Morgunblaðið - 28.03.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
kopavogur.is
Grunnskólar
Dönskukennari í Hörðuvallaskóla
Enskukennari í Hörðuvallaskóla
Kennarar í Kópavogsskóla
Náms- og starfsráðgjafi í Smáraskóla
Náttúrufræðikennari í Hörðuvallaskóla
Skólaritari í Kársnesskóla
Tónmenntakennari í Salaskóla
Umsjónarkennari í Álfhólsskóla
Umsjónarkennari í Kársnesskóla
Umsjónarkennari í Smáraskóla
Leikskólar
Aðstoðarmatráður í Fögrubrekku
Leikskólakennari í Baug
Leikskólakennari í Efstahjalla
Leikskólakennari í Fögrubrekku
Leikskólakennari í Læk
Sérkennari í Læk
Stjórnsýslusvið
Forstöðumaður Gerðarsafns
Velferðarsvið
Ritari í afgreiðslu
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
Eingöngu er hægt að sækja um störfin í
gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Skólaþjónusta Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir laust starf
talmeinafræðings
Starf talmeinafræðings við Skólaþjónustu Rangár-
valla- og Vestur-Skaftafellssýslu á Hvolsvelli er laust til
umsóknar. Um er að ræða 50% starf sem ráðið verður
í frá og með 1. ágúst nk.
Helstu verkefni:
- Greiningar á tal- og málvanda og mat á málþroska
leik- og grunnskólabarna á starfssvæði skóla-
þjónustunnar.
- Mál- og talþjálfun í kjölfar greininga.
- Ráðgjöf við foreldra og starfsfólk skólanna.
- Þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga
stofnunarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Fullgilt nám í talmeinafræðum frá viðurkenndum
háskóla.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð hæfni og lipurð í samskiptum við börn og
fullorðna.
- Jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi.
Við Skólaþjónustuna starfar öflug liðsheild sérfræð-
inga sem vinnur í þverfaglegu samstarfi og saman-
stendur auk talmeinafræðings af kennsluráðgjafa,
leikskólaráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa og sál-
fræðingi.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. Umsóknir skulu
berast rafrænt á netfangið skolamal@skolamal.is, eða
í pósti á skrifstofu Skólaþjónustunnar, Austurvegi 4,
860 Hvolsvelli. Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám
og fyrri störf og ábendingar um meðmælendur.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi við-
komandi stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Edda G. Antonsdóttir
forstöðumaður Skólaþjónustu Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu í netfanginu edda@skolamal.is
eða í síma 487-8107/862-7522.
Leitum að starfsmanni
í viðhald og
verðmætaflutninga
FoodCo á og rekur sjö þekkt vörumerki í veitinga-
geiranum á Íslandi. Samtals starfa hjá okkur um 450
manns á 21 útsölustöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Hjá fyrirtækinu starfar þéttur hópur af skemmtilegu
og hæfileikaríku fólki.
Við leitum að starfsmanni sem er laghentur og fellur vel að
góðum hópi starfsfólks okkar. Starfið hentar einstakling sem
hefur framúrskarandi samskiptahæfileika, þjónustulund og
gengur í verk.
Lýsing á starfinu
Viðkomandi sér um að flytja verðmæti á milli staða, sinnir
almennu viðhaldi á veitingastöðunum og almennum
sendlastörfum auk sérverkefnum þegar við á.
Samskipti og þjónusta við leiðtoga á veitingastöðum.
Reglulegur vinnutími er frá 9-17 á virkum dögum auk þess að
sinna útköllum utan hefðbundins vinnutíma.
Hæfniskröfur
· Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
er skilyrði
· Bílpróf
· Iðnmenntun er mikill kostur, s.s. rafvirkjun, smíði o.fl.
· Þekking og reynsla af viðgerðum
· Skipulagshæfni og verkvit eru skilyrði
· Gott er að viðkomandi sé duglegur til verka og stundvís
· Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
· Hreint sakavottorð
· Íslensku kunnátta er skilyrði og góð enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2019.
Með umsókn skal skila ferilskrá (CV) og rökstuðningi á hæfni
einstaklings í starfið.
Nánari upplýsingar veitir María Rún Hafliðadóttir mannauðs-
stjóri FoodCo (maria@foodco.is).
Hægt er að sækja um starfið á www.FoodCo.is.
Vantar meiraprófsbílstjóra
í fullt starf og sumarafleysingar.
Íslenska er skilyrði
og hreint sakavottorð.
Sendið umsóknir ásamt ferilskrá
á sendibilarrvk@simnet.is
Bílstjórar óskast Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Undirritaðir voru í vikunni
samningar milli UNICEF á
Íslandi og Hafnarfjarðarbæjar
um að bæjarfélagið innleiði
Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna og fái með því við-
urkenningu sem barnvænt
sveitarfélag UNICEF á Ís-
landi. Með undirrituninni í dag
skuldbinda fulltrúar Hafn-
arfjarðarbæjar sig til þess að
forsendur Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna gangi
sem rauður þráður í gegnum
þjónustu sveitarfélagsins.
