Morgunblaðið - 25.03.2019, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
KÖRFUKNATTLEIKUR
8 liða úrslit karla, annar leikur:
DHL-höllin: KR – Keflavík (1:0)......... 19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Tindastóll (0:1)...... 19.15
Umspil karla, undanúrslit, annar leikur:
Ísafjörður: Vestri – Fjölnir (0:1) ......... 19.15
Umspil kvenna, undanúrslit, annar leikur:
Höllin Ak.: Þór Ak. – Grindavík (0:1) . 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Origo-höllin: Valur – Akureyri................. 18
Í KVÖLD!
markvarsla liðsins ekki nægilgea góð
og því fór sem fór.
Haukar stýrðu hraða leiksins af
mikilli yfirvegun allan tímann. Þá kom
breidd liðsins sér afar vel á lokamín-
útunum og þeir Atli Már Báruson og
Adam Haukur Baumruk voru báðir
með mikla orku til þess að sprengja
leikinn upp undir restina.
Selfyssingar fóru langleiðina með að
missa af deildarmeistaratitlinum í gær
en breiddin í liðinu er ákveðið
áhyggjuefni fyrir Patrek Jóhannesson,
þjálfara liðsins, þegar kemur að úr-
slitakeppninni. Haukar stigu upp þeg-
ar á þurfti í leiknum og allir leikmenn
liðsins voru tilbúnir að axla ábyrgð á
ögurstundu. Breiddin í liðinu er ógn-
vænleg og það verður erfitt fyrir önn-
ur lið að stoppa þá í úrslitakeppninni.
Hákon Daði skoraði 13 mörk
ÍBV fagnaði sigri á nýkrýndum
bikarmeisturum FH-inga, þegar liðin
mættust í Vestmannaeyjum í gær.
Eyjamenn komust í fyrsta sinn yfir á
56. mínútu leiksins en þá skoraði Há-
kon Daði Styrmisson sitt 13. mark í
leiknum. FH-ingar náðu að jafna met-
in en síðustu tvö mörkin voru Eyja-
manna og sigurinn því þeirra.
Eyjamaðurinn Hákon Daði
Styrmisson klikkaði ekki á skoti í
leiknum en hann skoraði 13 mörk, þar
af sjö af vítalínunni. Næstu menn í liði
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
Guðmundur Tómas Sigfússon
Ívar Benediktsson
Haukar eru í lykilstöðu í baráttunni
um deildarmeistaratitilinn í Olísdeild
karla í handknattleik eftir tveggja
marka sigur gegn Selfossi í 19. umferð
deildarinnar í Hleðsluhöllinni á Sel-
fossi í gær en leiknum lauk með 29:27-
sigri Hauka.
Haukar byrjuðu leikinn betur en
Selfyssingar unnu sig hægt og rólega
inn í hann með Elvar Örn Jónsson í
broddi fylkingar. Selfyssingar náðu
mest þriggja marka forskoti í fyrri
hálfleik en staðan í hálfleik var 15:13,
Selfossi í vil.
Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn af
miklum krafti og tókst að jafna metin í
upphafi síðari hálfleiks. Liðin skiptust
á að leiða, allt þar til fimm mínútur
voru til leiksloka, og þá tóku Haukar
yfir. Þeir náðu þriggja marka forskoti
þegar þrjár mínútur voru til leiksloka
og þann mun tókst Selfyssingum ekki
að vinna upp og Haukar fögnuðu sigri.
Selfyssingar spiluðu fyrri hálfleik-
inn af miklum krafti en það dró vel af
þeim í síðari hálfleik. Þeir fóru illa með
of margar sóknir og það voru of fáir
leikmenn í liðinu sem voru tilbúnir að
taka af skarið á ögurstundu. Þá var
ÍBV skoruðu fjögur mörk en það voru
Eyjamennirnir Dagur Arnarsson og
Elliði Snær Viðarsson.
FH-ingarnir Bjarni Ófeigur Valdi-
marsson og Ásbjörn Friðriksson
gerðu báðir sjö mörk en fimm af mörk-
um Ásbjörns komu af vítalínunni.
FH-ingar fengu tvö varin skot í síð-
ari hálfleik og komu þau á sömu mín-
útunni, hinar 29 mínúturnar tókst
þeim sem sagt ekki að verja eitt ein-
asta skot. Það var þó ekki einungis
döpur frammistaða markvarða þeirra
sem gerði það að verkum að ÍBV sneri
við 14:17 stöðu í fyrri hálfleik.
