Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 10

Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hvað sem öllum bolla- leggingum líður hljóta allir að sjá að leigubíla- þjónusta verður að endingu frjáls á Íslandi. En einnig, og það skiptir mestu: Að neytendur njóti auk- innar samkeppni í formi vöruúrvals og lægra vöruverðs. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Í kjölfar undirritunar nýs tollasamnings milli Íslands og Evrópusambandsins árið 2015 var fyrirséð að svokall-aðir tollkvótar myndu stækka umtalsvert. Með því var stigið skref í að auka tollfrjálsan innflutning á tilteknum landbúnaðarvörum. Tollkvótar eru í eðli sínu ávísun á takmörkuð verðmæti og hefur eftirspurn eftir þeim aukist á síðastliðnum árum. Gildandi regluverk við þá úthlutun er með þeim hætti að tollkvótarnir eru boðnir út og þeim úthlutað til hæst- bjóðenda. Þessi gjaldtaka hefur skapað ríkinu nokkrar tekjur en á sama tíma hefur fyrirkomulagið leitt til hærra vöruverðs fyrir neytendur, þvert á tilgang þess sem að baki samningsins liggur. Ég tel þetta fyrirkomulag við úthlutun tollkvóta óeðli- legt og ósanngjarnt. Því skipaði ég í júní í fyrra starfshóp sem hafði það hlutverk að endurskoða þetta fyrirkomulag og finna leiðir til þess að koma ávinningnum sem skapast með þessum takmörkuðu gæðum í meiri mæli til neyt- enda í formi lægra vöruverðs. Hópurinn skilaði skýrslu í upphafi þessa árs en í honum áttu sæti fulltrúar neytenda, bænda, verslunar og stjórnvalda. Nú hefur frumvarp verið birt á samráðsgátt stjórnvalda sem byggir á tillögum hópsins. Þar er lagt til að toll- kvótum verði úthlutað með því að styðjast við svokallað hollenskt útboð (e. Dutch auction). Í því felst að lægsta samþykkta tilboð útboðs ákvarði verð allra samþykktra tilboða. Jafnframt er lagt til að umsýsla og úthlutun toll- kvóta verði nútímavædd og fari fram á rafrænu vefsvæði og að allir tollkvótar verði boðnir út á sama tíma. Einnig má nefna þá breytingu að heimildir fyrir innflutning á svokölluðum opnum tollkvótum verði afnumdar í núverandi mynd og þar með verði ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara lögð niður. Ég bind vonir við að framangreindar breytingar leiði til þess að kostnaður vegna útboða tollkvóta lækki talsvert. En einnig, og það skiptir mestu: Að neytendur njóti auk- innar samkeppni í formi vöruúrvals og lægra vöruverðs. Þá verði allt regluverk um úthlutun tollkvóta sanngjarn- ara og einfaldara til hagsbóta fyrir alla hlutaðeigandi. Til hagsbóta fyrir neytendur Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherraSlakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á eð Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i VIP-eftirlit á Solstice Það skapaðist mikið drama í kringum frétt Hringbrautar af boðsmiðum borgarfulltrúa á Secret Solstice tónlistarhátíðina. Mun Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri hafa fengið þrjá VIP-miða á hátíðina, var tilgangurinn að vera með eftirlit. Í fréttinni er sagt að verðmæti miðanna sé 450 þúsund krónur og bent á að borgarstjóri hefur ekki skráð þá sem gjöf. Verðmæti miðanna er þó nokkuð á reiki. Það hefði vissulega kostað almennan borgara 450 þúsund kall að fá VIP-miða á Secret Solstice, en inn í því er falinn matur og drykkur, sem borgarstjóri mun ekki hafa fengið sér á hátíðinni. „Fréttaflutningur“ fyrir siðanefnd Ekki eru allir par sáttir við reiknikúnstir Hringbrautar. Í til- kynningu frá Secret Solstice segir að borgarstjóri hafi verið með sérstakan