Bæjarblaðið - 14.07.1951, Blaðsíða 1

Bæjarblaðið - 14.07.1951, Blaðsíða 1
BÆJARBLAÐIÐ i. argangur Akranesi, laugardaginn 14. júlí 1951 1. tölubldS ÞETTA ER BLAÐ ALLRA BÆJARBÚA. KAUPIÐ ÞAÐ, LESIÐ OG LEGGIÐ ÞVI LIl). SILDVEIÐARNAR - útlit og horfur Undanfarin ár. Sumarið 1950 var sjötta síld- arleysissumarið í röð. Þó voru ekki allar vertíðirnar jafn- slæmar, hvað aflaleysi snerti, t. d. var nokkur munur á ver tíðunum 1946 og 1947 og hin um þremur, en þó var vertíð in 1949 með þeim verstu, sem komið hafa. Eftir reynslu þessara slæmu ára, var því ekki að undra, þótt menn væru tregari til að senda skip til síldveiða en áð ur, þar sem áhættan var sýni- leg, og margir svo illa settir fjárhagslega, að þeim var þetta illfært, eða bein ofraun. Þátt- takan í veiðunum 1949 varð nokkuð minni en árin á undan, eða alls 199 skip, móts við 242 1948 og 264 1947, en þá varð þátttakan meiri en áður hafði þekkzt. Árið 1949 var 'heildaraflinn sem hér segir: Söltuð síld, 129,034 tunnur. Bræðslusíld, 511,145 hl. Fryst beitusíld, 79,502 tunn. Niðursoðin ný síld, 467 tn. Árið 1950 var heildaraflinn hins vegar sem hér segir: Saltað Norðanlands 55,561 tunna. Saltað Sunnanlands 131,708 tunnur. 1 bræðslu Norðanl. 263, 936 hl. I bræðslu Sunnanlands 22, 713 hl. Fryst beitusíld fyrir norðan 7,336 tunnur. Fryst beitusíld fyrir sunnan 63,657 tunnur, af þessu var og örhtið flutt út. Norðanlands fiskaðist og 66,645 mál af uppsa sem allt fór í bræðslu. Veiðarnar stund- uðu 240 skip með 235 nætur. Til samanburðar, var aflinn sem hér segir næstu ár á undan: EFSÆABAUGI Nýsköpunartogari landar karfa í KrossanesverksmiSfuna. Jafntefli Akurnesinga og Vaalerengen Knattspyrnuflokkur fBA og Vaal- erengen kepptu í knattspyrnu í gær- kvöldi og varð jafntefli 4:4. Leikurinn var geypiharður, og segir t. d. eitt Reykjavíkurblaðið, að „leikurinn hafi verið líkari Rugby en knattspymu“. Af Akurnesingum skoruðu þeir mörk: Ríkharður 2, Þórður 1, og Jón Jónsson 1. Dómari var Guðmundur Sigurðs- son, og urðu nokkrar deilur um dóma hans. Voru Norðmenn mjög óánægðir, og varð dómarinn að vísa norska markverðinum ú af vellinum. Útsvörin í ár. Útsvarsskráin er nýkomin út og mun mörgum þykja nóg á sér ekki síður en áður, því nú er álögð út- svarsupphæð kr. 2.835 þús. kr. í stað rúml. 2,1 milljón í fyrra. Eftir því sem nú gerist, hefur undanfarið ver- ið góð atvinna á Akranesi. Þrátt fyrir það, — miðað við sama skala og undanfarin ár — vantaði svo gifur- lega á að hægt væri að ná þessari upphæð, rúml. 2, 8 millj. að bæta varð ofaH á hvern einstakling 20%, og félög og fyrirtæki 30% eftir því sem skattskráin ber með sér. Er þetta ekki ofraun fyrir ein- staklingana og bæjarfélagið í heild? Til viðbótar við skatt-áþján ríkisins í beinum og óbeinum sköttmn, sem slær þó öll met. Oft á það aðeins að vera til bráðabirgða, sem oftast verður til langframa og síhækk- andi. Þjóðfundurinn. Hinn 5. þ. m. voru liðin 100 ár síðan hinn afdrifaríki Þjóðfundur var settur í alþingisstofunni í Menntaskólanum í Reykjavík. nm útlitið. Undanfarin ár hef- ur ýmsum getum verið leitt að orsökum aflabrestins, og þrátt fyrir all umfangsmiklar rann sóknir hafa þær ekki leitt til óyggjandi niðurstöðu um þetta mikla vandamál. Með þrot- lausri elju og stöðugt vaxandi tækni má þó vænta þess, að fremur dragi saman en sundur í þessu efni. Á siðastliðnu sumri, þóttust Norðmenn þó hafa komizt næst því að gera sér nokkra grein fyrir afla- leysinu fyrir Norðurlandi. — Töldu þeir breytingu strauma fyrir Norðaustur-landi líkleg- ustu orsökina. Mun þetta atr- iði, ásamt ýmsu öðru, verða rækilega athugað, bæði af Norðmönnum og Islendingum á þessu sumri. Það er löngu vitað, að mikið sildarmagn er hér meginhluta árs fyrir suður- og suðvestu- landi, og sízt minni þau árin, 1948 f salt 114,799 tn. 1 bræðslu 1,511,888 hl. 1947 f salt 64,796 tn. í bræðslu 2,004,565 hl. 1946 í salt 168,470 tn. í bræðslu 1,172,300 hl. 1945 ‘ í salt 95,395 tn. í bræðslu 463,238 hl. Fryst beitusíld 28,553: tn. Fryst beitusíld 68,065 tn. Fryst beitusíld 52,742 tn. Fryst beitusíld 28,553 tn. undlaug og sundkeppni Öll árin nema 1945, voru nokkur hundruð tunnur af nýrri síld soðin niður. Sérstak- lega árið 1945, var nokkuð hraðfryst, eða 1,106,223 kg. Árið 1948 var svo ísuð sild 3,019,005 kg. og 846,741 kg. 1947- Bræðslusildaraflinn 1950, var því lakari en nokkurt þess- ara ára, að meðtöldum árinu 1945. Útlitið í ár. Jafnvel þótt komið sé fram að miðjum júlí, er djarft að spá sem hún hefur brugðizt fyrir Norðurlandi. 