Fréttablaðið - 24.06.2019, Qupperneq 10
FÓTBOLTI Markahrókurinn Harpa
Þorsteinsdóttir mun ekki snúa
aftur inn á völlinn þetta sumarið
eftir að Harpa þurfti að gangast
undir aðra aðgerð vegna rifins lið-
þófa í vor. Meiðslin má rekja aftur
til þess þegar Harpa sleit kross-
band og reif liðþófa á sama tíma í
úrslitum Mjólkurbikarsins í fyrra.
Þetta staðfesti Harpa í samtali við
Fréttablaðið um helgina.
„Það er mjög algengt að liðþófinn
rifni við krossbandsslit og hann var
saumaður saman í aðgerðinni. Svo
þegar ég fór að auka álagið í vor
við æfingar var ég farin að finna
að það var ekki allt eins og það á að
vera. Svo kemur þetta í ljós í vor og
ég fór í speglun til að láta laga lið-
þófann sem tafði endurhæfinguna.
Krossbandið lítur mjög vel út eftir
aðgerðina en það þurfti að laga lið-
þófann á ný.“
Harpa hefur leikið stærstan
hluta ferilsins á Íslandi með upp-
eldisfélaginu sínu, Stjörnunni. Hún
hefur einnig leikið með Breiðablik á
Íslandi og Charlton á Englandi.
Harpa vann tvöfalt, bæði gullskó-
inn sem markadrottning Pepsi-
deildarinnar og var valin besti
leikmaður deildarinnar þrisvar á
fjögurra ára tímabili frá 2013-2016.
Alls hefur Harpa skorað 181 mark í
252 leikjum í efstu deild á Íslandi.
Þá hefur Harpa leikið 67 leiki
fyrir A-landslið Íslands, farið tvisv-
ar á Evrópumótið og skorað nítján
mörk í landsliðstreyjunni.
„Ég var alltaf búin að ákveða að
taka þetta sumar í endurhæfingu
og gefa mér góðan tíma í hana til að
styrkja mig. Ég er kominn yfir þrí-
tugsaldurinn og hef aldrei gengið
í gegnum hnémeiðsli þannig að ég
var undir það búin að þessi endur-
hæfing myndi taka sinn tíma,“
sagði Harpa sem fór eftirminnilega
á Evrópumótið í Hollandi sumarið
2017 tæpum fjórum mánuðum eftir
barnsburð.
„Þá var mikil hvatning að komast
með liðinu á EM. Núna ákvað ég að
gefa mér meiri tíma enda var mikið
álag á líkamanum í aðdraganda
meiðslanna síðasta sumar.“
Harpa er samningslaus þessa dag-
ana eftir að hún kaus að framlengja
ekki við Stjörnuna síðasta haust.
„Ég skrifaði ekki undir nýjan
samning í haust til að gefa mér
meira svigrúm. Ég hef verið að æfa
upp á eigin spýtur og í raun í fríi frá
öllu. Ég mun svo skoða hvað gerist
þegar maður kemst aftur út á völl.
Þetta er í fyrsta skiptið sem maður
er ekki á fullu á tímabilinu og ég hef
náð að eyða auknum tíma með fjöl-
skyldunni sem er ágætis tilbreyt-
ing,“ sagði Harpa létt og bætti við:
„Ég veit alveg að ég er ekkert ung-
lamb og var við því búin að kannski
yrði endurhæfingin erfið. Þá þarf
maður að hugsa sinn gang en ég finn
mikinn mun eftir aðgerðina og er
komin á ágætis ról. Við það fer það
að kitla mann að komast aftur út á
völlinn,“ sagði Harpa sem sagðist
vilja fara út á eigin forsendum.
„Það er erfitt þegar maður er
búinn að eiga langan og nokkuð far-
sælan feril hérna heima að fara ekki
út á mínum forsendum. Það drífur
mig svolítið áfram. Það er erfitt að
hugsa til þess að þessi meiðsli hafi
verið endalokin.“
kristinnpall@frettabladid.is
Harpa fór aftur undir hnífinn
Ekkert verður úr því að landsliðsframherjinn Harpa Þorsteinsdóttir snúi aftur inn á völlinn í sumar eftir
að hún þurfti að gangast undir aðra aðgerð vegna rifins liðþófa. Hún stefnir á að snúa aftur næsta sumar.
