Fréttablaðið - 24.06.2019, Page 2
Veður
Suðvestan 3-10 m/s, en 8-15 á
annnesjum norðvestan til. Skýjað
að mestu en bjart með köflum
austan- og suðaustanlands. Lítils-
háttar úrkoma á morgun, en áfram
þurrt austan til. Hiti 8 til 22 stig,
hlýjast á SA-landi. SJÁ SÍÐU 16
Fótboltastjörnur framtíðarinnar
Það var hart barist í nágrannaslag Selfoss og Hamars úr Hveragerði á Norður-
álsmótinu á Akranesi um helgina. Um 1.500 strákar úr 7. f lokki af öllu landinu
komu saman til þess að spila fótbolta og skemmta sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Garðtraktorar
fyrir þá kröfuhörðu
Gerir sláttinn auðveldari
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
AFÞREYING Fyrsti þáttur af hlað-
varpi Bubba Morthens, Sögur af
plötum, fór í loftið á föstudag á
Hlaðvarpi Fréttablaðsins. Þætt-
irnir verða gefnir út vikulega þar
sem Bubbi mun rýna í tíu plötur
sem hann hefur gefið út og fá til sín
gesti sem komu að framleiðsluferli
hverrar plötu.
Fyrsti þátturinn er tileinkaður
fyrstu plötu Bubba, Ísbjarnar-
blús, sem kom út 17. júní árið 1980.
Gestur þáttarins er gítarleikarinn
Sigurgeir Sigmundsson sem fer með
Bubba yfir aðdraganda og aðstæður
við tökur á plötunni. – atv
Hlaðvarp Bubba
Morthens
komið í loftið
Bubbi Morthens.
KÓPAVOGUR Heilbrigðiseftirlit
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
hefur nú sent kröfu til Sýslumanns-
ins á höfuðborgarsvæðinu varðandi
umgengni í og við tólf gamla sumar-
bústaði sem standa á svæðinu við
strendur Elliðavatns, en allar lýs-
ingarnar hljóða á svipaðan hátt:
„Vatnsendablettur 170. Hús er
að hrynja og er hættulegt, búið er
að brjóta allt sem hægt er. Stendur
opið. Hreinsa þarf allt lauslegt af
lóðinni. Æskilegt að rífa húsið.“
„Vatnsendablettur 43. Hús illa
farið, búið að brjóta allt sem hægt
er. Stendur opið. Hreinsa þarf allt
lauslegt af lóðinni. Æskilegt að rífa
húsið. Bílhræ þarf að fjarlægja.“
Í bréfi heilbrigðiseftirlitsins til
sýslumanns er ástandinu lýst. „Á
svæðinu er nokkur fjöldi gamalla
kofa eða smáhýsa sem á árum áður
voru nýttir sem sumarbústaðir en
hafa f lestir staðir tómir og yfir-
gefnir um árabil. Skemmdarvargar
hafa farið um svæðið og rústað
bústöðum, brotið allar rúður, hurð-
ir, skemmt veggi og palla og eyðilagt
innréttingar og innbú.“
Þá segir í bréfinu að spýtnabrak,
brotnar rúður og ýmiss konar rusl
og jafnvel spilliefni sé víða dreift um
lóðirnar. „Bifreiðar sem lagt hefur
verið á svæðinu hafa einnig fengið
að kenna á skemmdarvörgum.
Ásýnd svæðisins er til verulegra
lýta. Svæðið er ógirt. Slysahætta
getur stafað af svæðinu fyrir börn,
fullorðna og gæludýr þegar fólk á
þarna leið um. Vaxandi fokhætta er
frá svæðinu og viðbúið að skemmd-
arvargarnir kveiki í kofunum líkt
og gerst hefur ítrekað austan Ell-
iðavatns.“
Íbúar svæðisins hafa kvartað í
næstum tvö ár yfir umgengninni
en ekkert hefur breyst, en Hörður
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis segir það vera
vegna f lókinnar stöðu varðandi
dánarbú látins eiganda lóðanna,
Þorsteins Hjaltested. „Bréfið er nú
til skoðunar hjá sýslumanni, en
þar sem það eru mjög takmarkaðar
heimildir sem sýslumaður hefur
til athafna fyrir hönd dánarbús er
þetta erindi til nánari umfjöllunar
og hafa þeir því fengið frest til að
svara fyrirspurn okkar.“
Í bréfinu vekur Heilbrigðiseftir-
litið einnig athygli sýslumanns á
því að Kópavogsbær bjóðist til að
hreinsa lóðirnar á sinn kostnað, en
þurfi formlegt samþykki lóðarhafa
til að hefja hreinsunarstarf. „Heil-
brigðiseftirlitið skorar á forsvars-
mann dánarbúsins að nýta sér þessa
þjónustu Kópavogsbæjar. Að öðrum
kosti mun heilbrigðiseftirlitið láta
hreinsa lóðirnar á kostnað lóðar-
hafa.“ palmik@frettabladid.is
Slysahætta vegna tólf
yfirgefinna bústaða
Heilbrigðiseftirlitið segir umgengni við sumarhúsalóðir við Elliðavatn
óásættanlega og krefst hreinsunar á svæðinu undir eins. Sýslumaður hefur
fengið frest til þess að bregðast við kröfunni vegna flókinnar stöðu mála.
Ljóst er að ástandið er ekki boðlegt íbúum nærliggjandi byggðar. Heil-
brigðiseftirlitið segir æskilegt að húsin verði rifin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hús er að hrynja og
er hættulegt, búið er
að brjóta allt sem hægt er.
Stendur opið. Hreinsa þarf
allt lauslegt af lóðinni.
Æskilegt að rífa húsið.
Úr bréfi Heilbrigðiseftirlits Hafnar-
fjarðar- og Kópavogssvæðis
SAMGÖNGUR Talsmenn reiðhjóla-
verslananna Arnarins og Tri ehf.
segja sölu rafmagnshjóla hafi auk-
ist talsvert frá því í fyrra en ekki sé
hægt að tala um sprengingu.
„Miðað við hvað hefur verið að
gerast úti í Evrópu er ekki hægt að
tala um sprengingu hér á landi,“
segir Jón Pétur Jónsson, eigandi Arn-
arins. „Ég veit ekki hvort Íslendingar
séu svona seinteknir fyrir rafmagni
en um leið og þeir prófa þetta koma
þeir aftur brosandi út í bæði.“
Aðspurður um aldurshópana
segir Jón kaupendahópinn á hefð-
bundnum rafmagnshjólum vera í
eldri kantinum en yngra fólkið sæki
heldur í rafmagnsfjallahjól. - atv
Stöðug aukning
í sölu rafhjóla
SAMFÉLAG Guðlaugur Þór Þórðar-
son, utanríkisráðherra, hefur
ákveðið að verja þrettán milljónum
króna í sérstakt verkefni skrifstofu
mannréttindafulltrúa Sameinuðu
þjóðanna (OHCHR). Verkefnið snýr
að því að vinna að útbreiðslu rétt-
inda hinsegin fólks um allan heim
og er framlagið í samræmi við
áherslur Íslands í mannréttindaráði
sameinuðu þjóðanna. Ráðið fundar
í Genf í dag á sínum fertugasta og
fyrsta fundi og eru jafnréttismál
þar efst á dagskrá. -bdj
13 milljónir
til réttinda
hinsegin fólks
Rafmagnshjól eru að verða sífellt
vinsælli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fleiri myndir frá mótinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
2 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
4
-5
1
E
C
2
3
4
4
-5
0
B
0
2
3
4
4
-4
F
7
4
2
3
4
4
-4
E
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K