Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 5

Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 5 www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi Laus er til umsóknar staða konrektors við Menntaskólann í Reykjavík. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2019. Um er að ræða 100% starf. Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari auk annarra gagna sem við eiga. Hæfni- og menntunarkröfur: • Leyfisbréf til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á framhaldsskólastigi • Leiðtoga- og samskiptahæfni • Kunnátta og reynsla af INNU, bæði skráningarhluta og töflugerð • Reynsla af stefnumótunarvinnu, hæfileiki til að stýra breytingum • Þekking og reynsla af stjórnsýslu er æskileg • Þekking af fjármálum og rekstri er æskileg Helstu verkefni og ábyrgð: • Konrektor er staðgengill rektors og vinnur með honum við daglega stjórn skólans • Konrektor hefur umsjón með nemendaskráningu, námsferlum og mati á námi • Konrektor hefur umsjón með gerð skólanámskrár • Konrektor annast í samstarfi við aðra töflugerð og próftöflugerð Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við Kennarasamband Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2019. Umsóknum skal skilað inn á Starfatorg (www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Siemsen rektor í síma 545 1900 eða í netfangið: rektor@mr.is. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið. Konrektor Menntaskólans í Reykjavík Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Löggiltur fasteignasali óskast GIMLI fasteignasala óskar eftir að ráða löggiltan fasteignasala. Viðkomandi þarf að vera drífandi og geta unnið sjálfstætt. Reynsla af sölu fasteigna skilyrði. Áhugasamir sendi tölvupóst og ferilskrá á elin@gimli.is Arion banki leitar að stefnumiðuðum stjórnanda með framúrskarandi leiðtogahæfni til að leiða öflugan hóp reynslumikilla sérfræðinga í mannauðsmálum og breytingastjórnun. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og umbótadrifinn og hafa metnað til að ná árangri í starfi með það að leiðarljósi að gera betur í dag en í gær. Forstöðumaður mannauðs heyrir undir bankastjóra Arion banka. Hlutverk mannauðsteymis Arion banka er að tengja saman fólk og lykilferla, með upplifun viðskipta- vina að leiðarljósi. Innan deildarinnar starfar framsækinn og samstilltur hópur sérfræðinga með mikla þekkingu og reynslu. Helstu verkefni deildarinnar eru að veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf og stuðning m.a. við ráðningar, starfsþróun, fræðslu og straumlínustjórnun. Einnig skipar mannauður stórt hlutverk þegar kemur að því að skapa jákvætt vinnuumhverfi og auka starfsánægju. Arion banki atvinnaarionbanki.is Hæfniskröfur • Leiðtogahæfni, drifkraftur og samskiptafærni • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og gagn- rýnin hugsun • Stjórnunarreynsla • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking á sviði mannauðsmála er kostur • Þekking á sviði straumlínustjórnunar er kostur • Þekking á starfsemi fjármálafyrirtækja er kostur • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti Starfssvið forstöðumanns mannauðs • Dagleg stjórnun mannauðsteymis • Framfylgir mannauðs- og jafnréttisstefnum bankans og tryggir að unnið sé í takt við þær • Hefur umsjón með kjaramálum/kjarasamningum og ákvörðunum um kjör starfsmanna • Yfirumsjón með verkefnum, drífur þau áfram og ryður hindrunum úr vegi • Skapar sterka liðsheild og tryggir að deildin sé rétt mönnuð • Mótar framtíðarsýn og leiðir þróun hópsins • Setur markmið og tryggir að verkefni séu unnin í samræmi við áherslur á hverjum tíma • Styður við framkvæmdastjórn bankans • Vinnur að bættu skipulagi, skilvirkni og árangursstjórnun Umsjón með ráðningu hefur Intellecta. Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2019. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is. Henni skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar um starfið veita Þórður S. Óskarsson, thordur@intellecta.is og Thelma Kristín Kvaran, thelma@intellecta.is í síma 511 1225. Fullum trúnaði er heitið og umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Árið 2015 fékk Arion banki jafnlaunavottun VR, fyrstur íslenskra banka. Með jafnlaunavottun er búið að koma upp stjórnkerfi sem tryggir að ákvarðanir í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun. Í kjölfar endurvottunar í september 2018 fékk Arion banki heimild til að nota jafnlaunamerkið, aftur fyrstur íslenskra banka. Forstöðumaður mannauðs Arion banka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.