KR-ingar skildu FH eftir í miðjumoði
Alex Freyr Hilmarsson fagnar hér fyrra marki KR í 2-1 sigri á FH í Pepsi Max-deild karla í gærkvöldi þegar KR-ingar tylltu sér í toppsæti deildar-
innar á nýjan leik. KR og Breiðablik virðast vera í sérf lokki í deildinni í sumar og eru komin með gott forskot á næsta lið en aðeins eitt stig skilur að
liðin þegar þau eru búin með tíu leiki. Sigur KR-inga í gær var sá sjötti í síðustu átta deildarleikjum gegn FH í Kaplakrika. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Harpa í leik með Stjörnunni síðasta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
FORMÚLA 1 Yfirburðir Mercedes á
þessu tímabili héldu áfram þegar
Lewis Hamilton vann sjötta kapp-
aksturinn af átta á tímabilinu og
áttunda kappaksturinn í röð sigraði
ökuþór frá Mercedes þegar keppni
fór fram í Frakklandi. Hamilton
og liðsfélagi hans, Valtteri Bottas,
hafa verið í sérflokki og er Hamil-
ton kominn með 76 stiga forskot á
Sebastian Vettel frá Ferrari sem er
í þriðja sæti.
Sigur Hamilton í gær var afar
öruggur og leiddi hann allan kapp-
aksturinn eftir að hafa náð ráspól á
laugardaginn. Hann stefnir hrað-
byri að sjötta heimsmeistaratitli
ökuþóra og vantar nítján sigra til að
jafna met Michaels Schumacher yfir
f lesta sigra í sögu Formúlu 1.
Hamilton sjálfur virtist gefa lítið
fyrir gagnrýni um að einokun hans
væri að draga úr skemmtanagildi
kappakstursins.
„Það þýðir ekki að benda á okkur
ökuþórana, við semjum ekki regl-
urnar. Þetta er undir stjórnendun-
um komið að setja reglurnar og þeir
hafa tekið slæm-
ar ákvarðanir
ár eftir ár.“
- kpt
Enn einn sigur
Lewis Hamilton
Ég veit alveg að ég er
ekkert unglamb og
var við því búin að kannski
yrði endurhæfingin erfið.
Harpa Þorsteinsdóttir
KÖRFUBOLTI Martin Hermanns-
son og félagar í Alba Berlin þurftu
að láta silfurverðlaunin duga eftir
að Bayern tókst að vinna þriðja
leikinn í röð í úrslitakeppninni í
gær. Bayern tókst að landa titlinum
á heimavelli með 93-88 sigri eftir
framlengingu. Eru þetta þriðju
silfurverðlaun Alba Berlin á fyrsta
ári Martins með félaginu.
Liðin mættust í Bæjaralandi
þar sem tímabilið var undir hjá
gestunum frá Berlín. Þeir byrjuðu
leikinn af krafti og leiddu í hálfleik
46-31. Stefndi allt í að liðin myndu
mætast á ný í Berlín. Bayern tókst að
jafna metin þegar fjörutíu sekúndur
voru eftir og þurfti því að grípa til
framlengingar þar sem heimamenn
reyndust sterkari.
Alba Berlin með Martin innan-
borðs fékk því silfurverðlaun í
þýska bikarnum, þýsku deildinni
og Evrópubikarnum á fyrsta tíma-
bili hans með þýska félaginu eftir
að hann kom frá franska félaginu
Champagne Châlons-Reims síðasta
sumar. – kpt
Þriðja silfur
ársins hjá Alba
Martin var með sjö stig í leiknum í
gær. NORDICPHOTOS/GETTY
2 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
4
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
4
-6
0
B
C
2
3
4
4
-5
F
8
0
2
3
4
4
-5
E
4
4
2
3
4
4
-5
D
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K