Bæjarblaðið - 14.07.1951, Blaðsíða 2
2
BÆJARBLAÐIÐ
Laugardaginn 14. jálí 1951
BÆJARBLAÐIÐ
Ritnefnd:
Dr. Árni Árnason, Iiarl Helgason, Ól. B. Björnsson og
Ragnar Jóhannesson.
A fgreiÖslumáður:
Bjarni Th. Guðmundsson, sími 234.
ÁbyrgÖarmaður:
Öl. B. Björnsson.
Blaðið kemur út annan hvern laugardag.
Prentað í Prentverki Akraness h.f.
ÁVARP
UNDANFARIN missiri hefur ekkert bœjarblað
verid gefiö út á Akranesi.
Þetta er tœplega vanzalaust fyrir svo stóran bœ
og vaxandi, þar sern fjöldi viöfangsefna bíöur um-
ræöna og athafna. Þáö er líka oft mjög tilfinnanlegt
aÖ hafa engan slíkan vettvang, þegar borgararnir
óska aÖ ræÖa opinberlega um aökallandi mál bœjar-
félags síns, vilja bera fram óskir og áhugamálberida
á eitthvaö eÖa lagfæra.
Stjórnmálablöö hafa aö vísu stundurn skotiÖ liér
u.pp kolli í nánd viö kosningar, stáöiö meö nokkrum
blórna fram yfir þœr, en síöan lognazt út af eins og
sumarblóm á haustdegi. Sennilega hefur ekkert
þessara blaöa staöiö undir fjárhag sínum, enda al-
ger afrausn aö œtla aö gefa út 3—4 blöö í 2600
manna bæ.
Auk þess er oft meiri þörfin aö rœÖa málefnin
milli kosninga, án hita og flokkaofstœkis, því aö um
kosningar og fyrir þær sœta góö mál oft þeirri meö-
ferÖ, sem sízt skyldi, vinnur þeim stórskaöa og ríÖ-
ur þeirn aö fullu. En vér erum of fátœkir og srnáir
til þess, aÖ vér megum viö því aö vinna velferÖar-
málum vorum svo hrapallegt fjörtjón sjálfir.
Aö útgáfu þessa litla. blaös, sem nú hefur göngu
sína, standa nokkrir borgarar á Akranesi, sem hafa
stundum fundiö sárt til blaöaskortsins í bœnum og
gera sér Ijóst, áð gott blaö getur miklu áorkaÖ í fram-
gangi mœtra málefna.
Blaöiö fylgir engum sérstökum stjórnmálaflokki,
enda aöhyllast útgefendur þess ýmsar ólíkar stjórn-
málaskoöanir. Hér er einkum ætláö aö rœöa ýmis
málefni Akranesskaupstaöar: atvinnumál, hafnar-
gerÖ, verksmiöjubyggingar, útgeröarmál, gatnagerö,
ræktun o. fl. eigi sízt menningar- og heilbrigöismál:
skóla- og menntamál, íþróttir, félagslíf og skemmt-
anir, bækur og bókasöfn, skrúögaröa og prýkkun
bœjarins, þrifnaö og almenna umgengni, leikhús,
tónlist, kvikrnyndir o. fl., svo aö nokkur málefni séu
nejjid. Auk þess mun bláöiö flytja bœjarfréttir.
Blaöiö mun gera sér far um aö benda á hollar
nýjungar og styöja mál og framkvœmdir, sem horfa
bænum til heilla, líka mun þáö reyna aö benda á
ýmislegt, sem betur má fara, og mun leitast viÖ áð
gera þaÖ svo, aÖ engir telji sér misboöiö méö því.