1 vor og sumar hefur sézt hér mikil síld, jafn- vel vaða. Eru menn að vona, að þessi síld gangi vestur með landi og norður fyrir, og ef tíð verður hagstæð verða allmikil á miðunum Norðanlands. Með hliðsjón af þessum sex léfegu síldarárum, og þeim bú- sifjum, sem það hefur valdið útgerðarmönnum og sjómönn- um, hafa þeir nú verulega tví- stígið tun, hvort rétt væri eða mögulegt að gera enn eina til raun. Framhald á 3. síðu. Samnorrænu sund- keppninni lauk þriðjudagskvöldið 10. júli s. 1. Þá höfðu 764 Ákur- nesingar synt 200 metra spöl- inn í lauginni hér, og 105 að- komumenn, alls 870. Eitthvað yfir 20 Akurnesingar syntu annars staðar. Enn er ókunn- ugt um fullnaðarúrslit keppn- innar og verður svo fram til 1. október n. k., er hin Norð- urlöndin hafa lokið þátttöku sinni. Elztur þeirra Akurnesinga, sem sundið þreyttu, var Sig- urður Halldórsson, 67 ára, en yngst Gerður Guðjónsdóttir (kcnnara), nýlega orðin 6 ára. Enginn vafi er á því, að þetta norræna kappsund hefir drjúgum örvað sundáhugann hér á landi. Margir, sem synd- ir voru, en höfðu slakað á iðk- uninni, æfðu sig að nýju, en hitt er mest um vert, að marg- ir áður ósyndir hófu sundnám og luku jafnvel 200-metra þrautinni. Þannig var um eina frú hér, 52 ára að aldri. Hún hóf sundnám beinlínis vegna norræna kappsundsins og lauk sínum 200 metrum með prýði. „Þetta er að kunna vel til vígs og vera lands síns hnoss,“ eins og Sandels sagði um Svein Dúfu. En ekki má láta staðar numið við þessa örvun. Sundið á að verða almennings íþrótt, enda eina íþróttin, sem hefir skilyrði til að vera það. Nú þarf að halda áfram með kappsund milli kaupstaða, sveita, skóla o. s. frv. Það er næsta lítils virði, þótt fámenn- ir íþróttaflokkar keppi öðru hverju sín á milli, hjá því, að allur almenningur geri það. Þá fyrst er eitthvert mark tak- andi á bæja- og sveitakapp- leikjum. Ur því að hér var minnzl á sundíþróttina, er rétt að víkja nokkuð að búnaði henn- ar og skilyrðum hér í Akra- ness-kaupstað. Séra Jónmundur Halldórsson, elzti þjónandi prestur landsins. Hann er fæddur á Akranesi 4. júlí 1874. — Myndin er tekin, þegar hann hafði þreytt 200 m sundiS. Vel fer á því, að sundinu sé vel sinnt í slíkum bæ, þar sem mikill hluti íbúanna á lifs- björg sína í sjó að sækja. Auk þess er að því stefnt, að allir íslendingar verði syndir. Nú eiga allir stærri kaup- staðir sundlaugar og kappkosta flestir að sýna þeim sem mest- an sóma. Góð sundlaug á að vera uppeldis- og menningar- stofnun, þar sem eigi aðeins sundíþróttin á að ráða ríkjum, heldur og þrifnaður og vönduð umgengni. Af útliti og um- gengni í sundlaugum má oft ráða menningarstig bæjarbúa. Ekki skal fjölyrt um það, að þessu sinni, að Bjarnalaug er ófullnægjandi fyrir svona stór- an bæ. Hún er of stutt og bað- og fataklefar allt of rúmlitlir, láðst liefur að ætla sundlauga- verði ög sundkennurum af- drep og vinnustofur, en þeir hafa allmikla skýrslugerð. 12 metra langar laugar eru sæmi- legar kennslulaugar, en sem íþrótta- og almenningslaugar eru þær ófullnægjandi. Ekki er t. d. hægt að iðka dýfingar að nokkru ráði. Sparnaður er góður og nauð- synlegur, en við menningar- stofnanir eins og sundlaugar má hvorki skera fjárframlög né vinnu svo mjög við nögl, að bænum sé til vansæmdar. — Betra er að laug sé skemur opin en ræstingu og vörzlu verði ekki sinnt eins og þörf Framhald á 3. síðu.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1341

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.