Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Og ég sem VAR nokkurn veg-
inn búinn að taka VAR í sátt!
Síðan verður þessi uppákoma í
leik Real Madrid og Ajax í
Meistaradeildinni í fótbolta í
fyrrakvöld.
Ajax skorar þriðja markið í
mögnuðum útisigri, og í kjölfarið
upphefst tveggja mínútna bið á
meðan reynt er að skoða með
aðstoð VAR, þ.e. myndbands-
upptökur skoðaðar, hvort boltinn
hafi farið út fyrir hliðarlínu eða
ekki skömmu áður.
Auðvitað varð niðurstaðan
eftir þessa vandræðalegu stöðv-
un á leiknum sú að aðstoðar-
dómarinn, sem var betur stað-
settur til að úrskurða um atvikið
en nokkur myndavél á vellinum,
hafði hárrétt fyrir sér. Boltinn fór
ekki út af.
Dómarinn gat loksins bent á
miðjupunktinn og látið leikinn
halda áfram.
Ég hélt að stefnan væri sú að
skoða bara stóru atvikin; mörk,
vítaspyrnur, rangstöðu. Ekki
hvort hugsanlega hefði átt að
dæma innkast eða ekki.
Þessi myndbandadómgæsla er
á villigötum ef það á að nota
hana svona.
En þessi glæsilegi sigur Ajax á
Real Madrid, 4:1, gefur til kynna
að gamla stórveldið frá Amster-
dam sé að komast á kortið á ný
sem meira en uppeldisstöð fyrir
stærstu félög Evrópu.
Ajax var stórkostlegt lið á sín-
um tíma, með Johan Cruyff í
fararbroddi, og varð Evr-
ópumeistari þrisvar í röð, 1971 til
1973, og svo aftur 1995.
Það var gaman að horfa á yfir-
vegaðan og flottan leik liðsins í
Madríd í fyrrakvöld og það verð-
ur spennandi að sjá hvað Ajax
gerir í átta liða úrslitunum.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
lið eru á leið í úrslitakeppnina á Ís-
landsmótinu eins og staðan er núna.
Þessi leikur gæti orðið mikil skák.
Þar sem menn hafa meiðst hjá FH
að undanförnu þá er maður ekki al-
veg viss um hverjir verða með.
Menn fórna sér kannski til þess að
reyna að vinna bikarinn,“ sagði Elv-
ar og bendir á að FH-ingum hafi
gengið vel að leysa úr þeim vanda-
málum sem upp hafa komið.
„Það virðist vera að allir leikmenn
liðsins geti spilað þetta leikkerfi
sem Dóri þjálfari (Halldór Jóhann
Sigfússon) lætur þá spila. FH-ingar
eru með Ása (Ásbjörn Friðriksson)
sem er geysilega klókur leikmaður
og getur stjórnað leikjum. Hann er
flottur leiðtogi fyrir þetta unga FH-
lið, sem drífur liðið áfram og sam-
herjarnir hlusta á hann.“
Hvað gerir Björgvin?
Elvar bendir á að í ÍR-liðinu séu
leikmenn sem geti tekið af skarið í
spennuleikjum. „ÍR spilar góða vörn
og er með Stephen Nielsen í mark-
inu fyrir aftan vörnina. Hann hefur
spilað marga mikilvæga leiki hér-
lendis og þekkir þessa stöðu. ÍR er í
raun með leikmenn í öllum stöðum
sem eiga að geta skilað framlagi
þegar pressan er mikil. Bjöggi
(Björgvin Þór Hólmgeirsson) er
mjög reyndur leikmaður og það
skiptir máli í svona úrslitaleikjum,“
sagði Elvar Örn í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Jöfn skák framundan hjá
FH-ingum og ÍR-ingum
Ósennilegt að Fjölnismenn geti staðið uppi í hárinu á Valsmönnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reyndir Björgvin Þór Hólmgeirsson og Ásbjörn Friðriksson takast á í Höllinni annað kvöld.
