Fréttablaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið ORKUMÁL Orka náttúrunnar segist ekki hafa átt í neinum viðskiptum við Hleðslu ehf. eftir að framkvæmda- stjóri og einn eigandi fyrirtækisins hóf störf hjá ON. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku var Ólafur Davíð Guð- mundsson, f ramk væmdastjór i Hlöðu, ráðinn sem ráðgjafi til ON. Í bréfi sem ON sendi Fréttablaðinu segir að hann hafi verið ráðinn með stuttum fyrirvara eftir að tæknistjóri þurfti að fara frá tímabundið af per- sónulegum ástæðum. „Við þessu þurfti að bregðast hratt og finna einstakling með nauðsynlega þekkingu og réttindi til að tryggja rekstur og halda uppi þjónustu við viðskiptavini,“ segir í bréfinu. „Með mjög stuttum fyrirvara var fenginn ráðgjafi, sem jafnframt starfar hjá og er einn eigenda Hleðslu ehf., með framúrskarandi tæknilega þekkingu á hlöðum í tímabundið hlutastarf.“ Segir einnig að Ólafur Davíð hafi verið ráðinn sem ráðgjafi í tíma- bundið hlutastarf til þess að sinna viðhaldi og rekstri rafbílahleðslunets Orku náttúrunnar. ON hefur alls keypt 29 hleðslu- stöðvar af Hlöðu. Í fyrra pantaði ON sex hraðhleðslustöðvar og 22 hleðslu- stöðvar af fyrirtækinu. Í febrúar síð- astliðnum pantaði ON eina hleðslu- stöð af Hlöðu. Líkt og Fréttablaðið sagði frá hafn- aði Ólafur Davíð því að hafa beitt sér fyrir fyrirtækið í störfum sínum fyrir ON. Sama kemur fram í bréfinu. „Á þeim tíma sem hann hefur starf- að fyrir ON sem ráðgjafi hafa önnur viðskipti við fyrirtækið ekki átt sér stað,“ segir í bréfi ON. – ab ON átti ekki í viðskiptum við Hlöðu á meðan eigandinn starfaði hjá félaginu ON segir tæknilegt viðhald á hleðslustöðvum krefjast mikillar sérþekkingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. FJÖLMIÐL AR „Það eru margar áskoranir í rekstri fjölmiðla í dag og það verður krefjandi en ekki síður spennandi að takast á við þær sem framkvæmdastjóri félags- ins,“ segir Jóhanna Helga Viðars- dóttir, nýr framkvæmdastjóri Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins. Jóha n na t ek u r v ið f r a m- kvæmdastjórastarf inu af Ingi- björgu Stefaníu Pálmadóttur. Í gær var einnig kynnt að  Gústaf Bjarnason yrði auglýsingastjóri félagsins og Kristín Björg Árna- dóttir fjármálastjóri. Fram kemur í tilkynningu frá stjórn Torgs að jafnframt hafi Ingibjörg Stefanía tekið við sem stjórnarformaður félagsins og að með henni í stórn sitji Helgi Magn- ússon fjárfestir. Nýlega  var sagt frá kaupum Helga á helmingshlut í Torgi sem gefur út Fréttablaðið, Markaðinn og tímaritið Glamour. Stafrænir miðlar í eigu Torgs eru meðal annars frettabladid.is, og glamour.is. Hjá félaginu starfa um eitt hundrað manns. Jóhanna Helga hefur starfað hjá Torgi og áður 365 miðlum frá árinu 2016. Á árunum 2014-16 veitti hún forstöðu verkefnastofu hjá Reikni- stofu bankanna. Áður var hún hjá Símanum eða frá árinu 2004 í hinum ýmsu störfum, en lengst af sem verkefnastjóri. Jóhanna lauk MBA-gráðu við Háskóla Íslands vorið 2017 og diploma í verkefna- stjórnun og leiðtogahæfni frá Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2010. Kristín Björg Árnadóttir, nýr fjár- málastjóri Torgs, hefur undanfarin ár starfað við ýmis fjármálatengd verkefni, nú síðast hjá Skaginn 3X á Akranesi. Gústaf Bjarnason, nýr auglýsingastjóri Torgs, hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2015 sem verkefnastjóri á auglýsinga- deild Fréttablaðsins. Á árunum 2006-2012 starfaði hann á söludeild Bylgjunnar.  – gar Nýr framkvæmdastjóri útgáfufélags Fréttablaðsins sér áskoranir Jóhanna Helga Viðarsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Torgs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SJÁVARÚTVEGUR „Makríllinn er kominn til landsins, það er verið að veiða hann víða,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri upp sjáv ar- líf rík is hjá Haf rann sókna stofn un, við Fréttablaðið. Hafrannsóknaskipið Árni Frið- riksson er nú í fjölþjóðlegum leið- angri til að kanna ástand á vist- kerfinu frá Svalbarða suður fyrir lögsögu Íslands. Meðal þess sem verið er að kanna er makrílstofninn. Samkvæmt tölum Hagstofunnar féll aflamagn og verðmæti makríls í fyrra. Makríllinn tók fyrst stökk árið 2008 þegar hann fór í 112 þús- und tonn úr 36 þúsund tonnum árið áður. Hæst fór hann svo í 170 þús- und tonn árið 2014 með verðmæti upp á 15,2 milljarða króna. Veiðin í fyrra nam 135 þúsund tonnum og 7,5 milljörðum króna í verðmæti. Í ár er leyfilegur heildar- afli á makríl 140 þúsund tonn. „Þetta er eins og við mátti búast, uppsjávarskipin fóru fyrr af stað í ár en í fyrra. Þau byrjuðu við Vest- mannaeyjar, svo eru skip að byrja fyrir austan,“ segir Þorsteinn. „Makr- íllinn kom inn í Kef lavíkina fyrir helgina, sem er árvisst. Síðan var veiði um helgina vestan við miðlínuna þar sem Grænlendingarnir eru að veiða. Þannig að þetta er allt eftir bókinni.“ Skipstjórar sem Fréttablaðið ræddi við í ágúst í fyrra sögðu veið- ina þá hafa gengið erfiðlega. Var veiðin þá sú minnsta í mörg ár. Þorsteinn segir erfitt að bera sumarið í ár saman við það í fyrra. „Þeir fóru svo seint út í fyrra. Það var þó heldur minna í lögsögunni, en það er ekki hægt að bera það beint saman því veiðitímabilinu er ekki lokið.“ Árni Friðriksson er búinn að mæla magn makríls í hafinu út af Norður- og Austurlandi, en á eftir að mæla í hafinu fyrir sunnan og vestan land. „Það er líklegasta svæðið,“ segir Þorsteinn. „Það var lítið fyrir norðan, en þar er alltaf lítið. Þar er kaldari sjór og makríllinn gengur ekki inn í hann fyrr en í haust þegar hann gengur til baka.“ Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti á Neskaupstað, var að undirbúa skipið fyrir makrílveiðar þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Það er búin að vera ágætis veiði, hún hefur verið upp á við síðustu daga,“ segir Tómas. Veiðin sé þó ekki endilega meiri en í fyrra. „Þetta er alla vega komið af stað núna.“ Þorsteinn segir menn spennta að sjá hvernig staðan verði í ár í ljósi veiðinnar í fyrra. „Það er ekkert sjálfgef ið að makríllinn komi aftur í sama mæli árlega og hann hefur gert á undan- förnum árum.“ arib@frettabladid.is Spenntir að sjá hvort makríll veiðist aftur hér í sama mæli Möguleiki er á að makríll sé aftur á uppleið við strendur Íslands eftir að minni veiði var í fyrra en árin þar á undan. Sviðsstjóri hjá Haf rann sókna stofn un segir menn spennta enda sé makríllinn ekki sjálfgefinn. Makrílstofninn er meðal þess sem verið er að rannsaka í fjölþjóðlegum leiðangri sem nú stendur yfir. Skip frá Vestmannaeyjum eru farin á makrílveiðar, skip á Austurlandi eru á leið út. MYND/JÓN JÓNSSON Það er ekkert sjálfgefið að makr­ íllinn komi aftur í sama mæli árlega og hann hefur gert á undanförnum árum. Þorsteinn Sigurðs­ son, sviðsstjóri upp sjáv ar líf rík is hjá Haf rann­ sókna stofn un LÖGREGLUMÁL Auglýst er eftir pólskum manni, Mateusz Tynski, sem búsettur var hér á Íslandi. Sam- kvæmt auglýsingum samtakanna ITAKA, sem leita að týndu fólki, sást hann síðast í Sandgerði 28. febrúar. „Ég skutlaði honum í f lug og hef ekkert séð hann meira. Hann var á leiðinni til Póllands,“ segir íslensk- ur nágranni Mateusz í Sandgerði við Fréttablaðið. „Hann var búinn að búa hérna í nokkur ár. Þetta er rólyndisdrengur og þægilegur náungi.“ Sævar segist ekki hafa orðið var við neina óreglu á Mateusz en að hann sé frekar mikill einfari. Lögreglan á Suðurnesjum hafði ekki upplýsingar um hvarf Mateusz og ekki náðist í sendiráð Póllands fyrir vinnslu þessarar fréttar. Mateusz er 29 ára gamall, 177 sentimetrar á hæð og með brún augu. – khg Auglýst eftir pólskum manni Mateusz Tynski. MYND/AUGLÝSING ITAKA 1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 7 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 F -F 7 7 C 2 3 6 F -F 6 4 0 2 3 6 F -F 5 0 4 2 3 6 F -F 3 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 6 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.