Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Launafulltrúi óskast Framtíðarstarf — starfshlutfall 70-100% Starfssvið: • Vinnsla launabókhalds, þar með talið útreikningur, samantekt yfirvinnu, greiðsla launa og skil launatengdra gjalda • Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsmanna • Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila • Ýmis önnur störf í tengslum við launabókhald og starfsmannahald Hæfniskröfur: • Góð reynsla af launabókhaldi er nauðsynleg • Góð þekking á H3 og Bakverði er mikilvæg • Þekking á kjarasamningum sem og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna • Góð skipulagning, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Þjónustulyndi, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Árvakurs, í síma 569-1332 eða á svanhvit@mbl.is. Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2019 og viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Umsóknir skal fylla út á mbl.is, neðst á forsíðu. Tónlistarskóli A-Húnavatnssýslu óskar eftir að ráða í stöðu blásturshljóðfærakennara í 100% starf frá september 2019 Staða kennara á blásturhljóðfæri laus til umsóknar Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2019. Hæfniskröfur: Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi. Laun: Samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FÍH/FT. Nánari upplýsingar: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir skólastjóri tónlistaskólans í síma 868 4925 eða á netfanginu tonhun@tonhun.is Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og færni á blásturshljóðfæri, vera fær í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af að vinna með börnum. Einnig þarf viðkomandi að vera metnaðarfullur og áhugasamur. Skólinn hefur þrjár starfsstöðvar, á Skagaströnd, Blönduósi og Húnavöllum og eru nemendur skólans tæplega 90. Kennt er á öll helstu hljóðfæri og er mikið samstarf milli grunnskóla og tónlistarskóla. Stór hluti nemenda kemur á skólatíma í kennslustundir. tonhun.is www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára- löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs- ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.