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Golfsamband Íslands gekk í gær
frá ráðningu á nýjum afreksstjóra
en sá heitir Gregor Brodie og tekur
við af Finnanum Jussi Pitkänen.
Brodie er 44 ára gamall Skoti og
hefur komið víða við í golfheiminum
á ferlinum. Ólst hann upp í Dundee
í Skotlandi sem ekki er ýkja langt
frá vöggu golfsins, St. Andrews, en
einnig Carnoustie, þar sem The
Open var haldið í fyrra. Síðar flutti
hann yfir á vesturströnd Skotlands
og bjó þá nærri völlum þar sem
The Open hefur einnig farið fram
eins og Troon og Turnberry. Bro-
die hefur því verið á þeim slóðum
þar sem golfíþróttin á sterkustu
ræturnar.
Brodie býr í Surrey á Englandi,
ekki langt frá Wentworth. Starf af-
reksstjórans er víðtækt og verk-
efnin eru bæði erlendis og hér-
lendis. Brodie flytur því ekki til
Íslands frekar en forveri hans.
„Í starfinu felst bæði að starfa á
Íslandi og einnig að fara á mót er-
lendis þar sem Íslendingar keppa.
Starfið er mjög víðtækt. Ég kem til
með að koma að fræðslustarfinu,
eins og menntun þjálfara. Starfa
með landsliðunum í öllum aldurs-
flokkum en einnig atvinnukylfing-
unum. Þetta verður frábært og ég
hlakka mjög til,“ sagði Brodie þeg-
ar Morgunblaðið náði í hann í síma
í gær og var hinn hressasti þótt
hann væri nýbúinn að fara í gegn-
um hinar yfirþyrmandi leiðinlegu
biðraðir á Heathrow-flugvelli.
Langtímauppbygging
Brodie segist horfa til langtíma-
uppbyggingar sem geti skapað góð-
an grundvöll fyrir afreksstarfið hjá
GSÍ. „Í rauninni horfi ég á þetta
sem tíu ára áætlun. Ég myndi vilja
fá helstu hugsuði í golfþjálfun til
landsins til þess að fræða þjálf-
arana á Íslandi. Ef getum fengið
verkefni fyrir yngri kylfingana
þannig að þeir nái tökum á keppn-
isgolfinu þá ættum við að geta verið
í ágætum málum eftir áratug. En
um leið þá eigum við núna kylfinga
sem halda íslenska fánanum á lofti
á mótaröðum atvinnumanna og
gæta þarf þess að þau geti gert það
áfram. Ég tel mig vera tilbúinn í
starfið í ljósi þeirrar menntunar og
reynslu sem ég hef,“ sagði Brodie
sem er með meistaragráðu í þjálf-
unarfræði frá Íþróttaháskólanum í
Birmingham á Englandi. Fram
kemur hjá GSÍ að Brodie hafi frá
árinu 2010 starfað sem PGA-
kennari og þjálfari. Hafi hann verið
valinn úr hópi fjörutíu umsækjenda
en þar af voru þrjátíu og tveir er-
lendir einstaklingar.
„Ég hafði komið tvívegis til Ís-
lands og hafði rætt við Jussi um
starfið hérlendis. Ég féll fyrir landi
og þjóð. Þar sem ég vissi jafnframt
að hér væri hægt að byggja upp
gott starf þá ákvað ég að sækja
um,“ sagði Gregor Brodie í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Ljósmynd/GSÍ
Ráðinn Brynjar Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ, og Gregor Brodie.
Nýi stjórinn féll
fyrir landi og þjóð
Skotinn Gregor Brodie tekur við af
Jussi Pitkänen Fjörutíu umsækjendur
Enska knattspyrnufélagið Wolver-
hampton Wanderers staðfesti í gær
að það hefði tapað rúmlega einni
milljón punda á hverri einustu viku
keppnistímabilið 2017-2018. Þá voru
Úlfarnir í B-deildinni en lögðu allt í
sölurnar til að vinna sér sæti í úr-
valsdeildinni, sem þeir gerðu með
nokkrum glæsibrag því þeir unnu
deildina.
