Fréttablaðið - 17.07.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 4 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9
... til að slá í gegn
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
GRILLJÓN
ástæður til að grilla
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
BRÚÐKAUPS-
BLÖÐRUR OG
SKREYTINGAR
Finndu okkur á
„Ég þarf að fara á báti og vitja um netið fjórum sinnum á dag,“ segir Einar Haraldsson á Urriðafossi. Hann hefur lengi veitt í net í Þjórsá en nýlega var farið að veiða á stöng við Urriðafoss
sem nú er af lamesta laxveiðistöð landsins. Magnús og Gunnar Gunnarssynir voru við veiðar þar í gær. Gabríel Róbertsson hélt á stönginni er lax beit á. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI Malasíska fyrirtækja-
samsteypan Berjaya Land Berhad,
sem var stofnuð af milljarðamær-
ingnum Vincent Tan, eiganda Car-
diff City, mun greiða 53,6 milljónir
dala, jafnvirði um 6,7 milljarða
króna, fyrir 75 prósent hlutafjár í
Icelandair Hotels og þeim fasteign-
um sem tilheyra hótelrekstrinum.
Kaupin eru jafnframt háð
því að skuldir hótelkeðj-
unnar verði endurfjár-
magnaðar með nýjum
lánum upp á 64 til 72
milljónir dala. Frá þessu
er greint í tilkynningu
s e m B e r j ay a
sendi malas-
ísku kauphöll-
inni í fyrra-
kvöld. – kij /
sjá Markaðinn
Sjö milljarðar
fyrir hlutaféð
TOLLAMÁL Kristján Þór Júlíus-
son landbúnaðarráðherra boðar
í Fréttablaðinu í dag breytingar á
innf lutningskerfi sem gilt hefur
varðandi landbúnaðarvörur.
Í stað útboðs tollkvóta og úthlut-
unar til hæstbjóðenda vill land-
búnaðarráðherrann að úthlutun
tollkvóta styðjist við svokallað
„hollenskt útboð“
sem þyki sann-
gjarnara. Í því
felst að lægsta
s a m þ y k k t a
tilboð útboðs
ák varði verð
allra sam-
þ y k k t r a
tilboða í
útboði.
– ds / sjá
síðu 10
Ráðherra boðar
breytt tollkerfi
Kristján Þór Júlíusson
landbúnaðarráðherra.
BANKAR Stjórnvöld þurfa að marka
skýra stefnu til að bæta rekstrarum-
hverfi bankanna áður en ráðist
verður í sölu á eignarhlut ríkisins í
Íslandsbanka og Landsbankanum.
Þung skattbyrði og strangt regluverk
koma niður á arðsemi bankanna en
hún hefur mikið að segja um sölu-
verðið sem ríkið getur búist við að fá.
„Ég er ekki viss um að bankarnir
séu vænlegir til sölu ef við horfum
á rekstrarumhverfið, hvernig þeir
eru skattlagðir og hversu þröngar
skorður þeim eru settar um samstarf
til að hagræða. Efnahagsreikningar
eru traustir en geta þeirra til að skila
mikilli arðsemi í framtíðinni er ekki
sérstaklega góð,“ segir Yngvi Örn
Kristinsson, hagfræðingur Samtaka
fjármálafyrirtækja, í samtali við
Markaðinn.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
hjá hagfræðideild Landsbankans,
tekur í sama streng.
„Það er ekkert launungarmál
að skattlagning í bankakerfinu er
hærri en annars staðar. Þetta rífur
niður arðsemina og þar með verðið
á bönkunum. Síðan er gríðarlega
mikið regluverk á fjármálamarkaði
sem fjárfestar horfa til þegar þeir
verðmeta banka. Það skiptir því
miklu máli hvaða sýn stjórnvöld hafa
á framtíð regluverksins og lagaum-
gjarðarinnar,“ segir Sveinn.
Á næstu vikum skilar Bankasýsla
ríkisins ýtarlegri skýrslu um stöðu
á bankamarkaði og tillögu um sölu-
ferli bankanna. Nýlega var haft eftir
Lárusi L. Blöndal, stjórnarformanni
Bankasýslunnar, að unnt væri að
hefja söluferlið á næsta ári.
Óli Björn Kárason, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar, segist
vona að söluferli geti hafist á næsta
ári. Það geti þó tekið mörg ár.
„Það skiptir miklu máli að hefjast
handa með skýra stefnu hvað varðar
aðferðafræði og tímaramma. Erum
við að tala um að losa að mestu eða
öllu leyti um eignarhald ríkisins á
fjármálafyrirtækjum á næstu 10
árum? Ég held að það sé skynsam-
legt að setja slíkan tímaramma.“
– tfh / sjá Markaðinn
Sala bankanna krefst skýrari sýnar
Framtíðarsýn stjórnvalda á umgjörð fjármálakerfisins skiptir meginmáli þegar kemur að sölu á eignarhlut ríkissjóðs í Íslands-
banka og Landsbankanum. Arðsemisgetan dregin niður af miklu regluverki og þungri skattbyrði sem hefur áhrif á söluverðið.
420
milljarðar króna er saman-
lagt eigið fé Landsbankans
og Íslandsbanka.
1
7
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
F
-D
E
C
C
2
3
6
F
-D
D
9
0
2
3
6
F
-D
C
5
4
2
3
6
F
-D
B
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K