Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Grunnskóli Drangsness er fámennur skóli þar sem starfa að jafnaði 10-15 nemendur í tveimur til þremur bekkjardeildum. Auk nemenda starfa við skólann tveir kennarar ásamt skólastjóra. Í skólanum er lögð rík áhersla á fjölbreytt nám sem byggir á mikilli samvinnu og sköpunargleði þar sem leitast er við að koma til móts við þarfir og áhuga hvers og eins. Hér gefst skapandi kennurum einstakt tækifæri til þess að móta og þróa skólastarfið í samvinnu við samstarfsfólk og nemendur. Við skólann er gróðurhús og er ræktun matjurta snar þáttur í skólastarfinu ásamt trjárækt í skólalundinum í Bjarnarfirði. Mörg spennandi verkefni eru unnin í skólanum m.a. í samstarfi við nærumhverfið, aðra fámenna skóla og skóla í nærliggjandi sveitarfélögum. Við óskum eftir öflugum grunnskólakennara í 80-100% starf frá 1. ágúst 2019. Starfsmaðurinn skal hafa leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Reynsla af teymisvinnu, mótun skólastarfs og því að vinna með fjölbreyttan nemendahóp í samkennslu árganga er kostur. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. Allar nánari upplýsingar um ofangreint starf veitir Marta Guðrún Jóhannesdóttir skólastjóri í síma 451-3436 eða í gegnum netfangið skoli@drangsnes.is. Með umsóknum skal fylgja ferilskrá, meðmæli og stutt greinargerð um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um réttindi viðkomandi umsækjanda. Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2019     Laus störf við Grunnskóla Drangsness í Kaldrananeshreppi Drangsnes er um 70 manna þéttbýliskjarni í Kaldrananeshreppi á Ströndum í um þriggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Reykjavík. Á Drangsnesi er kaupfélag, sundlaug, aðstaða til heilsuræktar og leikskóli. Ómetanleg náttúru- fegurð er á Drangsnesi og dásamlegir heitir pottar í fjöruborðinu rétt við skóla- húsnæðið, ásamt nýlegri sundlaug auk Gvendarlaugar í Bjarnarfirði. Önnur þjónusta s.s. eins og heilsugæsla, apótek og banki er á Hólmavík næsta þéttbýliskjarna við Drangsnes í um 33 km fjarlægð um malbikaðan veg. Interviews will be held in Reykjavik in May and June For details contact: Tel.:+ 36 209 430 492 Fax:+ 36 52 792 381 E-mail: omer@hu.inter.net internet: http://www.meddenpha.com Study Medicine and Dentistry In Hungary “2019” Útgerðarfélag Reykjavíkur Baader-maður Útgerðarfélag Reykjavíkur óskar eftir Baader manni á Kleifaberg RE 70 í veiðiferð sem hefst 24. apríl. Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 843 4266, 580 4200 eða 843 4226 Talmeinafræðingur Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu talmeinafræðings lausa til umsóknar. Umsækjandi hafi starfsbundin réttindi talmeina- fræðings. Laun skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skriflegar umsóknir er tilgreini nöfn 2ja umsagnar- aðila, menntun, fyrri störf og sakavottorð berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 31. maí 2019. Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ, sveinn@fssf.is, s. 430 7800 og 861 7802. www.skagafjordur.is Leikskólastjóri óskast til starfa Vilt þú vera hluti af öflugu stjórnendateymi í leik- og grunnskólum Skagafjarðar? Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir stöðu leikskólastjóra lausa til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2019 eða eftir samkomulagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að leiða skólastarfið með jákvæðum hætti, stilla saman strengi starfsmanna og heimila og vera tilbúinn til að vinna í teymum með sérfræðingum skólaþjónustu og yfirstjórn skólamála í héraðinu. Hann þarf að vera framsýnn, lausnamiðaður, hugmyndaríkur og umbótasinnaður. Ítarlegri upplýsingar um starfið auk menntunar- og hæfniskröfur má finna á heimasíðu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2019. Nánari upplýsingar veitir Herdís