Mikið hallaði á FH-inga í dómgæsl-
unni og þá sérstaklega 3-4 atvik á
mikilvægum augnablikum í síðari hálf-
leik. Ágúst Birgisson og Leonharð
Þorgeir Harðarson vildu þá fá vítaköst
en fengu ekki og sátu því eftir með
sárt ennið. FH fékk þá 8 tveggja mín-
útna brottvísanir gegn einni hjá Eyja-
mönnum.
Fannar Friðgeirsson fékk rautt
spjald þegar lítið var eftir af leiknum
en hann fór þá í Einar Rafn Eiðsson
sem var kominn í gegn, ólíklegt verður
að teljast að Fannar fái leikbann enda
brotið ekki þess eðlis.
ÍBV hefur fengið 15 af 18 mögu-
legum stigum frá því að liðið tapaði
fyrir Haukum 32:26. FH-ingar eru nú í
4. sætinu.
Haukar eru
skrefi nær
titlinum
Breiddin skilaði þeim sigri á Selfossi
Eyjamenn skelltu bikarmeisturunum
Taktar Kristján Örn Kristjánsson í liði ÍBV býr sig undir að taka skot að marki FH
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kristófer Kristjánsson
Grindavík jafnaði óvænt í 1:1 í einvígi
sínu gegn Stjörnunni í átta liða úrslit-
um Íslandsmóts karla í körfubolta með
84:82-heimasigri í gærkvöldi. Grinda-
vík náði mest 20 stiga forskoti í leikn-
um, en með glæsilegum fjórða leik-
hluta tókst Stjörnunni að jafna í 82:82,
þegar 12 sekúndur voru til leiksloka.
Þá tók Ólafur Ólafsson, fyrirliði
Grindavíkur, til sinna ráða og skoraði
sigurkörfuna um leið og leiktíminn
rann út. Ólafur gerði það gríðarlega
vel, því hann var með Collin Pryor í
bakinu. Vörnin hjá Pryor var ekki slök,
en Ólafi tókst að koma boltanum yfir
hann, í hringinn og ofan í.
Grindavík hafnaði í áttunda sæti í
deildarkeppninni og Stjarnan varð
deildarmeistari. Flestir bjuggust því
við 3:0-sigri Stjörnunnar í einvíginu og
hefur Grindavík litlu að tapa. Það sást
á leik liðsins í gær og var mun meiri
barátta í heimamönnum. Þeir börðust
betur um hvert frákast og lögðu meira
á sig í vörninni.
Sigtryggur Arnar Björnsson sýndi
hvers vegna hann hefur spilað lands-
leiki, því hann var ákaflega góður þeg-
ar leikurinn var hve mest spennandi.
Hann skoraði úr öllum sex þriggja
stiga skotum sínum og öllum átta
skotum sínum fyrir innan teig. Hann
klikkaði hins vegar úr þremur víta-
skotum. Sigtryggur lék betur heilt yfir
með Tindastóli á síðustu leiktíð en
hann hefur gert með Grindavík í vetur,
en haldi hann uppteknum hætti í
úrslitakeppninni á Grindavík mögu-
leika í einvíginu. Jordy Kuiper spilaði
einnig virkilega vel og hefur hann orðið
sterkari eftir því sem liðið hefur á leik-
tíðina. Þrátt fyrir að vera með mann
eins og Hlyn Bæringsson í vörninni,
réðu Stjörnumenn illa við Hollending-
inn undir körfunni. Ólafur Ólafsson
skoraði mikilvægar körfur og auðvitað
mikilvægustu körfu leiksins, en Lewis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einvígi ÍR-ingurinn Hjalti Friðriksson reynir hér að ná boltanum úr greipum
Mario Matasovic í liði Njarðvíkur í baráttu þeirra í leik liðanna í gærkvöld.
Flautukarfa
Ólafur tryggði Grindavík óvæntan sigur
meisturunum Njarðvík fór illa með ÍR á
Mustad-höllin, Dominos-deild karla, 8
liða úrslit, annar leikur, sunnudaginn
24. mars 2019.
Gangur leiksins: 0:3, 5:11, 15:13,
24:15, 29:18, 40:20, 42:26, 48:32,
53:35, 58:41, 65:46, 67:53, 69:55,
74:58, 77:67, 84:82.
