Vertíð - 15.06.1926, Page 4
4
V E R T í Ð
m
r
: SJOMENN!
Við höfum eins og áður ávalt fyrirliggjandi góðar tegundir af:
Allskonar sjófatnaði t. d. Trawlstökkum enskum og
norskum, einnig olíufötum frá hinni viðurk. „Moss“
verksmiðju, bæði fyrir karlmenn og unglinga.
einnig Nanquins og Molleskinns fatnaði, Blússum, Ketilfötum, og mörgu fleira fyrir sjómenn.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. Austurstr. 1
1
<
<
<
J
Fallegast
m
m
c
SIMN EFþf I
VlGFl
iÐ-'1
að þetta aé
5 -Þad
?c
W\\
GUARANTEEDyW
ORIGINAL
ttl lancLsi*13 ^
VIGFÚS GUÐBRRNDS50N
KLŒÐSKERI - AÐflL5TRÆTU,8
SÍMI 470 OE 1070.
E?
5'
b
cn
tu
íslenzkir
Sjómannastofan
í Reykjavík.
Hún var stofnuð 15. ágúst
1923 og var þá fyrst til húsa á
Vesturgötu 4. Þaðan fluttist hún
í haust sem leið í Hafnarstræti
15, þangað sem áður voru skrif-
stofur hafnarinnar.
Síðan Sjómannastofan tók til
starfa hefir hún átt miklum vin-
sældum að fagna, og fjölgar þar
stöðugt gestum, bæði innlend-
um og útlendum. Mörgum sjó-
mönnum, sem ekki eiga heima
hér í bæ, heflr verið það mjög
kærkomið að geta setið í frí-
stundum sínum inni í hlýrri og
bjartri stofu, skemt sér þá við
tafl eða bóka- og blaðalestur (þar
eru bæði innlend og útlend blöð
og bækur), eða fengið að skrifa
bíéf til vina og vandamanna.
Orgel harmonium er í stofunni
og hefir það löngum verið ó-
spart notað og orðið mörgum'
til mikillar ánægju.
Arið sem leið hafa 10 þúsund
gestir heimsótt Sjómannastofuna
(8 þús. í fvrra). Sýnir þetta best
hve mikil þörf hefir verið á henni.
3500 bréf sendu sjómenn þaðan
(2 þús. í fyrra) og 2000 bréfum
var veitt viðtáka úr pósti og
komið til skila. Áður lentu bréf
til erlendra sjómanna oft á ring-
ulreið, og mörg komust aldrei
til skila. Vita þeir einir best,
er langvistum eru að heiman
og sigla milli fjarlægra landa,
hve dýrmæt bréf „að heimanu
eru, og því er sorglegt er slík
bréf lenda á hrakningi eða glat-
ast. Sjómannastofan hefir mikið
bætt úr þessu. Ennfremur hefir
hún hjálpað sjómönnum til að
koma peninga- og símskeyta-
sendingum á)eiðis. Kemur það
mörgum vel, því að oft er við-
staða stutt í höfn, og stundum
komið eftir að bönkum og póst-
húsi er lokað og lagt á stað áð-
ur en þær stofnanir eru opnað-
ar aftur. —
Jólasamkomur méð jólatré og
veitingum hafa verið haldnar
fyrir innienda og útlenda sjó-
menn, og heflr hver gestur feng-
ið böggull með gjöfum svo sem
vetlingum, sokkum, treflum, nær-
fötum o. þ. h. er hverju.u sjó-
manni kemur vel. Muni þessa
hafa vinir Sjómannastofunnar
gefið, og hefir mikið áf slíkum
gjöfum verið sent þangað frá
Danmörku og hefir drotning vor
sent þangað gjafir. Kaupmenn,
sem hafa fengið vöruskip um
jólaleytið hafa og fengið Sjó-
mannastofuna til þess að halda
skipsögnunum líkar skemtanir
— á sinn kostnað, og er það
virðingarverð hugulsemi.