Á vef félagsins var skýrt frá því að
fjárhagslegt tap 2017-18 væri til-
komið vegna kaupa á leikmönnum,
hærri launum og aukagreiðslum sem
fylgdu því að komast upp í úrvals-
deildina. Alls hefði tapið numið rúm-
lega 57 milljónum punda sem var
meira en helmingi meira en félagið
tapaði næsta tímabil á undan.
Öflugir leikmenn voru fengnir til
félagsins, eins og Ruben Neves,
Diogo Jota og Willy Boly. Wolves
hélt sínu striki í sumar og hefur frá
því úrvalsdeildarsætið var í höfn
eytt 109 milljónum punda í leik-
menn. Kappar á borð við Joao Mout-
inho, Rui Patricio og Raúl Jiménez
bættust í hópinn og hafa verið liðinu
mikilvægir í vetur. Fjárfestingin
hefur skilað sér á stigatöflunni en
Wolves er efsta liðið fyrir utan
„stóru sex“ og er í sjöunda sæti úr-
valsdeildarinnar með 43 stig þegar
níu umferðum er ólokið. vs@mbl.is
Töpuðu millj-
ón pundum
á viku í fyrra
Fjölnir
Bikarmeistari: Aldrei
Í bikarúrslitum: Aldrei
Staða: 1. sæti í næstefstu deild.
Valur
Bikarmeistari: 1974, 1988, 1990,
1993, 1998, 2008, 2009, 2011,
2016, 2017.
Í bikarúrslitum: Fjórtán sinnum.
Staða: 3. sæti í úrvalsdeild.
FH
Bikarmeistari: 1975, 1976, 1977,
1992, 1994.
Í bikarúrslitum: Ellefu sinnum.
Staða: 4. sæti í úrvalsdeild.
ÍR
Bikarmeistari: 2005, 2013.
Í bikarúrslitum: Fjórum sinnum
Staða: 7. sæti í úrvalsdeild.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Undanúrslit karla í bikarkeppni
HSÍ, Coca Cola-bikarnum, fara
fram í Laugardalshöllinni á morgun.
Eitt lið úr 1. deildinni, Grill 66-
deildinni, er komið í undanúrslitin
en það er Fjölnir sem fær verðugt
verkefni og glímir við Val í fyrri
leiknum klukkan 18. Í síðari leikn-
um klukkan 20:15 eigast við FH og
ÍR.
Morgunblaðið leitaði til landsliðs-
mannsins Elvars Arnar Jónssonar,
leikmanns Selfoss, og ræddi við
hann um viðureignirnar. Eins og
langflestir aðrir á Elvar erfitt með
að sjá annað fyrir sér en að vel
mannað lið Vals muni ýta Fjölni úr
vegi og leika til úrslita á laugardag-
inn.
„Allir búast við því að Valur vinni
enda er liðið frábært. Valur er með
mikla breidd og mér finnst það
skipta miklu máli fyrir liðið. Þótt
einn detti út þá tekur bara annar
góður leikmaður við,“ sagði Elvar
en Valsmenn hafa að undanförnu
verið án Róberts Arons Hostert og
Agnars Smára Jónssonar en þeir
urðu báðir bikarmeistarar með ÍBV
fyrir ári.
„Fjölnir er að sjálfsögðu litla liðið
í þessum leik og leikur í undan-
úrslitum er bikarævintýri fyrir 1.
deildar lið. Ég þekki lítið til Fjöln-
isliðsins en held að þeir séu með
nokkra leikmenn sem voru í Olís-
deildinni í fyrra. Valur er mun sig-
urstranglegra liðið enda frábært lið
en auðvitað er ekki útilokað að
Fjölnir geti komið á óvart.“
Ásbjörn er leiðtogi
Elvar lítur svo á að fyrirfram eigi
FH og ÍR jafn góðar vinningslíkur í
síðari leiknum. „Ég held að þetta
verði gríðarlega jafn leikur frá
fyrstu mínútu. Fyrirfram finnst mér
eins og þau eigi jafna möguleika en
bæði liðin eru mjög góð. Bæði þessi