„Þetta er mjög gleðilegt og
jákvætt skref í þá átt að
byggja upp breiðfylkingu
sveitarfélaga á Íslandi sem láta
sig mannréttindi barna varða,
með barnasáttmálann að leið-
arljósi, “ segir Bergsteinn
Jónsson, framkvæmdastjóri
UNICEF á Íslandi. „Það hef-
ur verið mikil eftirspurn frá
sveitarfélögum landsins um
stuðning við innleiðingu sátt-
málans og við hjá UNICEF á
Íslandi viljum gera það sem í
okkar valdi stendur til að svara
þeirri eftirspurn.“
Heilt þorp þarf
til að ala upp barn
Í tilkynningu er haft eftir
Rósu Guðbjartsdóttur, bæj-
arstjóra í Hafnarfirði, að börn
og þjónusta við þau séu í for-
grunni hjá bæjarfélaginu. Með
samningnum við UNICEF á
Íslandi sé sú áhersla nú færð
yfir í orð, ferla og framkvæmd.
„Það þarf heilt þorp til að ala
upp barn og þar spilar sveitar-
félagið stórt hlutverk. Við vilj-
um skapa samfélag þar sem
börnum á öllum aldri líður vel
og fá notið persónulegrar þjón-
ustu, hvatningar og stuðnings í
gegnum sín uppvaxtarár. Ég
hlakka til samstarfsins og þess
að leggja enn frekar línurnar í
þessum málaflokki,“ segir
Rósa í tilkynningu.
Barnvænn bær
Hafnarfjarðarbær hefur sam-
starf við UNICEF á Íslandi
Handsal Bergsteinn Jónsson frá UNICEF á Íslandi og Rósa
Guðbjartsdóttir í Hafnarfirði leiða mál til lykta.
Fulltrúar bílaumboðsins
Öskju og skipuleggjendur
hjólreiðakeppninnar Gull-
hringsins skrifuðu í vikunni
undir áframhaldandi sam-
starf við hjólreiðamótið.
Askja kom fyrst að þessu
verkefni árið 2014 undir
merkjum Kia og hefur síðan
verið einn helsti bakhjarl
þess.
„Þetta verkefni hefur
gengið vel. Við leggjum enn
meira í keppnina á komandi
árum og þá sérstaklega til
þess að tryggja öryggi kepp-
enda, og um leið gera um-
gjörðina enn skemmtilegri,“
segir Jón Trausti Ólafsson,
framkvæmdastjóri Öskju.
Skráning í Kia Gullhring-
inn hefst næstkomandi laug-
ardag, 30 mars. Keppnin
verður í ágústlok í sumar en
hún hefur verið haldin að
Laugarvatni frá 2012.
Keppnin hefur verið ein sú
vinsælasta og fjölmennasta í
hjólreiðunum og hefur það
verið sérstakt aðdráttarafl
hennar að hún býður upp á
vegalengdir við allra hæfi og
þar keppa byrjendur jafnt
sem lengra komnir og allir
skemmta sér konunglega
saman.
Takmarkanir hafa verið
settar á mótið í ár og verða
ekki fleira en 500 keppendur
skráðir til leiks, segir í til-
kynningu. sbs@mbl.is
Styðja Gullhringinn
Askja og KIA eru áfram bak-
hjarlar Góð hjólreiðakeppni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjólreiðar KIA-fólk ræst í
keppninni að Laugarvatni.
Jón Hrói Finnsson stjórnsýslufræðingur hef-
ur hafið störf sem ráðgjafi hjá RR ráðgjöf,
sem er sérhæft fyrirtæki í stjórnsýslumálum
og málefnum sveitarfélaga. Fyrirtækið sinn-
ir verkefnum sem varða stjórnsýslu, stjórn-
un, rekstur og stefnumótun.
Að baki á Jón Jón Hrói, sem er með emb-
ættispróf í stjórnsýslufræði (Cand.Sci.Pol)
frá Háskólanum í Árósum, langa reynslu, en
hann starfaði sem stjórnsýsluráðgjafi hjá
ParX – viðskiptaráðgjöf á árunum 2004-
2006. Þá var hann í nokkur ár sveitarstjóri
Svalbarðsstrandarhrepps, sviðsstjóri velferðar- og mannrétt-
indasviðs Akraneskaupstaðar, stýrði búsetusviði Akureyr-
arbæjar og var þróunarstjóri Fjallabyggðar. Í störfum sínum
hefur hann öðlast mikla þekkingu á félagsmálum og þjónustu
við fatlað fólk.
Jón Hrói til liðs við RR ráðgjöf
Jón Hrói
Finnsson