Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 14

Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 14
MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Sjóðurinn MF1, sem er í eigu lífeyrissjóða og annarra fag-fjárfesta, hefur eignast ríf lega 77 prósenta hlut í Opnum kerfum í kjölfar 430 milljóna króna hluta- fjáraukningar upplýsingatækni- fyrirtækisins. Samhliða hefur eignarhlutur Frosta Bergssonar, sem var einn af stofnendum Opinna kerfa árið 1984, farið úr 76 prósentum í 17 pró- sent. Frosti hefur látið af stjórnar- formennsku í félaginu en hann mun áfram sitja í stjórn ásamt þeim Gísla Val Guðjónssyni, framkvæmda- stjóra MF1 og nýjum stjórnarfor- manni Opinna kerfa, og Sigríði Olgeirsdóttur, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra rekstrar- og upplýs- ingatæknisviðs Íslandsbanka. Starfsfólk Opinna kerfa mun jafnframt fara með samanlagt tæp- lega sex prósenta hlut í upplýsinga- tæknifyrirtækinu. Frosti segir ánægjulegt fyrir félag- ið að fá inn nýja og öfluga fjárfesta með mikla reynslu úr atvinnulífinu. Í því felist ákveðin viðurkenning á góðri starfsemi Opinna kerfa og framtíðarmöguleikum þess. „Það hefur verið ánægjulegt og gefandi að koma að uppbyggingu félagsins sem hefur ávallt spilað stórt hlutverk á íslenskum upp- lýsingatæknimarkaði, markaði sem er sífellt að þróast og breytast. Undanfarin ár hefur verið fjárfest í nýjum sóknartækifærum og ég er bjartsýnn á að þær fjárfestingar muni skila sér á næstu árum,“ segir Frosti. Gísli Valu r nef nir að nýir hluthafar hafi mikla trú á vaxtarmögu- leikum fyrirtækisins. Upp- lýsingatækni hafi aldrei verið jafn mikilvæg fyrirtækjum á s a m k e p p n i s - markaði og nú. „Fyrirhugað er að byggja Nýir eigendur að Opnum kerfum 430 milljónir króna er andvirði nýlegrar hlutafjáraukningar Opinna kerfa. Gísli Valur Guðjónsson, nýr stjórnar- formaður Op- inna kerfa. félagið markvisst upp og efla sam- keppnishæfni þess með aukinni áherslu á ráðgjöf og sérsniðnar upp- lýsingatæknilausnir. Enn fremur liggja mikil sóknar- tækifæri í uppbyggingu hátækni- gagnavers sem verður tekið í notk- un síðar á þessu ári. Gagnaverið mun fylgja Tier III öryggisstaðli sem tryggir 100 prósent þjónustu- öryggi og verður eitt öruggasta og tæknilegasta gagnaver landsins,“ segir Gísli Valur. Ragnheiður Harðar Harðardóttir, sem tók við sem forstjóri Opinna kerfa í mars síðastliðnum, sagðist í viðtali í Markaðinum í liðnum mán- uði sjá mikinn viðsnúning á rekstri félagsins eftir umbreytingarstarf og hagræðingaraðgerðir á síðustu árum. Félagið tapaði 73 milljónum króna árið 2017 og velti sama ár um fjórum milljörðum króna en veltan dróst saman um einn milljarð frá fyrra ári. Ragnheiður sagði afkom- una á síðasta ári einnig hafa verið undir væntingum. „Það að ráðast í umbreytingu á rekstri fyrirtækja er krefjandi og síðustu tvö ár bera þess merki. Sú vinna gengur vel og við sjáum nú mikinn við- snúning á rekstrinum,“ nefndi hún. –kij Malasíska fyrirtækja-samsteypan Ber-jaya Land Berhad, sem var stofnuð af milljarðamæringn- um Vincent Tan, eiganda breska knattspyrnufélagsins Cardiff City, mun greiða 53,6 milljónir dala, jafn- virði um 6,7 milljarða króna, fyrir 75 prósent hlutafjár í Icelandair Hotels og þeim fasteignum sem til- heyra hótelrekstrinum miðað við núverandi stöðu veltufjármuna og vaxtaberandi skulda hótelkeðj- unnar. Kaup malasíska risans eru jafn- framt háð því að skuldir Icelandair Hotels verði endurfjármagnaðar með nýjum lánum upp á 64 til 72 milljónir dala sem jafngildir átta til níu milljörðum króna. Frá þessu er greint í tilkynningu sem Berjaya sendi malasísku kaup- höllinni í fyrrakvöld. Í tilkynningu malasíska félagsins er jafnframt tekið fram að kaupin í Icelandair Hotels geri félaginu kleift að hefja innreið á íslenskan markað fyrir lúxushótel sem gert sé ráð fyrir að vaxi enn frekar þegar til fram- tíðar sé litið. Haft er eftir Vincent Tan, sem geg nir stjór nar for mennsk u í Berjaya-samsteypunni, í malas- ískum fjölmiðlum að hann sé afar ánægður með fjárfestinguna sem feli í sér „lágan aðgangskostnað“. Bendir hann á að kaupverðið sé um 75,1 þúsund dalir, jafnvirði um 9,4 milljóna króna, fyrir hvert hótelher- bergi. Fram kom í tilkynningu sem Icel- andair Group sendi kauphöllinni hér á landi á laugardag að heildar- virði hótelkeðjunnar og tengdra fasteigna – hlutafé og vaxtaberandi skuldir – væri 136 milljónir dala, um 17,1 milljarður króna, í viðskipt- unum. Í tilkynningu Berjaya er hins vegar upplýst um