Grindavík: Sigtryggur Arnar Björns-
son 26/5 fráköst, Jordy Kuiper 24/11
fráköst, Ólafur Ólafsson 14/12 frá-
köst/5 stoðsendingar, Lewis Clinch Jr.
11/5 stoðsendingar, Ingvi Þór Guð-
mundsson 5/5 fráköst/7 stoðsend-
Grindavík – Stja
Olísdeild karla
ÍBV – FH .............................................. 31:29
Afturelding – KA.................................. 22:26
Selfoss – Haukar .................................. 27:29
Stjarnan – Grótta ................................. 30:27
ÍR – Fram ............................................. 23:28
Staðan:
Haukar 19 14 3 2 548:507 31
Selfoss 19 13 2 4 537:513 28
Valur 18 11 3 4 498:431 25
FH 19 10 5 4 524:494 25
ÍBV 19 9 3 7 542:536 21
Afturelding 19 7 5 7 512:505 19
Stjarnan 19 8 1 10 520:537 17
KA 19 6 3 10 488:505 15
ÍR 19 5 4 10 499:522 14
Fram 19 6 1 12 479:507 13
Akureyri 18 4 2 12 462:498 10
Grótta 19 3 2 14 429:483 8
Baltic-keppni kvenna
Leikið í Póllandi:
Ísland – Argentína ............................... 31:26
Pólland – Slóvakía ................................ 29:23
Pólland – Argentína ............................. 26:23
Slóvakía – Ísland .................................. 28:30
Pólland 6, Ísland 4, Slóvakía 2,
Argentína 0.
Gulldeild kvenna
Leikið í Frakklandi:
Noregur – Rúmenía ............................ 31:27
Frakkland – Noregur ......................... 22:24
Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Frakkland – Danmörk ......................... 22:25
Danmörk – Rúmenía............................ 36:23
Þýskaland
Gummersbach – Bergischer .............. 22:29
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer.
Staðan: Flensburg 48, Kiel 44, RN Lö-
wen 40, Magdeburg 40, Melsungen 32,
Füchse Berlín 30, Bergischer 27, Göppin-
gen 28, Erlangen 22, Lemgo 21, Burgdorf
21, Minden 20, Stuttgart 20, Wetzlar 18,
Leipzig 14, Gummersbach 9, Bietigheim 8,
Ludwigshafen 7.
B-deild:
Balingen – Dessauer ........................... 27:25
Oddur Gretarsson skoraði ekki fyrir
Balingen.
Hamburg – Aue ................................... 26:26
Aron Rafn Eðvarðsson varði 6 skot í
marki Hamburg.
Spánn
Alcobendas – Ademar León............... 24:25
Stefán Darri Þórsson skoraði ekki fyrir
Alcobendas.
Svíþjóð
8 liða úrslit, fyrsti leikur:
Malmö – Sävehof .........................(frl.) 25:28
Ágúst Elí Björgvinsson varði 12 skot í
marki Sävehof.
Austurríki
Schwaz – Aon Fivers........................... 22:29
Ísak Rafnsson skoraði 3 mörk fyrir
Schwaz.
Meistaradeild karla
16 liða úrslit, fyrri leikir:
Wisla Plock – Pick Szeged ................. 20:22
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 2
mörk fyrir Pick Szeged.
Motor Zaporozhye – Kielce ................. 33:33
Meshkov Brest – Flensburg................ 28:30
Zagreb – Vardar Skopje ...................... 18:27
Sporting Lissabon – Veszprém........... 28:30
EHF-bikar karla
A-RIÐILL:
Saint-Raphaël – Füchse Berlín.......... 34:31
Bjarki Már Elísson skoraði 6 mörk fyrir
Füchse.
Füchse Berlín 8, Saint-Raphaël 8, La
Rioja 2, Balatonfüredi 2.
C-RIÐILL:
Constanta – Tvis Holstebro................ 22:28
Vignir Svavarsson hjá Holstebro er frá
keppni vegna meiðsla.
Porto 10, Tvis Holstebro 4. Constanta 4,
Cuenca 2.
D-RIÐILL:
Kiel – Granollers ................................. 34:28
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla. Alfreð Gíslason
þjálfar liðið.
GOG – Azoty-Pulawy.......................... 41:29
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 3 mörk
fyrir GOG.
Kiel 10, GOG 6, Granollers 3, Azoty-Pu-
lawy 1.
HANDBOLTI