Guðsþjónustur hafa verið
haldnar margar á árinu og á
hverju kvöldi er sunginn sálm-
ur og flutt stutt bæn. Eru sjó-
mönnum þessar guðræknisiðk-
anir mjög hjartfólgnar, og einn
íslenskur skipstjóri hefir komið
Klæðaverksmiðjan „ÁLAFOSS
Gjörið svo vel og athugið verð
og gæði á okkur haldgóðu dúk-
um í slitföt. Togarabuxur og
vetlingar ávalt til.
Komið og skoðið.
Afgr. „ÁLAF0SS“ Hafnarstr. 17
Sími 404.
þangað íheð alla skipsögn sína
og beðið um sérstaka guðsþjón-
ustu áður en lagt var út í byrj-
un vertíðar. Guðsþjónustur hafa
einnig verið fluttar á ensku,
dönsku og norsku.
Flestir gestanna hafa verið
íslendingar, en margra þjóða
menn hafa komið inn á Sjó-
mannastofuna, svo sem Færey-
ingar, Danir, Norðmenn, Svíar,
Finnar, Englendingar, Frakkar,
Þjóðverjar og menn frá Afríku,
Ameríku o. s. frv.
Yfirleitt má segja að Sjómanna-
stofan geri mikið meira gagn
en menn gátu gert sér beztar
vonir um þá er hún var sett á
stofn. Hún hefir líka verið svo
heppin að fá ötulan og samvisku-
saman forstjóra, sem vakinn og
sofinn hugsar um það, að Sjó-
mannastofan verði sjómönnnm
til sem mestrar blessunar.
myndarammar
i mörgum stærðum og gerðum eru
fyrirlig'gjandi og' seljast með lágu yerði
Allir smíðaðir úr bezta „Mahogni" og
sérstaklega vel póleraðir. Ennfremur
er tekið á móti pöntunum á allskonar
rnyndarömmum, sem afgreiðast á stutt-
um tima. Sérstaklega skal vakin at-
hygli á römmum fyrir stækkaðar mynd-
ir i hálf- og kvartarkar stærð og fjöl-
skyldurömmunum, þvi þeir seljast ó-
dýrara en nú þekkist hér, ef tekið er
tillit til vandaðrar vinnu og bezta efnis
Seljast á
Nýja Bazarnum,
Laugaveg 19.
Nýjustu fregnir.
Til þess að gera sjómönnum
og verkamönnum hægra fyrir
um kaup á fögrum og nytsöm-
um hlutum hefi eg undirritaður
ákveðið að veita þeim sérstök
kostakjör: Þeir geta fengið hjá
mér með vægum afborgunar-
skilmálum bæði úr, klukkur,
saumavjelar, reiðhjól og ánnað,
er þeir girnast. Alt eftir nánara
samkomulagi.
Virðingarfyllst
Sigurþór Jónsson
Aðalstræti 10
Sjómenn!
Það sem þið þurfið til útbúnað-
ar áður en þið farið á sjóinn
fæst ávalt, svo sem:
Gúmmístigvél, fullhá, hálfhá,
hnéhá,
Olíustakkar enskir og norskir,
Doppur enskar,
Trawlbuxur enskar,
Tréskóstígvél Ioðin og óloðin
Klossar loðnir og óloðnir
Olíufatnaður allskonar,
Síðkápur enskar og norskar
Vattteppi,
Köjuteppi,
Madressur,
Peysur enskar og norskar fl. teg.
Trawlsokkar
Sjóvetlingar,
Nærföt,
Nankinsföt,
Sjómannaskyrtur hvítar og misl.
Sjóhattar besta lagið o. m. m. fl.
Bestar vörur. — Lægst verð.
Veiðapfazraversl. ,,Geysir“
HafrmrstpæH 1 — Reykjavík.
Sjómaður
(dekkmaður og saltari) óskar eft-
ir atvinnu á togara nú þegar.
Upplýsingar í síma 1392.