Öllum borgurum á Akranesi er heimilt áö kveöja
sér hljóÖs í bláöinu, og eru útgefendum jafnvel kœr-
komnar góöar, áösendar greinar. En auövilaö verÖa
allar greinar, sem berast, aö hlíta ákveönum skil-
yröum, í þessu blaöi sem öörum. Þœr veröa aÖ vera
vel og skipulega samdar og hœfilega langar, því áö
rúm blaösins er mjög takmarkaö. Allur málflutn-
ingur verÖur aö vera prúÖmannlegur og vandaður.
Flokkspólítískur áróöur og persónuleg áreitrii veröa
algerlega útilokuö. Mönnum veröur aö sjálfsögöu
heimilt áö berjast fyrir góöum málstáö, en slíkt
vinnst betur meö einbeitni og hófsemi en ofstæki og
illskiptni.
En framtíö þessa blaðs er öll undir yöur komin,
lesendur góÖir. Blaöaútgáfa er dýr nú á tímurn og
ber sig sjaldan. Þaö er bœnum til sórna, ef særni-
lega tekst um útgáfu bláösins, og alrnenningi í bæn-
um til nokkurs vanza, ef ekki er hœgt áð halda úti
slíku blaöi hér sem í hliöstœöum kaupstööum. Látiö
því ekki stranda á því, aÖ blaöiö seljist ekki. Viö
treystum því líka, aö kaupsýslumenn og aörir, sem
þurfa aö auglýsa, noti sér tækifæriö, sem útbreytt
og fjöllesiö blaö veitir slíkurn aöilum.
Iþróttírnar erti hér t uppsígííngu
Þing Iþróttabandalags Akra-
ness, sem haldið var s. 1. vetur,
lauk 22. febrúar. Þar ríkti ein-
ing og áhugi um íþróttamál,
enda voru þar samþ. ýmsar
tillögur varðandi framtíð iþrótt
anna hér. 1 stjórn bandalags-
ins voru eftirtaldir menn kosn-
ir:
Guðm. Sveinbjörnsson, for-
maður, Helgi Júlíusson, Lárus
Árnason, Óli Örn Ólafsson og
Egill Sigurðsson. Óðinn Geir-
dal, sem verið hcfur formaður
bandalagsins, baðst eindregið
undan endurkosningu vegna
anna.
Hér verður nú með örfáum
orðum minnst athafna og sigra
bandalagsins i vor og sumar.
sem þó eiga rætur sinar fyrst
og fremst í ötulu starfi undan-
farinna ára.
I.
Fyrsta mótið á vegum banda-
lagsins, var sundmót, sem fór
fram í Bjarnalaug u. apríl,
milli Kára, K. A. og Sundfél-
ags Akraness. Kári vann þetta
mót.
II.
Knattspyrnukappleikir milli
Kára og K. A. hófust 3. maí.
Var þar keppt um bikar þann,
sem bæjarstjórnin gaf 1948.
Hann vann Kári nú í þriðja
sinn með 2:1 í fyrri umferð.
I síðari umferð vann K. A. með
4:3. Þurfa félögin því að keppa
enn til úrslita.
III.
Næst kepptu þessi félög um
Akranesbikarinn, og þá vinn-
ur K. A. með 4:3.
IV.
í öðrum keppnum milli fé-
laganna fóru leikar þannig:
4. flokki Kári með 4:0.
3. — K. A. — 2:0.
2. — K. A. — 3:0.
V.
Hinn 20. maí s. 1. fór fram
bæjakeppni í sundi milli Kefla
víkur og Akraness, þar sem
Akranes vann með 43 stigum
gegn 39. Þarna var keppt um
bikar er Sundfélagið gaf til
þessarar keppni. Þarna var
mikill fjöldi áhorfenda, og var
mótið hátíðlega sett ,með ræðu
af hendi formannsins, Guðm.
Sveinbjörnssonar.
VI.
Þá fór fram sundkeppni i
sambandi við Sjómannadaginn.
VII.
Hinn 1. júlí fór svo fram
sundkeppni milli Akurnesinga
og Hafnfirðinga, þar sem Ak-
urnesingar unnu með 77 stig-
um gegn 73.
