Farandsalinn - 01.10.1922, Blaðsíða 2
2
FARANDSALINN
ARKIR koma út í okt. Verð ársfj. 2. kr. Aðalútsala í Bókav. S. J., Bankastr. 7.
Opið brjef.
Farandsalar eru menn víðförlir, og eins og títt er um slíka menn,
lenda þeir oft í æfintýrum og kunna frá mörgu að segja, ef menn aðeins
liitta rjettu hliðina á þeim. Sá þeirra, sem nú hefur göngu sína um gamla
Frón, hefir víða verið og synt margan sjóinn krappan; hann hefir líka
gengið blómum stráðar skrautgötur stórborganna, þar sem geislabrot sól-
arinnar hafa sýnt sig í allri sinni dýrð. Hefir hann nú hugsaS sjer að
segja okkur frá ýmsum af sínum merkustu æfintýrum, til þess, að göml-
um sið, að stytta hinar löngu og myi'kir vetrarnætur.
Fyrsta sagan heitir: Bjarnargreifarnir; og ef fólk tekur vel á móti
henni, liefir hann lofað oss því, að fleiri muni á eftir fara. Hann telur
óþarft að mæla sjerstaklega með einni frekar en annari, en biður þess get
ið, að allar sínar sögur hafi hlotið lof og frægð þar sem þær hafi komið
fram annarsstaðar.
Með því að fylla út og senda miðan, sem hjer er innan í verða því
Bjarnargreifarnir sendir hvert á land sem vill.