Bæjarblaðið - 18.03.1958, Side 1
*
IBÆJARBLAÐH)
j fæst á eftirtölduin stöðum
| Verzlunin Brú,
| Veiöarfærav. Axels
j Sveinbjörnssonar,
BókaverzLun Andrésar
Níelssonar.
Verzl. Einars Úlafssonar.
Átthagamótiö í Tönder. Hinir gömlu litskrúÖugu þjóSbúmngar eiga vel viS gömlu húsin,
þar sem rósirnar teygja sig upp rneö veggjunum
Afli AfcronessbÁtn er orð-
iiiD svipnður og í fgrra
17 bátar gerðir út héðan.
Um siöustu rnánaöarnót var heildarafli Akranes-
báta oröinn 2218 lestir, í 382 róörurn. Um sama leyti
í fyrra var heildaraflinn 2463 lestir, í 304 róörum.
17 bátar eru nú gerðir út
héðan á þorskanet, en tveir á
línu. Hrefna og Fylkir leggja
afla sinn í Grindavík.
Fram er leigður til Vest-
mannaeyja, og Farsæll hefur
enn ekki byrjað róðra. Veldur
mannfæð því að svona háttar
til um þessa tvo báta.
Tveir aflahæstu bátarnir eru
að þessu sinni:
Sigrún með 305 lestir og
Öl. Magnússon með 220 lestir
(Upplýsingar þessar eru frá Júlí-
usi Þórðarsyni, útgerðarmanni).
fvœnUn Cbflrlejfs
Leikfélag Akraness frumsýndi enska gaman-
leikinn Frænku Charleys eftir Brandon Thomas,
miðvikudaginn 26. febrúar s.I. — Leikstjóri er
Gunnar K. Hansen.
Fréttflbréf frd syðsta vinabœnum
Bæjarblaðinu hefir borizt bréf frá Tönder, en
það er vinabær Akraness í Danmörku. Er bréfið
birt hér í lauslegri þýðingu og lítið eitt stytt.
Það er orðið langt síðan ég
hefi látið til mín heyra og síðan
hefir verið vinabæjamót á
Akranesi og sitthvað fleira hef-
ir gerzt. En við í syðsta vina-
bænum erum ánægð yfir því,
að það er líf í vinabæjahreyf-
ingunni og viljum gjarnan
HÖFÐINGLTG GJÖF
TIL SJÚKRAHÚSS
AKRANESS
Kr. 15.000 til röntgen-
tækja.
Sjúkrahúsi Akraness hef-
ur nýlega borizt gjöf aÖ upp-
hæð kr. 15.000.00 —• fimmt-
án þúsund krónur — frá
manni, sem ekki vill láta
nafns síns getið. Hann gefur
fjárhœð þessa til minningar
um systur sína, sem andað-
ist á síðasta ári, en hún hafði
dvalið í sjúkrahúsinu nokk-
urn tíma. Gjöfinni verður
varið til kaupa á hreyfanlegu
röntgentæki, sem sjúkrahúsið
hefur lengi vantað.
Stjórn Sjúkrahúss Akraness
þakkar þessum ágæta velunn-
ara stórmannlega gjöf, og þann
hlýhug, sem hann ber til
sjúkrahússins. Jafnframt vill
stjórnin þakka margar aðrar
góðar gjafir, sem sjúkrahúsinu
hafa borizt að undanförnu.
Stjórn Sjúkrahúss Akraness.
halda áfram að skiptast á
blaðagreinum og myndum frá
vinabæjunum. Með því móti
gefst fólki, bæði ungum og
gömlum, tækifæri til að skilja
vandamálin, sem við er að
glíma á hverjum stað.
Það gerðist fremur fátt
merkilegt í Tönder 1957. Vorið
kom seint og urðum við bók-
staflega að brjóta okkur leið út
úr isnum inn í blessað sumarið.
Hvítá var botnfrosin og þegar
þíðan loksins kom, leit lengi út
fyrir, að allur bærinn færi í káf
í vatn. En á síðustu stundu
bjargaði herinn okkur út úr
vandræðunum, með því að
sprengja rás fyrir vatnið út
gegnum ísinn — og svo kom
vorið loksins.
Aftur á móti kom haustið
seint. Kornið varð snemma
þroskað, en þá byrjaði að rigna
og það tafði uppskeruna. Og
ennþá einu sinni kom rigningin
Rauða kross deild Akraness
auglýsir nú hér í blaðinu sinn
árlega aðalíund. Flestum er
kunnugt hið margþætta hjálp-
ar- og líknarstarf sem Rauði
kross allra þjóða vinnur um
gjörvallan heim. Hér á landi
hefir Rauði kross Islands unn-
ið mikið í þágu íslenzku þjóð-
arinnar og einnig tekið allmik-
í veg fyrir, að bændumir gætu
tekið upp rófurnar í tæka tíð.
