Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 6

Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 6
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í þjónustu verktaka í ýmsa verkflokka fyrir umhverfissvið Kópavogsbæjar. Verktaka er heimilt að bjóða í einn eða fleiri verkflokka eða einstaka verkþætti innan hvers verkflokks Verkflokkar eru eftirfarandi: • Véla- og gröfuvinna • Akstur með jarðefni • Vörubíll með krana • Gangstétta- og stígagerð, jarðvinna o.fl. • Yfirborðsfrágangur • Garðyrkja • Hirðing stofnanalóða • Hljóðvarnargirðingar • Snjómokstur Samningstími er þrjú ár. Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Útboðsgögn verða afhent rafrænt og skulu þeir sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta senda tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is frá og með mánu- deginum 25. mars 2019. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðar vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis. Tilboð skulu hafa borist í Þjónustuver Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1, 200 Kópavogur, fyrir kl. 11:00 mánudaginn 29. apríl 2019 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta. kopavogur.is ÚTBOÐ Rammasamningar um þjónustu verktaka 2019-2021 Reykja vík ur borg Innkaupadeild Borg artún 12-14, 105 Reykja vík Sími 411 1042 / 411 1043 Bréfsími 411 1048 Netfang: utbod@reykjavik.is Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Grandaskóli endurgerð lóðar 2019 2. áfangi – Jarðvinna, útboð nr. 14449. • Háteigsskóli endurgerð lóðar 2019 1. áfangi – Jarðvinna, útboð nr. 14452. • Brautarholtsvegur milli Hofsgrundar og Arnar- holtsvegar – Göngustígur, útboð nr. 14437. • Óðinsgata og Óðinstorg – Endurgerð, útboð 14477. • Malbiksyfirlagnir í Reykjavík – Útboð 1, vestan Kringlumýrarbrautar, útboð 14473. • Malbiksyfirlagnir í Reykjavík – Útboð 2, austan Kringlumýrarbrautar að Reykjanesbraut, útboð 14477. • Malbiksyfirlagnir í Reykjavík – Útboð 3, austan Reykjanesbrautar, útboð 14475. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod ÚTBOÐ Ríkiskaup Allar útboðsauglýsingar eru birtar á utbodsvefur.is Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að taka á leigu um 400 m² húsnæði fyrir Vínbúð á Akranesi. Húsnæðið mun skiptast að u.þ.b. 2/3 hlutum í verslunarsvæði og 1/3 hluta í lager og starfsmannaaðstöðu. Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum: 1. Vera á skilgreindu verslunarsvæði. 2. Liggja vel við almenningssamgöngum. 3. Umferð að og frá húsnæðinu skal vera greið. 4. Húsnæðið skal vera á jarðhæð. 5. Húsnæði bjóði upp á að vöruhurð opnist beint út á bak- eða hliðarsvæði. 6. Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini og næg bílastæði (a.m.k. 20 bílastæði sem eru ætluð Vínbúðinni eða sérmerkt Vínbúðinni). 7. Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera bílastæði fyrir starfsfólk. 8. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla með vörur skal vera góð. 9. Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt (hlutföll rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur, veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um versl- unarhluta húsnæðisins. 10. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnar- aðilar gera til slíks og vera samþykkt af þeim. Leigutími húsnæðisins er 8-10 ár. Húsnæðið skal afhenda samkvæmt samkomulagi og ræðst afhendingartími nánar af ástandi þess við afhendingu. Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykja- vík fyrir kl. 11:00, föstudaginn 5. apríl 2019 merkt: 40413 - Leiga á húsnæði fyrir Vínbúð ÁTVR á Akranesi. Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftir- farandi: 1. Staðsetning. 2. Teikningar af húsnæði. 3. Mögulegur afhendingartími. 4. Ástand húsnæðis við afhendingu. 5. Leiguverð án vsk. og skal það innifela allan sameiginlegan kostnað. 6. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á kröfuliði 1- 10 að ofan á leigutímanum. 7. Kvaðir sem kunna að hafa áhrif á starfsemi Vínbúðar á svæðinu ÓSKAST TIL LEIGU Til leigu Raðauglýsingar 569 1100 Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í 5 færanlegar kennslustofur uppsettar og fullbúnar til notkunar. Í verkinu fellst að hanna og byggja fimm færanlegar kennslustofur og skila fullbúnum til notkunar fyrir 20. ágúst 2019. Kennslustofurnar verða staðsettar á þrem skólalóðum, tvær við Kópavogsskóla, tvær við Smáraskóla og ein við Salaskóla (tengibygging). Heildarstærð á kennslustofu skal vera 80 - 85m², með 60m² kennslurými og að auki salernis- og ræstiaðstöðu ásamt forrými. Veggir að innan skulu vera í flokki 1. og skulu útveggir vera með óbrennanlegri útveggjaklæðningu. Kennslustofurnar skulu uppfylla allar kröfur sem gerðar eru í byggingareglugerð til skólahúsnæðis. Útboðsgögnin eru afhent rafrænt og skulu þeir, sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verkefni þetta, senda tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is, frá og með þriðjudeginum 26. mars 2019. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðs vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis. Tilboð skulu hafa borist í þjónustuver Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogur fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 11. apríl 2019 verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta. kopavogur.is ÚTBOÐ FÆRANLEGAR KENNSLUSTOFUR Við finnum rétta einstaklinginn í starfið www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf.      6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.