Fréttablaðið - 24.06.2019, Page 34
Blómsturheimar er heiti yfirlitssýningar á Kjar-valsstöðum á verkum S öl v a Helg a s on a r. Har pa Björ nsdóttir er sýningarstjóri. Um
aðdragandann að sýningunni segir
hún. „Á Kjarvalsstöðum verður
opnuð í lok júní sýning á verkum
William Morris. Ólöf Sigurðardóttir,
forstöðumaður Listasafns Reykja-
víkur, fékk þá hugmynd að tengja þá
sýningu við verk Sölva Helgasonar,
en þeir Morris eru samtímamenn
og blómamynstur er afar áberandi
í verkum beggja. Ólöf veit að ég hef
verið að rannsaka verk Sölva og
spurði hvort ég vildi vera sýningar-
stjóri yfirlitssýningar á verkum
hans. Ég sagði auðvitað já, takk!
Ég hef lengi verið heilluð af verk-
um Sölva, eða allt frá því ég sá þau
fyrst á skólaárum mínum í Mynd-
Hver mynd Sölva Helgasonar er einstök veröld
„Ég hef lengi verið heilluð af verkum Sölva,“ segir Harpa Björnsdóttir, en sýning á verkum hans stendur yfir á Kjarvalsstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Verkin á sýningunni eru fimmtíu og átta.
„Myndverk hans eru falleg og áhrifamikil,“ segir Harpa Björnsdóttir.
Yfirlitssýning
á verkum Sölva
Helgasonar á
Kjarvalsstöðum.
Við opnun varð að
hleypa gestum inn
í hollum.
lista- og handíðaskólanum. Árið
2011 lét ég gamlan draum rætast
og setti upp litla sýningu á verkum
Sölva í Safnasafninu á Svalbarðs-
strönd, þannig að ég þekki mynd-
verk hans vel og hef sömuleiðis farið
yfir skrif hans. Ég hef einnig leitað
að verkum eftir hann í einkaeigu til
skráningar og fundið ýmislegt sem
ekki var vitað um, eins og verk í Dan-
mörku sem eru nú komin heim.“
Hleypt inn í hollum
Við opnun sýningarinnar á Kjarvals-
stöðum varð að hleypa inn í hollum
svo mikill var áhuginn. Verkin á
sýningunni eru alls fimmtíu og átta
og segir Harpa stærstan hluta þeirra
koma frá Þjóðminjasafni Íslands og
Landsbókasafni Íslands en einnig
eru verk fengin að láni úr einkaeigu,
þar með talin verkin 18 sem hingað
til hafa verið varðveitt í Danmörku.
„Sölvi Helgason snertir okkur á
svo margan hátt. Myndverk hans eru
falleg og áhrifamikil þó þau séu mörg
hver smá í sniðum, hver mynd er ein-
stök veröld. Blómafléttur og blóma-
flúr einkenna verkin og alltaf er vor
og sumar í myndum Sölva. Litirnir
eru fallegir, hann notar mikið rautt
og gult, heita liti sem fanga augað og
sem höfða til okkar,“ segir Harpa.
Krafðist réttinda
Sölvi fæddist árið 1820 í Skagafirði
og lést 1895. Hann var f lakkari,
fræðimaður og listamaður og mikill
sérvitringur. Hann komst í kast við
lögin og var árið 1854 dæmdur til
þriggja ára betrunarvistar í Dan-
mörku. „Maðurinn sjálfur og líf hans
hafa alltaf vakið forvitni. Það hafa
verið skrifuð um hann skáldverk,
leikrit, ljóð og Magnús Eiríksson
samdi lagið fræga um hann,“ segir
Harpa. „Ég held að allir íslenskir
listamenn hljóti að tengja við hann
að einhverju leyti. Hann var mjög
f lókinn maður og lenti í hremm-
ingum af því hann gaf sig ekkert með
það að hann ætlaði sér að ferðast
um Ísland sem náttúrufræðingur og
listamaður. Hann átti sjálfsagt ein-
hverjar fyrirmyndir, hafði séð hinn
þekkta landmælingamann Björn
Gunnlaugsson við vinnu sína og
hann vissi af Jónasi Hallgrímssyni
sem fór um landið og safnaði steina-
og plöntusýnum, og sjálfur safnaði
Sölvi steinum og skráði hjá sér athug-
anir á landi og náttúru. Sölvi var að
krefjast réttinda sem voru ekki í boði
á þessum tíma, jarðnæðislaust fólk
var bundið við sinn fæðingarhrepp
með svokölluðu vistarbandi og ekki
frjálst ferða sinna. Enda hafði Sölvi
ekki annað upp úr krafsinu en hýð-
ingar og fangelsisvist.“
LITIRNIR ERU FAL-
LEGIR, HANN NOTAR
MIKIÐ RAUTT OG GULT, HEITA
LITI SEM FANGA AUGAÐ OG SEM
HÖFÐA TIL OKKAR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
2 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
4
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
4
-7
9
6
C
2
3
4
4
-7
8
3
0
2
3
4
4
-7
6
F
4
2
3
4
4
-7
5
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K