að hlutafé Ice- landair Hotels og fasteignanna sé metið á 71,5 milljónir dala í við- skiptunum miðað við stöðu vaxta- berandi skulda keðjunnar, sem séu 64 milljónir dala, og veltufjármuna hennar. Áætlað kaupverð á 75 pró- sentum hlutafjárins sé þannig liðlega 53,6 milljónir dala en end- anlegt verð mun ráðast af fjárhags- stöðu hótelkeðjunnar þegar kaupin ganga í gegn í lok ársins. Kaupverðið á hótelkeðjunni, sé miðað við heildarvirði hennar, 136 milljónir dala, er nálægt neðri mörkum þeirra óskuldbindandi til- boða sem fjárfestar sem fóru áfram í aðra umferð söluferlisins gerðu í keðjuna. Þannig upplýsti Markaðurinn um það snemma á þessu ári að til- boð umræddra fjárfesta, sem voru meðal annars Keahótel og Reginn, sem skiluðu inn sameiginlegu til- boði, og sjóður í stýringu Black- stone, eins stærsta fjárfestingar- sjóðs heims, hafi numið á bilinu 140 til 165 milljónum dala. Auk skilyrða um endurf jár- mögnun á skuldum Icelandair Hot- els, eins og áður var lýst, eru kaup Berjaya meðal annars háð sam- þykki dómsmálaráðuneytisins á grundvelli laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, eftir því sem fram kemur í tilkynningu malasíska félagsins. Ráðgjafafyrirtækið PwC á Íslandi hefur þegar gert áreiðan- leikakönnun á hótelkeðjunni fyrir Berjaya en Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðis- f lokksins, var ráðgjafi malasísku samsteypunnar í viðskiptunum. Tekjur Icelandair Hotels, sem rekur alls þrettán hótel auk sumar- hótelkeðjunnar Hótel Eddu, námu 97 milljónum dala, jafnvirði 12,2 milljarða króna, í fyrra og var EBITDA hótelrekstrarins – afkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – á sama tíma jákvæð um sjö milljónir dala. Samanlögð EBITDA hins selda – hótelkeðjunnar og fast- eignanna – var um tólf milljónir dala á árinu. kristinningi@frettabladid.is Berjaya greiðir um sjö milljarða fyrir hlutinn Kaupverð Berjaya á 75 prósentum hlutafjár í Icelandair Hotels og tengdum fast- eignum nam tæpum sjö milljörðum. Endurfjármagnar skuldir keðjunnar með allt að níu milljarða láni. Telur að markaður fyrir lúxushótel muni stækka. Icelandair Hotels rekur meðal annars hótelið Reykjavík Natura við Nauthólsveg. Tekjur hótelkeðjunnar námu 97 milljónum dala í fyrra og þá var samanlögð EBITDA félagsins um tólf milljónir dala. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Heildarvirði 136 Vaxtaberandi skuldir 64 Veltufjármunir -0,5 Kaupverð 100% hlutafjár 71,5 Kaupverð 75% hlutafjár 53,6 ✿ Kaupverð Berjaya í milljónum dala HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umöllun um málefni líðandi stundar. Fylgstu með á frettabladid.is Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Lögmannsstofan Fjeldsted & Blön- dal slf. vinnur nú að undirbúningi þess að hefja starfsemi í Bretlandi og hefur nýlega gengið frá stofnun félagsins Fjeldco ltd. þar í landi. Sá sem mun stýra skrifstofu félagsins í London, samkvæmt heimildum Markaðarins, verður hæstaréttar- lögmaðurinn Gunnar Þór Þórarins- son, fyrrverandi meðeigandi hjá lögmannsstofunni LOGOS. Gunnar, sem er stjórnarformaður Gamla Byrs og starfaði áður á skrif- stofu LOGOS í London til margra ára, hefur meðal annars unnið mikið fyrir þá alþjóðlegu fjárfest- ingarsjóði sem voru stærstu kröfu- hafar föllnu bankanna. Hagnaður lögmannsstofunnar, sem gengur iðulega undir nafninu Fjeldco, nam rúmlega 114 milljón- um króna á árinu 2018 og minnk- aði um fimm milljónir á milli ára. Eigendum stofunnar fækkaði hins vegar á árinu um einn – úr fjórum í þrjá – og nam hagnaður á hvern eig- anda vegna afkomu síðasta árs því um 38 milljónum króna. Hluthafar félagsins eru Halldór Karl Halldórs- son, sem er jafnframt framkvæmda- stjóri Fjeldsted & Blöndal, Hafliði K. Lárusson og Þórir Júlíusson. Rekstrartekjur stofunnar voru samtals 369 milljónir í fyrra og héldust nánast óbreyttar á milli ára. Laun og annar starfsmannakostn- aður jókst lítillega á milli ára og var samtals 135 milljónir króna. Stöðu- gildi á lögmannsstofunni voru að meðaltali ellefu talsins á liðnu ári. Eignir Fjeldco námu 267 milljón- um króna í árslok 2018 og var eigið fé félagsins um 137 milljónir. – hae  Fjeldco blæs til sóknar í London Gunnar Þór Þórarinsson lögmaður. 1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 1 7 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 0 -0 1 5 C 2 3 7 0 -0 0 2 0 2 3 6 F -F E E 4 2 3 6 F -F D A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 6 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.