Fréttablaðið - 24.06.2019, Síða 6
Talið er að um 250
þúsund manns hafi mót-
mælt forsætisráðherranum.
10,9
milljarðar verða íbúar
jarðarinnar árið 2100
✿ Þróun íbúafjölda í heiminum, Evrópu og á Íslandi
800 milljónir
700
600
Evrópa
1950 2019 2050 2100
1950 549 milljónir
2019 747 milljónir
2050 710 milljónir
2100 630 milljónir
400 þúsund.
300
200
Ísland
1950 2019 2050 2100
1950 143 þúsund
2019 339 þúsund
2050 377 þúsund
2100 353 þúsund
12 milljarðar
10
8
6
4
Heimurinn
1950 2019 2050 2100
1950 2,54 milljarðar
2019 7,71 milljarðar
2050 9,74 milljarðar
2100 10,87 milljarðar
HEIMSMÁL Íbúar Evrópu verða um
630 milljónir árið 2100. Það er 117
milljónum færra en í ár. Þetta er á
meðal þess sem kom fram í nýrri
mannfjöldaskýrslu sem mann-
fjöldadeild Sameinuðu þjóðanna
birti fyrr í vikunni. Hins vegar mun
íbúum heims fjölga talsvert heilt
yfir. Búist er við því að jarðarbúar
verði 9,7 milljarðar um miðja öld og
að fjölgunin muni ná hápunkti árið
2100, verða 10,9 milljarðar.
Á meðan Evrópubúum mun
fækka er talið að það verði fólks-
fjöldasprenging í Afríku sunnan
Sahara. Þar gæti fólksfjöldi tvö-
faldast á næstu þrjátíu árum. Ind-
verjum heldur áfram að fjölga og
verður þjóðin sú fjölmennasta í
heimi í kringum árið 2027.
Fæðingartíðni í heiminum hefur
lækkað undanfarna áratugi og
lítur því út, eins og áður segir, að
fjölgunin toppi um næstu aldamót.
Meðalkonan átti 3,2 börn árið 1990,
2,5 barn í ár og um miðja öld mun
talan standa í 2,2.
Ríki Evrópusambandsins og
Japan hafa verið á undan þessari
þróun og er fæðingatíðni þar vel
undir þeim 2,1 sem sagt er nauð-
synlegt til að viðhalda fólksfjölda í
skýrslunni. Fæðingartíðni í Evrópu-
sambandinu er um 1,6 og um 1,8 í
Japan. Á Íslandi stóð talan í 1,7 á
síðasta ári.
Þessi þróun sem nú þegar má
greina í Evrópu, Japan og víðar
þýðir að samfélög verða eldri. Sam-
kvæmt skýrslu sem framkvæmda-
stjórn ESB birti á síðasta ári er horft
fram á að fólki á milli fimmtán og
64 ára, það er að segja sá hluti sam-
félagsins sem tekur hvað virkastan
þátt í atvinnulífinu, muni fækka úr
333 milljónum árið 2016 í 292 millj-
ónir árið 2070.
„Spár gera ráð fyrir því að fjár-
hagsleg áhrif þessa verði mikil
fyrir öll aðildarríki og að áhrifin
verði strax ljós á næstu tveimur ára-
tugum. Innan Evrópusambandsins
er búist við því að heildarkostn-
Mikil fólksfækkun í Evrópu til 2100
Meðalaldur í Evrópu er hár og er von á fólksfækkun. NORDICPHOTOS/AFP
Afríka keyrir fjölgunina áfram
Samkvæmt skýrslu SÞ mun
fólksfjöldi í Afríku sunnan Sahara
tvöfaldast á næstu þrjátíu árum.
Fjölgunin mun, samkvæmt spám,
nema einum milljarði og færist
heimshlutinn nær því að verða sá
fjölmennasti í heiminum.
Alls er útlit fyrir að Afríka
sunnan Sahara verði ábyrg fyrir
rúmum helmingi allrar fólks-
fjölgunar fram til 2050 og að
fjölgun þar haldi ört áfram allt til
aldarloka. Þessi þróun hefur verið
einstaklega greinileg í Nígeríu
undanfarna áratugi en þar hefur
íbúum fjölgað úr 95 milljónum
árið 1990 í 201 milljón á þessu ári.
Nígeríumenn verða samkvæmt
spánni rúmlega 400 milljónir um
miðja öld.
„Flest þeirra samfélaga sem ör-
ast vaxa eru í fátækustu ríkjunum
þar sem mannfjöldaaukningin
hefur í för með sér auknar áskor-
anir í baráttunni gegn fátækt,
hungri og vannæringu og fyrir
jafnrétti og sterkum innviðum,“
hafði Financial Times efitr Liu
Zhenmin, yfirmanni efnahags- og
félagsmála hjá SÞ.
TYRKLAND AKP, stjórnmálaflokkur
Recep Tayyip Erdogan Tyrklands-
forseta hefur nú tapað aftur eftir
endurteknar borgarstjórakosn-
ingar í Istanbúl. Ekrem Imamoglu,
frambjóðandi stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins, sigraði og fékk 54
prósent atkvæða.
