Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 1

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 1
       atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 Fasteignamiðlun Grafarvogs, sem hefur starfað um áraraðir, óskar eftir að ráða löggiltan fasteignasala. Viðkomandi þarf að vera drífandi og geta unnið sjálstætt auk þess að vera góður í mannlegum sam- skiptum. Fullum trúnaði er heitið. Umsóknir sendist á stella@fmg.is Löggiltur fasteignasali óskast SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með stjórnsýslu, fjármálum og starfsmannahaldi sveitarfélagsins og stofnana þess. Hann er staðgengill bæjarstjóra og hefur yfirumsjón með fjármálastjórnun bæjarins og stofnana í samráði við aðalbókara og bæjarstjóra. Í störfum sínum hefur sviðsstjóri mikil samskipti við íbúa bæjarfélagsins og starfsmenn einstakra deilda og stofnana. SVIÐSSTJÓRI FJÁRMÁLA- OG STJÓRNSÝSLUSVIÐS SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS Helstu verkefni sviðsstjóra • Yfirumsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins • Fjármálastjórnun og úrvinnsla fjárhagsupplýsinga fyrir kjörna fulltrúa • Ábyrgð á fjárhagsáætlanagerð og vinnu við ársreikninga • Samningagerð og eftirfylgni með samningum • Umsjón með persónuverndarmálum • Yfirumsjón og ábyrgð með leyfisveitingum, uppfærslum á samþykktum, reglum og gjaldskrám • Tengsl við önnur stjórnvöld, hagsmunaaðila, stofnanir og fyrirtæki vegna stjórnsýsluverkefna og einstakra erinda og verkefna • Umsýsla fundarboða, fundargerða og afgreiðsla erinda bæjarráðs og bæjarstjórnar • Að leiða samstarf sviðsstjóra í yfirstjórn bæjarins Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði viðskipta- eða hagfræði • Reynsla af fjármálastjórnun • Þekking á skjalastjórnunar- og bókhaldskerfum • Þekking á sviði kjaramála er kostur • Farsæl reynsla af stjórnun, mannauðsmálum og samningagerð • Þekking og reynsla af stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga er kostur • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Góðir samstarfshæfileikar Nánari upplýsingar veita: Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk. og eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. Auglýst er laust til umsóknar starf aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna sf., sem er staðgengill hafnarstjóra. Í starfinu felst m.a.: • Áætlanagerð, forsendur hönnunar mannvirkja, eftirlit og umsjón með ástandi hafnarmannvirkja, siglingaleiðum og dýpi. • Undirbúningur lóða- og landgerðar. • Stjórn og eftirlit með gæðamálum framkvæmda. • Önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin og falla innan eðlilegs starfsviðs aðstoðarhafnarstjóra. Leitað er eftir starfsmanni sem hefur eftirfarandi til að bera: • Háskólamenntun í verkfræði sem nýtist í starfi. • Reynslu af mannvirkjagerð. • Skipulagshæfni og reynslu af áætlanagerð. • Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki. • Góða kunnáttu og færni í ensku. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 17. apríl nk. Umsókn og ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila skal skilað til Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17, Reykjavík eða þær sendar mannauðs- og launafulltrúa Faxaflóahafna sf. á netfangið olafur@faxafloahafnir.is. Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri í síma 525 8900. Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf. Aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna sf. FAST Ráðningar www.fastradningar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.