Á Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 455 6000 eða has@skagafjordur.is Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um. Hætta ætti við öll áform um sameiningu embættis Toll- stjóra við Ríkisskattstjóra eða aðrar stofnanir. Þetta segir í ályktun sem félags- menn Tollvarðafélags Íslands samþykktu á aðalfundi félags- ins í síðasta mánuði. Vísað er til slæmrar reynslu af slíkri tilraunastarfsemi, meðal ann- ars í Danmörku. Félagsmenn óttast að ákvarðanir sem verða teknar veiki tollgæslu í landinu. Nefnd skipuð af fjármála- ráðherra um aukna skilvirkni í skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda skilaði tillögu að upp- skiptingu á embætti Toll- stjóra. Er gert ráð fyrir að innheimtuhluti Tollstjóra verði færður undir embætti Ríkisskattstjóra. Hefur Al- þingi samþykkt þá tillögu nefndarinnar og við það gera tollverðir engar athuga- semdir. Umrædd nefnd á þó eftir að taka afstöðu til þess hvað verði um tollasvið Toll- stjóra. Því viðvíkjandi vekja tollverðir athygli á að ekkert samráð hafi verið haft við þá – og vilji þeirra er að embætti Tollstjóra verði áfram sjálf- stæð stofnun. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Ófeigur Tollhúsið Stórhýsi við Tryggvagötu í Kvosinni í Reykjavík. Tollstjórinn lifi  Starfsmenn eru gegn breyt- ingum  Sameinist ekki RSK Fjölmargar úrbótatillögur og ný verkefni sem snúa að vinnu með börnum og ung- mennum hafa litið dagsins ljós hjá Kópavogsbæ í tengslum við aukna sam- vinnu mennta- og velferðar- sviðs. Tilgangur verkefnanna er að þjónustan verði heild- stæðari, nái til stærri hóps barna og ungmenna og að meiri áhersla verði á fyrir- byggjandi aðgerðir. Unnið hefur verið að auknu sam- starfi síðustu mánði, segir í frétt frá bæjarfélaginu. Þjónusta við börn sem þurfa sértækan stuðning og fjölskyldur þeirra verður aukin. Það felur meðal ann- ars í sér frekari stuðning fyrir börn á almennum sum- arnámskeiðum og að mynda brú milli grunn- og fram- haldsskóla þegar kemur að útskrift nemenda sem þarfn- ast stuðnings. Meiri fjölbreytni verður í námskeiðum fyrir börn, ung- menni og foreldra þeirra. Boðið verður upp á námskeið gegn kvíða og í foreldra- færni. Í frístundastarfi verð- ur aukin áhersla lögð á þátt- töku barna sem hafa annað móðurmál en íslensku og á þátttöku barna sem þurfa sértækan stuðning. Frí- stundastyrkurinn verður kynntur og leitað leiða til að sem flestir þekki styrkinn og nýti sér hann. Efla stuðning við ungmenni í Kópavogi Auglýsingastofan Hype hef- ur kynnt til sögunnar nýtt nafn og ásýnd og heitir nú Aldeilis. Starfsemin var flutt undir lok síðasta árs á Hverfisgötu 4 í Reykjavík og er því nú fagnað með nýju nafni. Stofan er sex ára gömul og þar hefur fólk verið afkastamikið í vefsíðu- gerð. „Við viljum með þessum hamskiptum ná betur utan um þá framtíðarsýn sem við höfum. Viðskiptavinahópur- inn hefur stækkað og verk- efnum fjölgað síðastliðin tvö ár. Við fluttum okkur um set núna í lok ársins og samhliða þessum vexti höf- um við mótað hér ákveðna framtíðarsýn sem nú raun- gerist með Aldeilis. Við höf- um safnað að okkur frá- bæru fólki, bæði starfsfólki og samstarfsaðilum,“ segir í tilkynningu, haft eftir Páli Guð- brands- syni, fram- kvæmda- stjóra Aldeilis. „Við viljum síð- ur tala um stafræna markaðssetningu sem eitt- hvert sér fyrirbæri. Þetta er einfaldlega ein birtingar- mynd á markaðsstarfi og auglýsingamiðlun fyrirtækja í dag. Endanleg útfærsla og miðlun skilaboða verður þó alltaf að taka mið af mark- miðum hvers verkefnis fyrir sig. Hvort sem það er áhrifavaldur, Instastory- myndband eða prentauglýs- ing sem er farartækið verð- ur stefnan að vera skýr og fyrir fram ákveðin,“ segir Páll enn fremur. Aldeilis á nýjum stað Páll Guðbrandsson  Auglýsingastofa fær nýtt nafn  Vefsíðugerð og miðlun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.