VIP-miða sem væri ekki til almennrar sölu. Því væri fjarstæðukennt að segja að hann hafi fengið gjöf upp á 450 þúsund krónur. Rannveig Ernudóttir varaborgarfulltrúi sem sagði sig úr Pírötum vegna innanflokks- drama, gekk skrefinu lengra í málsvörn fyrir borgarstjóra og segir á Fésbók að réttast væri að taka „fréttaflutninginn“ fyrir af siðanefnd blaðamanna. Vildi hún þó ekki benda á neinar sérstakar staðreyndavillur í fréttinni. arib@frettabladid.is Leigubílamarkaður á Íslandi er einokunar-bransi. Forsenda þess að fá að keyra leigubíl er að hafa útgefið leyfi frá Samgöngustofu og vera tengdur leigubílastöð sem má aka leigubíl. Gjaldskrár eru samræmdar og ákveðnar af nefnd, gjaldmælar þurfa að vera löggiltir og bíl- stjórar þurfa að uppfylla ýmis skilyrði, eins og að vera eigendur eða fyrstu umráðamenn bílsins sem er ekið. Þeir mega ekki hafa verið dæmdir í fangelsi. Þá er að finna í íslenskum lögum hámarksfjölda útgefinna leyfa til aksturs leigubíla. Fyrir tilstilli EES-samningsins stendur til að breyta þessu í átt til frelsis og afnema fjöldatakmarkanir á slíkum leyfum, sem er ein forsenda þess að farveitur sem við þekkjum úr erlendum borgum á borð við Uber og Lyft geti hafið hér starfsemi. En það þarf meira til. Þeir sem ferðast hafa með farveitunum þekkja að verðið sem gefið er upp í snjallsímaforritinu er áætlað verð, sem getur tekið smávægilegum breyt- ingum eftir stöðu framboðs og eftirspurnar, vega- lengd, tíma og umferð á götum. Þetta er allt mælt með staðsetningarbúnaði forritsins og fellur þar af leiðandi ekki undir þrönga, íslenska skilgreiningu löggilts gjaldmælis né undanþágu ef samið er um fyrir fram ákveðið heildarverð. Með öðrum orðum nota farveiturnar nútíma- tækni til að ákvarða verð, neytendum og bílstjórum til hægðarauka. Af óskiljanlegum ástæðum er slíkt bannað á Íslandi og ekki að sjá á nýju frumvarpi samgönguráðherra að standi til að gera breytingu á. Önnur skilyrði sem atvinnubílstjórum eru sett eru undarleg. Af hverju má maður sem hefur á lífs- leiðinni farið út af sporinu og tekið út sína refsingu ekki starfa sem leigubílstjóri? Af hverju þarf bíl- stjóri að eiga bifreið sína ef hann vill bara keyra á mánudögum? Af hverju má eingöngu nota leigubif- reið til leigubílaaksturs? Að minnsta kosti er ekki verið að hugsa um neyt- andann. Með farveitum má velja sér fararskjóta; rafmagnsbíl eða -hjól, stærri bíl fyrir farangur eða glæsibifreið ef á að gera sér dagamun. Kostnaður er nokkurn veginn ljós fyrir fram og greiðsla inn- heimt í samræmi við gæði bíls, lengd ferðar og tíma dags. Ókunnugir geta deilt leigubíl kjósi þeir svo og skipt kostnaði í gegnum símann. Farþegar og bíl- stjórar gefa svo hvrr öðrum einkunn, svo samskipti bílstjórans og kúnnans eru í f lestum tilfellum til fyrirmyndar. Í borg eins og Reykjavík er kominn tími á frjálsa leigubíla. Fjölbreyttari samgöngur hljóta að vera takmarkið í borg þar sem samgönguvandinn er öllum ljós. Meira að segja væri hægt að innleiða græna hvata í starfsemina; rafmagnsvæða leigubíla- flotann. Hvað sem öllum bollaleggingum líður hljóta allir að sjá að leigubílaþjónusta verður að endingu frjáls á Íslandi. Þetta er ekki spurning um hvort heldur hvenær menn sjá ljósið. Úti að aka 1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 7 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 F -F 2 8 C 2 3 6 F -F 1 5 0 2 3 6 F -F 0 1 4 2 3 6 F -E E D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 6 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.