Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 E ngin undantekning verður á skemmtilegheitum og metnaði þetta árið en göngugatan mun bók- staflega iða af lífið fimmtu- daginn 7. mars og verslanir bjóða viðskiptavinum sínum veglegan af- slátt eða dekra við þá með sínum hætti. Tinna Jóhannsdóttir, mark- aðsstjóri Smáralindar, segir skemmtiatriðin sjaldan eða aldrei hafa verið betri en í ár og leyfir sér því að lofa góðu kvöldi. „Sjálfur Páll Óskar Hjálmtýsson stígur á stokk hjá okkur auk þess sem Stjórnin, Greta Salóme og Birgir Steinn munu gleðja augu og eyru viðskiptavina Smáralindar. Það verður ekki mikið flottara.“ Mikilvæg ár að baki Að sögn Tinnu er Smáralindin á lokametrum í endurskipulagningu sem staðið hefur yfir um nokkurt skeið. „Framkvæmt hefur verið á 20.000 af þeim rúmlega 60.000 fer- metrum sem bygging Smáralindar samanstendur af og það má því segja að stór hluti hennar sé nýr og endurbættur. Nýir inngangar með nýrri lýsingu, ný barnasvæði, ný auglýsingaskilti, ný upplýsingaskilti auk þess sem nýjar verslanir og veit- ingastaðir hafa bæst í hópinn á með- an aðrir hafa fengið upplyftingu.“ Ný alþjóðleg vörumerki Smáralind hefur á undanförnum ár- um tekist að ná til landsins með mik- ið af þekktum og sterkum alþjóð- legum vörumerkjum. Zara rekur sína einu verslun á Íslandi í Smára- lind, flaggskipsverslun H&M er í Smáralind auk þess sem stærsta H&M Home-verslunin er einnig í húsinu. „Þá verða opnaðar hér tvær nýjar alþjóðlegar verslanir í Smára- lind í maí, Weekday og Monki, en koma þeirra til landsins mun breyta miklu fyrir okkur enda höfum við haldið þeim rýmum í töluverðan tíma því þetta voru þau vörumerki sem við vildum fá í hús auk annarra sem við erum í viðræðum við um þessar mundir.“ Umhverfi smásölu hefur tekið breytingum Að sögn Tinnu hefur smásöluum- hverfið tekið gríðarlega miklum breytingum að undanförnu þó svo að hún vilji meina að við hér á Íslandi höfum fundið minna fyrir því en margir aðrir markaðir sem stærri eru. „Á heimsvísu eru flest fyrirtæki að fækka fermetrum sínum, auka við sýnileika sinn í netsölu, auka við þjónustustig sitt og snertifleti við viðskiptavinina. Þau fyrirtæki sem skara munu fram úr í þessum bransa til framtíðar að mínu mati, eru þau sem munu ná að sinna sinni „físísku“ verslun vel með háu þjónustustigi, í bland við aukinn sýnileika á netinu og netverslun. Að versla í gegnum netið er ekki fyrir alla en flest okkar erum þannig að við viljum skanna á netinu, skoða úrvalið, mynda okkur skoðun, bera saman og þess háttar áður en við leggjum af stað í versl- unina sem okkur líst best á. Þar vilj- um við þukla, þreifa, máta og fá til- finningu fyrir vörunni og gæðum hennar. Suma hluti er ekkert mál að kaupa í gegnum netið á meðan það er erfiðara með aðra. Til framtíðar þurfum við því þetta mix, þessa blöndu sem getur skilið á milli feigs og ófeigs til framtíðar held ég.“ Áhrifavaldar og styrkur sam- félags- og stafrænna miðla hafa breytt viðskiptamódelum margra þessara fyrirtækja og þau eru í auknum mæli farin að einbeita sér að því að hanna fatnað sem telst til götutísku. Lúxusvörumerkin eins og Gucci og Prada hafa stækkað mark- hóp sinn og sá flokkur smásölu gengur hvað best á heimsvísu í dag. „Markhópur þeirra hefur stækkað gríðarlega og alveg niður í unglinga sem fyrir nokkrum árum höfðu lít- inn sem engan áhuga á þessum flokki vörumerkja.“ Verslunarmiðstöðvar eru upplifunarhús Upplifun er orð sem hefur verið mik- ið í umræðunni að undanförnu. Með tilkomu samfélagsmiðla er sjónræn upplifun orðin miklu mikilvægari, umhverfi og stemning spilar stærri rullu en nokkru sinni áður og mat- arupplifun er nokkuð sem nær bæði yfir bragð gæði og útlit þess sem við neytum. „Samfélagsmiðlarnir hafa breytt hegðun okkar og fólk sækir í dag í vörur og umhverfi sem er sjón- rænt, myndrænt og líklegt til að auka fylgi okkar og eftirtekt á sam- félagsmiðlunum.“ Tinna segir kynslóðina sem nú sé að vaxa úr grasi hafa almennt miklu meiri áhuga á að upplifa og eyða peningum í slíkt heldur en kynslóðin sem á undan var. „Ungt fólk ferðast mikið, dvelur lengur í heimahúsum, menntar sig meira og fer meira út að borða og í bíó. Það er gríðarlega meðvitað um það framboð sem í boði er hverju sinni enda ógrynni af upp- lýsingum miðlað frá fyrirtækjum á hverjum degi á samfélagsmiðlunum. Þá vilja viðskiptavinir í dag að allt gangi smurt og vel fyrir fyrir sig, kaupferlar séu stuttir og snurðu- lausir og að aðgengi sé frábært. Nú- tímaeinstaklingurinn er stöðugt í kapphlaupi við tímann og við leit- umst stöðugt eftir því að spara tíma. Allt sem einfaldar lífið er vel þegið og skapar viðskiptavild í dag.“ Tinna bendir á að þetta séu þær augljósu breytingar sem hafi orðið á rekstri verslunarmiðstöðva sem og fyrirtækja. „Við erum stöðugt að fylgjast með tískustraumum í heim- inum og aðlaga okkur breyttri hegð- un og þörfum fólks og markaðarins. Svona hús eins og Smáralind eru lif- andi og eiga að vera það, stuðla að breytingum og það má aldrei sofna á verðinum auk þess sem gæta verður að því að hér sé eitthvað fyrir alla aldurshópa, bæði kynin, hátíska og útvistarfatnaður, veitingastaðir, upplifun, matvara, þjónusta eins og skósmiður og blómabúð og allt það sem hugurinn girnist. Við viljum að í Smáralind fáir þú allt sem þú þarft, vinsælustu vörumerkin á mark- aðnum, á einum þægilegum og björt- um stað með frábæru aðgengi.“ Tinna segir einstaklega spennandi tíma framundan og að fleiri breyt- ingar verði kynntar á næstunni. kolbrun@mbl.is Tvær nýjar alþjóðlegar verslanir opnaðar í Smáralind Konukvöld Smáralindar og K100 er einn af hápunkt- um ársins hjá verslunarmiðstöðinni en kvöldið hefur alltaf verið gríðarlega skemmtilegt og vel sótt. Undirbúningur konukvölds Smáralindarinnar hefur verið í fullum gangi undanfarna daga. Tinna Jóhannsdóttir markaðsstjóri Smára- lindar segir breytingar í vændum í húsinu. „Nútímaeinstaklingurinn er stöðugt í kapphlaupi við tímann og við leitumst stöðugt eftir því að spara tíma. Allt sem einfaldar líf- ið er vel þegið og skapar viðskiptavild í dag.“ Verslunin Zara í Smáralind er nú á tveimur hæðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.