Frjáls Palestína - 01.11.1990, Blaðsíða 7

Frjáls Palestína - 01.11.1990, Blaðsíða 7
15. nóvember og 29. nóvember: Mikilvægar dagsetningar Þann 15. nóv. s.l. voru tvö ár liðin frá því Þjóðarráð Palestínumanna lýsti yfir stofnun Palestínuríkis við hlið Ísraelsríkis. Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 90 ríki viðurkennt Palestínu. Meðal Vesturlanda hefur aðeins Austurríki viðurkennt Palestínu. Sést þar hvað best . tvískinnungur Vesturlanda: Þegar þau viðurkenndu Israelsríki, var róttarstaða þess enn minni en réttar- staða Palestínu nú. Enn hafa forráðamenn Ísraelsríkis ekki skilgreint landamæri síns ríkis og ekki veitt öllum íbúum jafnrótti og til var ætlað af Sameinuðu þjóðunum árið 1947. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst 29 nóv. alþjóðlegan dag Palestínuþjóðarinnar. Sá dagur var valinn með hliðsjón af því að 29. nóv. 1947 lagði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að stofnuð verði tvö ríki ( Pal- estínu: Gyðingaríki og Arabaríki. I höfuðstöðvum Sa- meinuðu þjóðanna er haldin hátíðleg athöfn í tilefni dagsins. Víða um heim halda stuðningsmenn Pal- estínumenn mótmælafundi, m.a. fyrir framan sendi- ráð ísraels. Búast má við að (sraelsríki lýsi herteknu svæðin sem eitt stórt fangelsi þennan dag („út- göngubann"). Þann dag mun Félag Island-Palestína afhenda sendiherra Bandaríkjanna á íslandi mót- mælabréf vegna þess að Bandaríkin fjármagna þjóð- armorð í Palestínu. Jafnvel ráðist inn á sjúkrahús Heilsugæslustöðvar og sjúkra- hús ættu að vera griðland allra. En ekkert virðist heilagt í augum ísraelskra hermanna. Hermenn ráðast daglega inn á sjúkrahús til að leita að til að leita að slösuðum mönnum sem þeir vilja handtaka. Jafnvel heilsugæslustöðvar UNRWA (á vegum Sameinuðu þjóðanna) eru ekki óhultar fyrir ágengni og árásum ísraelskra her- manna. Margir slasaðir unglingar forðast sjúkrahúsin til að komast hjá handtöku. Afleiðing-in verður sú að bein þeirra gróa illa og þeir fá alls kyns sýkingar. Palestínu- mönnum er oft neitað um lækn- ismeðferð. Mörg dæmi eru þess að hermenn torveldi ferðir sjúkra-bíla. Dr. M. Al-Aker, sérfræðingur í þvagfæralækningum við nokkur sjúkrahús á Vesturbakkanum og í Jerúsalem, sagði við blaðamenn í London að með því að tefja af ásettu ráði ferðir sjúkrabíla, væri herinn valdur að dauða margra sem slasast hafi. Endurhæfing fatl- aðra er að verða eitt af stærstu langtíma verkefnum palestínskrar heilbrigðisþjónustu og er ekki víst að Palestínumenn ráði einir við þetta verkefni. Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestfna Opið hús á mánudagskvöldum! Ritarl félagslns er flu réttlaetis ( Paieslínu í hátíöir). Hefmlll hans er ÖJdugata FRJÁLS PALESTlNA 7

x

Frjáls Palestína

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.