Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 Það er ávallt gleðiefni þegar afburða íþróttafólk fær tækifæri til að kveðja á viðeigandi hátt, hvort sem það er að spila síðasta leik sinn á ferlinum eða draga sig í hlé frá landsliði. Þetta síðarnefnda á við um þá Jón Arnór Stefánsson og Hlyn Bæringsson, tvo af albestu körfuboltamönnum Íslandssög- unnar, sem spila síðasta lands- leikinn gegn Portúgal í Laugar- dalshöllinni í kvöld. Einhver magnaðasta kveðju- stund sem við Íslendingar höfum upplifað er þegar stóri bróðir Jóns, handboltakappinn Ólafur Stefánsson, kvaddi frammi fyrir troðfullri Laugardalshöll sumarið 2013, í leik gegn Rúmenum í und- ankeppni EM. Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, náði líka að kveðja í heimaleik gegn Sviss haustið 2013. Tækifærin til að kveðja af- burða íþróttafólk eru ekki alltaf til staðar. Ásgeir Sigurvinsson, fremsti knattspyrnumaður Ís- landssögunnar að margra mati, vildi af sinni alkunnu hógværð ekki lýsa því yfir fyrir leik Íslands og Tyrklands á Laugardalsvelli haustið 1989 að það yrði kveðju- leikur sinn. Sjálfur kvaddi Ásgeir hins vegar landsliðið í þeim leik á sinn hátt, með eftirminnilegri frammi- stöðu og einum af bestu leikjum sínum í landsliðstreyjunni, í 2:1 sigri á Tyrkjum. Eiður Smári Guðjohnsen lauk landsliðsferli sínum á EM í Frakk- landi, með leik í 8 liða úrslitum, en ekki gafst tækifæri til að hylla hann sérstaklega í kveðjuleik. Þeir sem á annað borð hafa áhuga á körfubolta hljóta að nýta sér einstakt tækifæri með því að bregða sér í Höllina í kvöld og kveðja þá Jón Arnór og Hlyn. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EM 2021 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Um hádegisbilið í dag kemur í ljós hverjir andstæðingar Íslands verða í undankeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu, en þar er leikið um sæti í lokakeppni EM sem haldin verður á Englandi sumarið 2021. Dregið verður í riðla í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss og hefst at- höfnin klukkan 12.30 að íslenskum tíma. Ísland hefur leikið á þremur loka- mótum í röð, í Finnlandi 2009, í Sví- þjóð 2013 og í Hollandi 2017, og náði besta árangrinum í Svíþjóð þegar liðið komst í átta liða úrslitin. Leiðin á síðasta mót, í Hollandi, var sérstaklega greið en þá var Ís- land í fyrsta og eina skiptið til þessa í fyrsta styrkleikaflokki þegar dreg- ið var í riðla fyrir undankeppnina. Nú er Ísland ekki í hópi níu bestu þjóðanna, samkvæmt árangri í und- ankeppni og lokakeppni EM og HM frá árinu 2015, heldur í tólfta sæti, og er þar með í öðrum styrkleika- flokki. Þar af leiðandi verður ein þjóð sem á að vera sterkari með Íslandi í riðli en íslenska liðið getur lent í hvort sem er fimm eða sex liða riðli. Alls taka 47 þjóðir þátt í undan- keppninni og þeim verður skipt í níu riðla. Sjö riðlanna verða með fimm liðum en tveir riðlanna með sex liðum.  England er gestgjafi og tekur ekki þátt í undankeppninni.  Sigurliðin níu fara beint á EM.  Þrjú bestu liðin í 2. sæti fara beint á EM.  Hin sex liðin í 2. sæti fara í um- spil um síðustu þrjú sætin á EM. Styrkleikaflokkarnir fyrir drátt- inn í dag eru fimm. Níu lið eru í hverjum flokki, nema ellefu í fimmta flokki. Eitt lið er dregið í hvern riðil úr hverjum flokki, nema hvað tvö lið úr fimmta flokki fara í tvo riðlanna. Ísland mætir semsagt einu liði úr 1. flokki, einu úr 3. flokki, einu úr 4. flokki og einu eða tveimur úr 5. flokki. Styrkleikaflokkur 1: Frakkland, Þýskaland, Holland, Spánn, Svíþjóð, Noregur, Sviss, Skotland, Ítalía. Styrkleikaflokkur 2: Austurríki, Danmörk, Ísland, Belgía, Rússland, Wales, Úkraína, Finnland, Tékkland. Styrkleikaflokkur 3: Portúgal, Írland, Pólland, Rúm- enía, Serbía, Slóvenía, Ungverja- land, Bosnía, Hvíta-Rússland. Styrkleikaflokkur 4: Tyrkland, Slóvakía, Króatía, Norður-Írland, Grikkland, Ísrael, Kasakstan, Albanía, Moldóva. Styrkleikaflokkur 5: Færeyjar, Malta, Norður- Makedónía, Eistland, Svartfjalla- land, Georgía, Lettland, Litháen, Aserbaídsjan, Kýpur, Kósóvó. Skotar eða Ítalir hagstæðastir? Eins og sést á þessu eru