Umbrot - 16.01.1976, Blaðsíða 1
UIVIBROT
1. tbl. Föstudagur 16. janúar 1976 3. árgangur
„Verulegur skriður kemst ekki á varanlega
gatnagerð nema með því að leita nýrra ieiða“
1 tilefni áramótanna, hafði
UMBEOT viðtal við Magnús
Oddssom, bæjarstjóra, og lagði
fyfir hann nokkrar spumingar.
Var árið 1975 hagstætt Akur-
nesingum?
. ,r— Því svara ég hiklaust ját-
andi. I byrjun ársins voru ýms-
ar blikur á lofti. Kreppa og at-
vinnuleysi virtist vofa yfir, en
þegar á árið leið rættist vel úr.
Atvinnuleysi varð að vísu tals-
vert meðan á togaraverkfallinu
stóð, en verulegt atvinnuleysi
varð annars ekki.
I byggingariðnaðinum hefur
sjaldan verið meira að gera.
Teknar voru í notkun 46 íbúðir
en bygging hafin á 60 íbúðum.
Árið á undan var metár, þá voru
teknar 56 íbúðir í notkun en byrj
að á 39 íbúðum. Mismun sjáum
við, ef litið er nokkur ár aftur
í tímann. T.d. árið 1967 var haf-
in bygging 13 íbúða. Útgerð á
Akranesi elfdist á árinu og mun-
ar þar mest um togaraflotann,
en á síðustu árum hefur hann
elfst til muna. Héðan eru nú gerð
ir út f jórir togarar og sá fimmti
er væntanlegur. Þetta skapar
jafna og stöðuga vinnu í hrað-
frystihúsunum. Hjá járniðnaðin
um hefur vinna verið góð, eins
hjá vörubílstjórum lengst af. og
munar þar talsvert um fram-
kvæmdirnar á Grundartanga.
Framleiðsla hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins var í hámarki
og mikil vinna því samfara.
Mest er vöntun á störfum fyrir
húsmæður, sem vilja vinna úti
og eins hjá fólki með skerta
starfsorku.
Hver voru stærstu verkefnin
sem unnið var að á vegum bæ jar
félagsins og stofnana þess?
— Við höfnina var að mestu
lokið við byggingu ferjubryggj-
unnar og komið upp aðstöðu til
að aka um borð í m/s Akraborg.
Við íþróttamannvirki var mikið
unnið. Á íþróttavellinum var
gerð hlaupabraut, komið upp
kast og stökkaðstöðu, reist girð-
ing um stóran hluta vallarsvæð-
isins og útbúið bílast. norðan
vallarins. I íþróttahúsinu var lok
ið við einangrun og múrverk að
stórum hluta fyrir landsmót
U.M.F.l. sem haldið var hér í
júlí. Síðan hefur verið unnið á-
fram við húsið og verður það
tekið formlega í notkun síðar í
þessum mánuði, þótt talsvert
vanti enn á að byggingu þess sé
lokið.
1 Sjúkrahúsinu var unnið að
innréttingu eldhúss og uppsetn-
ingu tækja þar. Eldhúsið var tek
ið í notkun á árinu. Einnig var
unnið að innréttingu lyflækna-
deildar.
Kostnaður við hvert þessara
Nk. mánudag mun hefjast
kennsla í nýja íþróttahúsinu.
Hins vegar mun víxluathöfn
ekki fara fram fyrr en 24. jan.
Á mánudag þegar kennsla
hefst, mun ekki verða búið að
ráða í starf umsjónarmanns
hússins, en hann á jafnframt
að vera starfsmaður íþrótta-
vallarins skv. auglýsingu.
Væntanlega verður á næsta
bæjarstjórnarfundi gengið frá
ráðningu einhvers hinna tíu um
sækjenda, en eftir hvaða reglu-
gerð á þessi maður að starfa?
Staðreyndin mun vera sú, að
engin reglugerð er til fyrir
íþróttahúsið. En gerumst nú
bjartsýn og reiknum með að
reglugerðin verði rædd á bæj-
arstjórnarfundi sem væntanlega
verður síðar í þessum mánuði.
En þar með er sagan ekki öll
sögð, því tvær umræður þarf
um reglugerðina og seinni bæj-
arstjórnarfundurinn verður
væntanlega ekki fyrr en í lok
febrúar og verður reglugerðin
því ekki samþykkt fyrr en þá.
þriggja verkefna er á bilinu 50-
60 millj. kr. Fjórða stærsta verk
efnið var jarðborun og rannsókn
ir á hitasvæðinu að Ieirá, en þar
var unnið fyrir 28-29 millj. kr.
Framh. á bls. 9.
Eins og fram hefur komið á
umsjónarmaður hússins einnig
að vera starfsmaður íþróttavall
arins og þar með heyrir hann
undir tvær nefndir á vegum
bæjarins, þ.e. íþróttavallanefnd
og íþróttahússnefnd, sem hlýt-
ur að verða skipuð. Hætt er við
að upp komi erfiðleikar þegar
þesar nefndir fara að rífast um
manninn. íþróttavallanefnd seg-
ir: Hann er í vinnu hjá okkur
og á að starfa á íþróttavellin-
um. íþróttahússnefnd segir:
Hann er í vinnu hjá okkur og á
að starfa í íþróttahúsinu. Þessi
staða hlýtur að geta komið upp.
Að áliti flestra þeirra sem
fylgst hafa með, hefur verið
byrjað á öfugum enda. Þ.e.
fyrst hefði átt að semja og sam-
þykkja reglugerðina, síðan að
ráða manninn og loks að taka
húsið í notkun.
Ef til vill er þetta ekki í
fyrsta skipti sem byrjað er á
öfugum enda í framkvæmdum
hjá bænum.
Laugardaginn 10. jan. sl. fór fram fyrsti opinberi leikurinn í hinu
nýja íþróttahúsi Akurnesinga við Vesturgötu. Þá iéku handknatt-
leikslið I.A. og H.K., en þau leika í III. deild. H.K. sigraði með
20 mörkum gegn 18. — Sunnudaginn 11. jan. fór einnig einn leikur
fram í húsinu í I. deild körfuknattleiks milli Snæfells og Í.S., en
Snæfell hefur fengið leyfi til að nota húsið fyrir heimavöli sinn.
Myndin er tekin í sumar, þegar unnið var við að gera Stillholtið
tilbúið undir steypu.
Undarleg vinnubrögð