Þetta er í annað sinn sem kosn-
ingarnar eru haldnar en Imamoglu
bar óvæntan sigur úr býtum með
13 þúsund atkvæða mun í mars
síðastliðnum. Þær kosningar voru
ógiltar eftir kvartanir frá hinum
ráðandi AKP flokki. Voru kosning-
arnar endurteknar vegna frávika í
talningu atkvæða.
Niðurstöðurnar eru talsvert
bakslag fyrir Erdogan sem hefur
áður sagt að sá sem vinni Istanbúl,
vinni Tyrkland. Imamoglu sagði í
sigurræðu sinni útkomuna marka
„nýja byrjun“ fyrir bæði borgina
og landið. „Við erum að fletta nýrri
blaðsíðu í sögu Istanbúl,“ sagði Ima-
moglu. „Á þessari síðu verður rétt-
læti, jafnrétti, ást.“
Sigur Imamoglu með rúmlega 775
þúsund atkvæða mun sýnir stór-
aukið fylgi samanborið við niður-
stöður kosninganna í mars.
Erdogan, sem er frá Istanbúl, var
kosinn borgarstjóri þar árið 1994 og
stofnaði svo AKP árið 2001. Í kjöl-
farið var hann forsætisráðherra frá
árinu 2003, þar til hann varð loks
forseti Tyrklands 2014.
„Erdogan er mjög áhyggjufullur,“
sagði Murat Yetkin, blaðamaður og
rithöfundur, í aðdraganda kosn-
inganna. „Hann er að spila hverju
einasta trompi sem hann hefur. Ef
hann tapar markar það endalok
stöðugs pólitísks gengis hans síð-
asta aldarfjórðunginn.“ - pk
Flokkur Erdogan tapar í Istanbúl
aður öldrunar, það er eftirlauna-
greiðslna, heilbrigðisþjónustu,
menntunar og atvinnuleysisbóta,
aukist um um 1,7 prósentustig
og verði því 26,7 prósent af vergri
landsframleiðslu,“ sagði í tilkynn-
ingu um þá skýrslu.
Þessi lága fæðingartíðni og hækk-
andi meðalaldur hefur í för með
sér, samkvæmt umfjöllun The New
York Times um skýrslu SÞ, erfiðleika
við að viðhalda grunnstoðum vel-
ferðarkerfis vegna þess aukna álags
sem von er á.
Og að því er kemur fram í umfjöll-
un Sameinuðu þjóðanna um þau
vandamál sem fylgja öldrun sam-
félaga er um að ræða eina stærstu
breytingu 21. aldarinnar „sem hefur
áhrif á nærri öll svið samfélagsins,
þar á meðal atvinnumál, fjármála-
kerfi og eftirspurn eftir vörum og
þjónustu“. thorgnyr@frettabladid.is
Lækkandi fæðingar-
tíðni í Evrópu þýðir
mikla fólksfækkun
fyrir aldarlok. Hærri
meðalaldur innan
álfunnar gæti reynst
erfið áskorun. Heilt yfir
fjölgar jarðarbúum í
tæpa ellefu milljarða
árið 2100 og mun mest
fjölgun eiga sér stað í
Afríku sunnan Sahara.
Stuðningskona Ekrem Imamoglu fagnar sigrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
TÉKKLAND Tékkar söfnuðust í gær
saman í Letna-garðinum til þess að
kalla eftir afsögn forsætisráðherra
landsins, Andrej Babis. Mótmælin
eru þau stærstu í landinu síðan í
Flauelsbyltingunni árið 1989 sem
steypti kommúnískri ríkisstjórn
Tékkóslóvakíu af stóli.
Mótmælin eru hápunktur raða
mótmæla á síðustu vikum gegn
Babis, sem hefur sætt rannsókna
vegna meintra fjársvika og hags-
munaárekstra, ásökunum sem
hann harðneitar.
Tékkar eru um 10,7 milljónir
talsins en skipuleggjendur mót-
mælanna telja að um 250 þúsund
hafi mætt. Mótmælendur báru
skilti og borða sem á stóðu „Segðu af
þér“, „Við höfum fengið nóg“ og „Við
munum ekki láta lýðræðið eftir.“
Aðrir veifuðu fánum Tékklands og
Evrópusambandsins.
Vantrauststillaga sem stjórnar-
andstaðan hyggst leggja fram á
miðvikudaginn verður að öllum
líkindum felld en Babis nýtur nægs
stuðnings þingsins og hefur fast-
lega neitað því að segja af sér sem
forsætisráðherra.
Lögreglan í Tékklandi lagði til
að Babis, sem er oft líkt við Donald
Trump forseta Bandaríkjanna
vegna fjárhags hans og viðskipta-
umsvifa, yrði kærður fyrir fjár-
svik vegna notkunar hans á niður-
greiðslu frá ESB til þess að byggja
hótel rétt fyrir utan Prag. Babis
neitar öllum misgerðum.
Skipan nýs dómsmálaráðherra
stuttu eftir tilkynningu lögregl-
unnar leiddi svo til fjöldafundar
mótmælenda. - pk
Fjölmenn mótmæli í Prag
2 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
4
-7
9
6
C
2
3
4
4
-7
8
3
0
2
3
4
4
-7
6
F
4
2
3
4
4
-7
5
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K