mestar líkur á að Ísland fái mjög erfiðan andstæðing úr fyrsta flokknum. Liðið myndi líklega teljast heppið ef það lenti í riðli með annaðhvort Skotum eða Ítölum, sem eru vafalít- ið tvær viðráðanlegustu þjóðirnar úr fyrsta flokki. Þar sem aðeins þrjár þjóðir sem enda í öðru sæti riðlanna komast beint á EM, án umspils, gæti and- stæðingurinn úr þriðja flokki orðið skæðasti keppinauturinn í riðlinum. Þar yrði líklega erfiðast að mæta Portúgal, sem hefur tekið miklum framförum síðustu ár og komst í lokakeppnina í Hollandi 2017. Eins er ljóst að Írar yrðu hættulegir mót- herjar og sama má eflaust segja um nokkrar Austur-Evrópuþjóðanna sem eru í þriðja flokki en Ísland hef- ur reynslu af því að mæta nokkrum þeirra, sérstaklega Slóvenum og Serbum. Mótherjinn úr þriðja flokki getur ráðið mestu  Ísland í 2. styrkleikaflokki þegar dregið er í riðla fyrir undankeppni EM 2021 í dag Morgunblaðið/Valli Evrópukeppni Íslensku landsliðskonurnar komast að því í dag hverjum þær mæta í undankeppni EM. Stúlknalandslið Íslands í knatt- spyrnu, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, vann Íra öðru sinni í vin- áttulandsleik í Kópavogi í gær. Að þessu sinni var leikið í Kórnum þar sem Ísland sigraði 5:2 en á mánu- daginn mættust liðin í Fífunni og Ís- land vann þann leik 3:0. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Arna Eiríksdóttir og Ída Marín Her- mannsdóttir skoruðu fyrir Ísland í fyrri hálfleik, staðan var 3:1 að hon- um loknum, og þær Andrea Rut Bjarnadóttir og Ólöf Sigríður Krist- insdóttir skoruðu í síðari hálfleik. Ír- ar jöfnuðu í fyrri hálfleiknum og minnkuðu muninn í 3:2 í þeim síðari. Íslenska liðið, sem komst áfram úr undanriðli EM í haust, leikur gegn Ítalíu, Danmörku og Slóveníu í milliriðli keppninnar á Ítalíu í lok mars og leikirnir við Íra voru liður í undirbúningi fyrir það verkefni. vs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Kórinn Andrea Rut Bjarnadóttir með boltann í leiknum í gær en hún skoraði eitt marka íslenska liðsins. Fimm mörk gegn Írum í Kórnum Fimleikakarl árs- ins, Valgarð Reinhardsson úr Gerplu, er kom- inn til Melbourne í Ástralíu þar sem hann tekur þátt í heimsbikarmóti í áhaldafimleikum. Keppni hefst í dag og lýkur á morgun. Valgarð tekur þátt í undan- úrslitum í gólfæfingum í dag en verður síðan í eldlínunni í keppni í stökki, tvíslá og á svifrá á morgun, einnig í undanúrslitum. Eftir því sem næst verður komist hefur undirbúningur fyrir þátttök- una í mótinu gengið afar vel hjá Val- garð. Sannarlega má segja að Ís- lendingur taki ekki þátt í heims- bikarmóti í áhaldafimleikum á hverjum degi. Valgarð hefur vakið mikla athygli fyrir góðan árangur á alþjóðlegum mótum, ekki síst á Evr- ópumótinu í Glasgow á síðasta ári þar sem Valgarð komst í úrslit. Það var í fyrsta sinn sem íslenskur karl- maður komst í úrslit í stökki á Evr- ópumeistaramóti í fimleikum. Einn- ig minnti Valgarð hressilega á sig á heimsmeistaramótinu í Doha í Katar í lok október. Keppnishöllin í Melbourne þykir einstaklega glæsileg. iben@mbl.is Valgarð í eldlínunni í Melbourne Valgarð Reinhardsson Guðmundur Ágúst Krist- jánsson er í efsta sæti stiga- listans á Nordic Golf-mótaröð- inni eftir tvö mót. Guð- mundur stóð uppi sem sig- urvegari á fyrsta móti tímabilsins, Mediter Real Estate Masters, og hafnaði í 9. sæti á öðru móti ársins, PGA Catalunya Resort Championship, sem lauk á þriðjudaginn. Guðmundur fékk 9 þúsund stig og 65.000 danskar krónur, tæp- lega 1.200 þúsund íslenskar krón- ur, fyrir sigurinn og 1.310 stig til viðbótar fyrir árangurinn á öðru mótinu. Hann er með 500 stiga forskot á Frakkann Mathieu Fe- nasse, sem oftast leikur á Áskor- endamótaröðinni. Haraldur Franklín Magnús er í 33. sæti með 725 stig og Andri Þór Björnsson í 56. sæti með 150 stig. Íslandsmeistarinn Axel Bóas- son er hins vegar enn án stiga þar sem hann á eftir að komast í gegnum niðurskurð á tímabilinu. Mótaröðin heldur áfram á Spáni um helgina en þar er keppt á Lumina-vellinum í Katalóníu. Guðmundur efstur á mótaröðinni Guðmundur Ágúst Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.