Lýðveldi - 13.03.1925, Page 2

Lýðveldi - 13.03.1925, Page 2
2 LÝÐVELÐI Lýöveldi kemur út einu sinni i viku. f Vilhjálmur Th. Jóns’on. ítstj rn. | Ágíist Jóhannesson. Afgreiðsla: Klapparstíg 44, simi 1444. Áskriftargjald: Kr. 0,50 á mánuði. — Lausasala: Kr. 0,15 aura eintakið. — Dagbjartur: »Nei, það er ekki siður, en þær geta verið skipsjómfrúr. — En nú erum við komin að skólanum. 12 ára drengur. Lýöveldli ávarpar þjódina. Heilir og sælir bálsar góðir hvað segir okkar gamla móðir. Lýðveldi út á landsins hjarn labbar eins hægt og minsta barn. Fjallkonan hafði heitið því halda Lýðveldi skefjum i, meðan fullveldi sýndi sinn sóma og þjóða kærleikinn. Með ólögum ferst helst alt eða flest. allir sjá þó hvað vinnur bezt. Um það ei myndum óþarft hjal auðsýnt er það, sem -gera skal. Steínuskráin. 1. Lýðveldi er málgagn hinnar uppvax- andi kynslóðar íslands. 2. Lýðveldi hefir á stefnuskrá sinni, að einhverju leyti, helst öll áhuga og vel- ferðarmál þjóðarinnar. Það vill leit- ast við að gefa leiðbeiningar, að sva miklu leyti sem kraftar leyfa í verk- legum vísindum til lands og sjávar. 3. Lýðveldi flytur neðanmáls, ágrip af hérlendum og erlendum þjóðar- siðum, og einnig fyrirlestra, sem fluttir hafa verið hér á landi og í Ameríku, er ekki hafa komið á prent og eru því ókunnir okkar söguríku þjóð. Ennfremur getur verið að blaðið minnist lítils háttar á lög og reglur sem reynst hafa vel hjá þeim þjóð- um er sjálfstjórn hafa með höndum. 4. Lýðveldi vill sameina krafta þjóðar- innar og koma því inn hjá þjóðinni, að við eigum öll að vera sannir og góðir íslendingar og bræður og syst- ur, ef við erum það ekki nú, þá vonar samt Lýðveldi að við verðum það. 5. Lýðveldi birtir ekki aðsendar greinir nema að þeim fylgi fult nafn og heimilisfang. Persónulegar ádeilur tekur blaðið ekki, svo fremi að þær geti hnekt áliti einstaks manns, nema að sá sem um er skrifað hafi unnift eitthvað er komi í bága við heill þjóðarinnar. Auglýsingar og ritgerðir, sem snerta verklegar framfarir tekur blaðið fúslega á móti. Lýðueldi vill vera gott barn sem þjóð- inni þgkir vœnt um. 'X'il lesaudans. Lesendur Lýðveldis eru beðnir að af- saka þó ritháttur minn sé ekki á feg- ursta gullaldarmáli. Ég hefi dvalið full átján ár erlendis og er því farinn aö ryðga talsvert í íslenzkri tungu, var áður enginn snillingur í móðurmálinu. Útgefandinn.

x

Lýðveldi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lýðveldi
https://timarit.is/publication/1343

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.