjyskE. GOG – Kolding..................................... 33.26  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 10 mörk fyrir GOG.  Ólafur Gústafsson hjá Kolding var í leik- banni.  Staðan: GOG 34, Aalborg 33, Holstebro 29, Bjerringbro/Silkeborg 29, Skjern 28, Skanderborg 27, Århus 26, SönderjyskE 18, Ribe-Esbjerg 18, Nordsjælland 15, Kolding 12, Lemvig 12, Mors/Thy 10, Ringsted 9. Noregur Kolstad – Drammen ............................ 26:28  Óskar Ólafsson skoraði 3 mörk fyrir Drammen.  Staðan: Elverum 27, Drammen 26, Ar- endal 25, Fyllingen 21, Kolstad 20, Runar 20, Nærbö 15, Halden 17, Haslum 14, Bæk- kelaget 13, Falk 6, Bodö 4. Svíþjóð Kristianstad – Alingsås ...................... 32:25  Ólafur A. Guðmundsson skoraði 7 mörk fyrir Kristianstad, Teitur Einarsson 4 og Arnar Freyr Arnarsson 4. Sävehof – Redbergslid........................ 28:29  Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í marki Sävehof.  Staðan: Kristianstad 44, Malmö 36, Red- bergslid 35, Ystad IF 34, Skövde 33, Säve- hof 33, Alingsås 32, Lugi 26, Guif 18, IFK Ystad 17, Karlskrona 14, Önnered 13, Hammarby 12, AIK 11. Meistaradeild karla A-RIÐILL: RN Löwen – Kielce.............................. 30:29  Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyr- ir Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson 2.  Barcelona 20, Veszprém 16, Vardar Skopje 15, RN Löwen 14, Kielce 14, Mes- hkov Brest 7, Montpellier 7, Kristianstad 5. HANDBOLTI Dominos-deild kvenna Skallagrímur – Haukar........................ 59:72 Stjarnan – Breiðablik........................... 79:56 Keflavík – KR ....................................... 91:59 Staðan: Keflavík 21 16 5 1680:1584 32 KR 21 15 6 1581:1488 30 Valur 20 14 6 1631:1402 28 Stjarnan 21 13 8 1532:1526 26 Snæfell 20 12 8 1531:1445 24 Haukar 21 7 14 1474:1542 14 Skallagrímur 21 5 16 1419:1590 10 Breiðablik 21 1 20 1512:1783 2 KÖRFUBOLTI KÖRFUKNATTLEIKUR Forkeppni EM karla 2021: Laugardalshöll: Ísland – Portúgal...... 19.45 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Reykjaneshöll: Njarðvík – Þróttur R. 18.30 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Kórinn: Stjarnan – Selfoss .................. 20.10 Í KVÖLD! LANDSLEIKUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Miklir höfðingjar leika í síðasta sin unni þegar Ísland mætir Portúgal körfuknattleik í Laugardalshöllinn Bæringsson og Jón Arnór Stefánss urinn verði þeirra síðasti með A-lan sinn 125. A-landsleik og þannig hit landsleik. Báðir eru þeir fæddir árið 1982 o landsleik árið 2000. Hlynur er sjött urinn frá upphafi og Jón er fjórtán lykilhlutverkum þegar landsliðið n komst á stórmót í íþróttinni í fyrsta Fyrir þá sem fylgst hafa með ísle um augljóst um hvers lags vatnask hefur árum saman verið fyrirliði og sé ekki nema 200 cm, sem ekki þyk landsleikjum, þá tókst honum, stun hátt, að hafa betur gegn 215 cm háu með stórliðum í Evrópu. Jón Arnór annar Íslendingur í atvinnumennsk besti leikmaður landsliðsins bæði í Þessu stigi forkeppninnar fer að tryggt sér sigur í riðlinum og sæti í mætir Belgíu ytra á sunnudag og h Jóns hjá landsliðsmönnunum. Tvei draga vagninn, Haukur Helgi Páls mannsson, verða væntanlega ekki Framundan hjá þeim eru mikilvæg lagsliðum sínum. En þeir verða me þeim leik er lítið um forföll hjá Ísle kantinum eins og Kári Jónsson og hefðu verið valdir en Jón Axel fær idson í Bandaríkjunum og Kári er m arinn Craig Pedersen nefndi einnig isson og Ólafur Ólafsson gætu ekki Morgunblaðið/Eva Björk Samherjar Hlynur Bæringsson o saman með KR einn vetur þegar þ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.