Bæjarblaðið - 17.12.1955, Síða 1

Bæjarblaðið - 17.12.1955, Síða 1
B/EJARBLAÐI8 5. argangur. Akranesi, laugardaginn 17. desember 1955 18. tölublað ! B/EJARBLAÐEÐ fæst á eftirtöldum stöðum Verzlunin Brú, Veiðarfærav. Axels Sveinbjörnssonar, Bókaverzlun Andrésar Níelssonar. Verzl. Einars ólafssonar. $(okkvilföið fœr nýja slökbistöð NÝR BRUNABÍLL MEÐ HÁÞRÝSTITÆKJUM HEFUR BÆTZT VIÐ. TVÆR VERZLANIR í NÝJUM HÚSA- KYNNUM. í sumar og haust hefir verið unnið að byggingu nýs húss fyrir Slökkvilið Akraness og tæki þess. Er það nvi nær fullbúið, og er allstórt, eða um 160 fermetrar að flatarmáli. Húsið er einlyft, steinsteypt og einangrað. Bílasalurinn rúmar þrjá stóra brunabíla, en þeir eru enn aðeins tveir og er það rúm, sem afgangs er, notað fyrir dælur og ann- an -nauðsynlegan útbúnað. Auk bílasalarins eru i hús- inu herbergi, sem í framtíð- inni er ætlað fyrir skrifstofu og varðstofu. Þá er salerni og forstofa. Er það tvímælalaust, að með þessum stækkaða húsakosti hefir slökkviliðið fengið mjög bætta aðstöðu til starfs síns. Slökkviliðsstjóri, Finnur Árna- son, telur, að brátt muni líða að því, að stöðugur vörður verði settur í stöðinni, svo sem nauðsynlegt er talið i hinum stærri bæjum. NÝI BRUNABlLLINN. Þá er að geta þess, að stöð- inni hefir bætzt nýtt og harla gott tæki, sem er nýr bruna- bíll búinn fullkomnustu tækj- um. Bíll þessi kom hingað þann 15. nóvember s. 1. og er búinn háþrýstitækjum. Upphaflega er bíllinn keyptur af varnar- liðinu, en Erlendur Halldórs- son í Hafnarfirði, eftirlitsmað- ur brunamála, sá um endur- gerð hans og lagfæringu. — Þessi nýi bíll gerbreytk öllu slökkvistarfi hér; segir Finnur Árnason. Svo miklu fullkomnari er sú nýja aðferð, sem beitt er á þessum nýja bíl. — Með gömlu aðferðinni var reynt að halda eldinum í skefjum þannig að loka öllum opum i húsum þar, sem eldur kom upp, og oft er þá reykur- inn hin versta tálmun i vegi slökkvistarfsins. En þegar þessi bíll er notaður, er opnað út Skdhþingi Akraness lokió Skákþing Akraness hófst 20. okt. síðastl., og er keppni nýlega lokið í öllum flokkum. I 1. fl. sigraði Gunnlaugur Sigurbjörnsson og hlaut 5 vinninga, og varð þar með skákmeistari Akraness 1955. Er hann það í þriðja skipti. Annar varð skákmeistarinn frá því í fyrra, Guðmundur Bjarnason og hlaut 4V2 vinn- ing. Munaði litlu að hann hefði hlotið 5 vinninga og hefðu þeir þá teflt einvígi, hann og Gunnlaugur. Guð mundur átti sennilega eina biðskák við Ingimund Leifs- son, en sú skák tefldist þá niður í jafntefli og missti Guð- mundur þar með tækifæri til þess að tefla einvígi um skák- meistaratitilinn. En í kapp- skák Gunnlaugs og Guðmund- ar sigraði Guðmundur. Þriðji i 1. fl. varð Árni Ingimundarson og hlaut 4 vinninga. Fjórði Hjálmar Þor- steinsson 3V2 vinning fimmti Þórður Egilsson 2 vinninga sjötti Iingimundur Leifsson 1 vinning og sjöundi Leifur Gunnarsson t • vinning. I 2. fl. urðu úrslit þessi: 1. Geir Vestmann 4 v. 2. Hallur Bjamason 4 v. 3. Magnús Finnbogas. 