Ferðamannastraumurinn til
Tönder eykst hröðum skrefum,
og oft fáum við heimsóknir
norrænna vina. 1 sumar kom
riorsk drengjahljómsveit og
vakti mikla hrifningu. Hér var
haldið átthagamót og fjöldi
kvenna mætti þar í marglitum
suður-józkum þjóðbúningum.
Enginn veit nákvæma tölu
ferðamanna hingað, en hið
fallega farfuglaheimili okkar
hefir hýst 4000 næturgesti og
það segir töluvert.
Stærsta og eftirminnilegasta
heimsóknin var þó þegar kon-
ungur vor, ásamt drottning-
unni og ífallegu prinsessunum
okkar kom hingað í opinbera
heimsókn. Það var heimsókn,
sem við munum lengi minnast.
★
Vandamálið, sem stöðugt í-
þyngir okkur hér suður frá, er
spurningin um þróun efnahags-
málanna og framtíðarmöguleik-
inn þátt í alþjóðastarfi.
Bæjarblaðið vill sérstaklega
beina athygli fólks að þessari
merku félagsstarfsemi, og
benda því á, að það getur veitt
henni stuðning með því, m. a.
að gerast félagar í Rauða kross
deild Akraness. Fjölgun með-
lima er bæði beinn og óbeinn
styrkur fyrir deildina.
Það þykja jafnan nokkur tíð-
indi hér í bæ, þegar leikfélagið
hér sýnir leikrit. Er það ekki
undarlegt, því að hér á landi er
áhugi mikill á leiklist, og mim
Gunnar R. Hansen, leikstjóri.
það næstum einsdæmi í heimi
hér, að jafnvel fólk í strjálbýl-
ustu og afskekktustu héruðum
á landinu leggur á sig ótrúleg-
asta erfiði til að geta tekið þátt
í að æfa leikrit af einhverri
gerð. En slík áhugamennska í
leiklist, sem er allgömul og
gróin í landi hér, gerist nú
nokkru erfiðari hin síðustu ár-
Inntökubeiðnir má senda til
hvers sem er af stjórnarmeðlim-
um deildarinnar, en stjórn
hennar skipa nú: Torfi Bjarna-
son, héraðslæknir, frú Helena
Halldórsdóttir, frú Ingunn
Sveinsdóttir, Valgarður Krist-
jánsson, Friðjón Runólfsson og
Karl Helgason.
in, því að kröfur manna hafa
aukizt mikið, síðan við eignuð-
umst þjóðleikhús með lærðum
leikurum. Þessar auknu kröf-
ur hafa sjálfsagt verið sjálfri
leiklistinni til góðs hér á landi,
en hinu er ekki hægt að neita,
að þetta hefir steindrepið mögu-
leika margra smærri félaga,
t. d. vmgmennafélaga, til að
stunda leiklist og er það vita-
skuld miður. Þessum auknu
kröfum um leikstjórn faglærðra
manna og fullkominn sviðsút-
búnað fylgir svo sá böggull, að
þegar frumsýning fer fram, er
leikfélagið búið að hella sér út
í slíkar skuldir, að ef aðsókn
bregzt, getur það tekið mörg
ár að jafna sig aftur. Þetta
verður kannske skiljanlegra,
þegar leikhússgestir gera sér
ljóst, að leikstjórnin ein kostar
e. t. v. allan ágóða af tveim
fyrstu sýningunum, :enda þótt
Framhald á 2. síðu.
ÁRSHÁTÍÐIR
SKÓLANNA
Barnaskólans og gagnfrœða-
skólans eru nýafstaðnar við
góða aðsókn og undirtektir
báðar tvœr.
Ekki er þörf nákvæmrar frá-
sagnar af þessum samkomum,
en þær fóru ágætlega fram og
voru skólunum til sóma og á-
horfendum til ánægju, ella
væri aðsókn ekki svona prýði-
leg. Fyrirkomulag og skemmti-
skrá voru með líku sniði og
verið hefir.
Ástæða er til að óska skólun-
um og unga fólkinu til ham-
ingju með þessar samkomur.
Þær eru menningarbót í hæn-
um.
Framhald á 3. síðu.
— Starfsemi Rauða krossins —