Hér er sundíþróttin mjög að
færast í aukana, og áreiðan-
lega með mjög miklum ár-
angri, bæði hvað almenna
sundkunnáttu snertir, en einn-
ig að því er tekur til einstak-
linga inn að vinna met á þessu
sviði, eigi aðeins hér innan-
lands, heldur ef til vill á
heimsmælikvarða.
VIII.
vj. júní-mólið.
I fyrsta sinn í mörg ár, fór
hér fram þennan dag alhliða
frjáls-íþróttamót, þar sem líka
er keppt í glimu. í henni var
keppt í tveimur flokkum.
Drengjaflokkur:
Þar vann Svanberg Ólafs-
son. Annar var Jóhannes Ást-
valdson og hinn þriðji var Jón
Sigurðsson.
Þá kepptu fullorðnir um
bæjar-skjöldinn. Þar varð
glímukóngur Akraness, Gísli
Gíslason. — Önnur verðlaun
hlaut Sigurður Arnmundarson
og þriðju vei'ðlaun hlaut Guð-
mundur Bjarnason.
I þessum íþróttum var
keppt: 60 m hlaupi, 100 m
lilaupi og 1500 m hlaupi. Kúlu
varpi, kringlukasti og svo 4X
100 m boðhlaupi.
I sumum þessara gi-cina náð-
ist mjög góður árangur og at
hyglisverður tími, eins og t. d.
í 60 og 100 m hlaupi. Þar hljóp
Garðar Jóhannesson 60 m á
6,8 sek. og 100 m á 11 sek.
IX.
Merkasti íþróttaviðburður
ársins að því er Akranes snert-
ir, er vitanlega þátttaka þeirra
í Islandsmótinu og sá ágæti
árangur sem þar náðist.
Mótið hófst 9. juní, en fyrsti
leikur Akurnesinganna var 12.
júní, með leik milli í. A, og
K. R., sem endaði með sigri
Akraness, með 5:2.
Annar leikur þeirra var 13.
júní við Frarn. en sá leikur
endaði með jafntefli, 2:2.
Þriðji leikur var svo 18. júní
á móti Val, er endaði með sigri
Akurnesinga,. með 3:2.
ÍJrslitaleikurinn var svo 20.
júní, móti Víking, en þar var
jafntefli 2:2. Þar með unnu
Akurnesingar með því að hljóta
íslandsmeistartitilinn fyrir
1951. Er þetta í fyrsta sinn
sem félag utan af landi hefur
hlotið íslandsmeistara-titilinn
í knattspyrnu.
En hverju er þetta þá að
þakka? Að kunnugra manna
sögn, liggja aðallega til þess
eftirfarandi orsakir: Fyrst og
fremst af því að íþróttabanda-
lagið hefur aðallega einbeitt
sér að knattspyrnunni. Einnig
vegna þess, að þegar Akurnes-
ingar fóru fyrst á Islandsmót-
ið 1946, hétu þeir því að gera
allt sem unnt væri til þess,
fyrr eða seinna, að vinna Is-
landsmótið. Samhliða þessu
heiti, voru þegar gerðar ýmsar
ráðstafanir til þess að tryggja
þetta. Fyrst og fremst að fá
hingað hæfa menn til þjálf-
unar, má þar fyrst nefna hinn
fræga Albert Guðmundsson,
Framhald á 3. síðu.
Ætlazt er til, aÖ Bœjarbláöiö komi út tvisvar í
rnánuði. Þaö verÖur eingöngu selt í lausasölu. Efni
og greinar sendist rilnefndarrnönnurn, en auglýs-
ingar afgreiÖslumanninurn.
Að svo rnæltu kveöur Bœjarblaöiö sér hljóös.
Frarntíö þess, farsœld og gagnsemi er undir ýöur
komin, góöir Akurnesingar.
ÚTGEFENDUR.