3 v. 4. Bjarni Th. Guðm. 2 v. 5. Dieter .1. Reimann 1 v. 6. Jón Ólafsson 1 v. Þeir Geir og Hallur flytj ast báðir upp í 1. fl. þar sem þeir hlutu 80% v. Þátttaka í skákþinginu ; haust var sæmileg i 1. og 2. fl. og ágæt í 3. fl. Er ánægjulegt að sjá hve margir unglingar taka þátt i mótinu, og virðast hafa áhuga á skák. Væri vonandi að sá áhugi næði einnig til hinna eldri, svo að skáklif mætti blómgast hér á staðnum. I haust kom hingað Frey- steinn Þorbergsson skákmeist- ari frá Rvík, og kenndi og skýrði skákir fyrir félögurr nokkur kvöld. Fyrir utan kennslu skákmeistara er einn ig gott að hafa shákbækur vif hendina og læra af þeim. Er Framhald á 5. síðu og reynt að finna eldinn sem fyrst, enda miklu þægilegra og fljótlegra. Þessi nýju tæki vinna líka mjög bug á reykn- um þeim mikla óvini allra brunaliðsmanna. Háþrýstitæk- in framleiða úða, sem hrekur reykinn á undan sér og eyðir honum, kælir og frystir. MINNI VATNSAUSTUR. Þá má telja það til höfuð- kosta nýja bílsins, að hann eyðir miklu minna vatni en sá eldri, þar sem hann notar úða. Verður þá minni vatnsaustur inn í hin brennandi hús, og ættu því minni skemmdir að verða, en svo sem kunnugt er, verða stundum litlu minni skemmdir af vatni en eldi. GAMLI BÍLLINN. Eldri bíllinn verður að sjálf- sögðu notaður áfram, enda er hami í góðu ástandi. Hann kom hingað 16. júni 1947, þá nýr. SLÖKKVILIÐIÐ ENDUR- SKIPULAGT. Slökviliðið verður endur- skipulagt bráðlega og fjölgað í því. Er þá búizt við, að í því verði 35—40 manns. Skipulagt slökkvistarf hófst hér í bæ á árunum 1932— 1933- Fyrir nokkru síðan flutti verzlunin Skemman úr Suðurgötunni og í nýtt hús- nœÖi í nýju stórhýsi við Skólabraut. Hinum megi í sama húsi er vefnaðar- og skóvörudeild Kaupfélags SuSur-BorgfirSinga. Báðar þessar búðir eru hin- ar smekklegustu að innréti- ingu og híbýlaprýði. Skólabrautin er nú að verða mesta verzlunargata bæjarins. Við hana eru nú 10 eða 11 búðir sem setja mikinn svip á götuna og bæinn. Mikil nauðsyn er á að gangstétt komi sem fyrst norðanvert við götuna líka. leikiéliijiijl sfir leikrii Nann og konu eftir Jón Thoroddsen LEIKSTJÓRI: HÓLMGEIR PÁLMASON. Leikfélag Akraness lætur nú skammt stórrt högga milli. Eftir að hinum vel heppnuðu sýn ingum á „Jeppa á Fjalli“ lauk, var hafizt handa um að æfa „Mann og konu“. Á það vel við ai sýna klassískt erlent gamanleikrit, en síðan ram íslenzkt leikrit, sem jafnframt er ágæt þjóðlífs- lýsing á liðinni öld. Eins og kunnugt er, er leik- rit þetta samið upp úr sam- nefndri skáldsögu Thorodd- sens, en hún og „Piltur og stúlka" hafa verið almennings- eign frá útkomu þeirra (,,Pilt- ur og stúlka“ er lesin bók- menntalega í 4. bekk gagn fræðaskólans hér). Sonar-son ur skáldsins hinn fjölhæí: listamaður, Emil Thoroddsen sneri sögunni í leikrit, en auð vitað var slíkt ekki hægt, ár þess að breyta henni nokkuð fella úr og auka við. Þó halda persónurnar sér mjög vel. I fyrstu var leikritið mjög langt, en hefir nú verið stytt niður í hæfiega lengd. „Mað- ur og kona“ var leikið hér veturinn 1938, og mun það hafa verið eldri gerðin og lengri, sem þá var sýnd. LEIKSTJÓRINN. Leikfélagið hefir fengið Hólmgeir Pálmason til að stjórna þessu leikriti. Hann er Eyfirðingur og Akureyringur og hefir mikið fengizt við leik- list þar nyrðra, hefir leikið mikið með Leikfélagi Akureyr- ar um 12—14 ára skeið og nokkuð fengizt við leikstjórn. LEIKENDURNIR. Aðalhlutverkið, og jafnframt bað hlutverkið, sem krefst Framhald á 5. síðu. NÝ VERZLUN OPNUÐ Á SKÓLABRAUT 19. Viðtækja- og húsgagna- verzlun Akraness. Þjóðleifur Gunnlaugsson umboSsmaSur ViStœkja- verzlunarinnar hefir opn- aS nýja búS á Skólabr. 19. Eru þar til sölu alls konar útvarpsviðtæki, bæði stór og smá. Auk þess eru þarna á boð- stólmn húsgögn ýmiss konar, , málverk og myndir. Hátíð barnanna.

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1341

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.