Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 18

Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 18
Á árunum 2014 til 2018 fækkaði bankastarfsmönn­ um um 13 prósent. Á tímabilinu 2014 til 2018 hefur mesti útlána­ vöxturinn verið hjá Lands­ bankanum. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is ✿ Arðsemi eiginfjár hjá íslensku bönkunum 0% 2014 2015 2016 2017 2018 5% 10% 15% 20% 25% 30% n Landsbankinn n Íslandsbanki n Arion banki 7,9% 6,5 6,5 ✿ Hlutfall markaðsvirðis af eigin fé hjá völdum evrópskum bönkum 0,3 0,6 0,9 1,2 1,5% 0,0 Ar io n ba nk i D an sk e Ba nk Sw ed ba nk Sv en sk a ha nd el sb an ke n N or de a D nb N or b an k D eu ts ch e Ba nk Co m m er zb an k Ba rc la ys U bs G ro up Cr ed it Su is se G ro up 0, 73 0, 62 1, 29 1, 37 0, 92 1, 24 0, 24 0, 29 0, 51 0, 85 0, 70 heimild: bloomberg Stjórnvöld þurfa að marka skýra stefnu til að bæta rekstrarumhverfi bank-anna áður en ráðist verður í sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka og Lands- bankanum. Hvergi í Evrópu finnst hærri skattbyrði og eiginfjárkröfur eru strangar. Bankarnir búa auk þess við íþyngjandi regluverk sem gerir það meðal annars að verkum að þeir hafa takmarkaða möguleika á að draga úr kostnaði með sam- starfi sín á milli. Allt þetta kemur niður á arðsemi bankanna og þar með verðinu sem ríkið getur búist við að fá fyrir eignarhlutinn. Eigendastefna ríkissjóðs sem var kynnt um mitt ár 2017 kvað á um að seldir yrðu eignarhlutir ríkisins í Íslandsbanka og Arion banka. Hins veg ar er stefnt að því að ríkið eigi veru leg an hlut í Landsbank an um, á bilinu 34 til 40 prósent. Gengið var frá sölu á hlut ríkisins í Arion banka á síðasta ári og á næstu vikum skilar Bankasýsla ríkisins ýtarlegri skýrslu um stöðu á bankamarkaði og tillögu um söluferli bankanna. Nýlega var haft eftir Lárusi L. Blön- dal, stjórnarformanni Bankasýsl- unnar, í Morgunblaðinu að unnt væri að hefja söluferlið á næsta ári. „Ég er ekki viss um að bankarnir séu vænlegir til sölu ef við horfum á rekstrarumhverfið, hvernig þeir eru skattlagðir og hversu þröngar skorð- ur þeim eru settar um samstarf til að hagræða. Efnahagsreikningar eru traustir en geta þeirra til að skila mikilli arðsemi í framtíðinni er ekki sérstaklega góð,“ segir Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Sam- taka fjármálafyrirtækja, í samtali við Markaðinn. Hér á landi eru þrír skattar lagðir sérstaklega á fjármálafyrirtæki; bankaskattur sem er lagður á skuld- ir fjármálafyrirtækja, fjársýslu- skattur og sérstakur fjársýsluskatt- Vængstýfður bankarekstur settur á sölu Framtíðarsýn stjórn- valda á umgjörð fjár- málakerfisins skiptir meginmáli þegar kemur að sölu á eignarhlut rík- issjóðs í Íslandsbanka og Landsbankanum. Arðsemisgetan dregin niður af miklu reglu- verki og þungri skatt- byrði. Fyrirvaralausar álögur fæla erlenda fjárfesta frá og banka- skatturinn rýrir eignar- hlut ríkisins. ur. Yngvi Örn bendir á að hvergi í Evrópu sé skattlagning á fjármála- fyrirtæki hærri en á Íslandi. „Bankaskatturinn er þungbær- astur vegna þess að hann hefur bein áhrif á fjármögnunarkostnað og skekkir samkeppnisumhverfið á lánamarkaði verulega. Þetta hefur annars vegar haft þau áhrif að líf- eyrissjóðir, sem eru undanþegnir skattinum, hafa náð að stórauka hlutdeild sína í húsnæðislánum og hins vegar þau að norrænir bankar geta laðað íslensk stórfyrirtæki í viðskipti til sín. Norrænu bank- arnir eru að keppa með miklu lægri skattbyrði og miklu lægri eiginfjár- kröfur,“ segir Yngvi Örn. Ríkið sé í rauninni að skjóta sig í fótinn með því að draga úr samkeppnishæfni banka sem ætlað er að selja. „Það hefur auk þess fælandi áhrif á erlenda fjárfesta ef ríkið, stjórn- völd og Seðlabankinn geta fyrir- varalaust og án lagagrundvallar lagt ný gjöld á fjármálafyrirtæki. Síðasta dæmið var í júlí í fyrra en þá tilkynnti Seðlabankinn þá ákvörðun sína að helmingurinn af bindiskyldunni væri á núll prósents vöxtum til að standa undir kostnaði við gjaldeyrisforðann.“ Arðsemi íslensku bankanna var töluverð þegar hreinsun efnahags- reikninga þeirra stóð yfir á árunum 2012 til 2015. Það tímabil er að baki og er hagræðing í rekstri eina leiðin til þess að auka arðsemina að sögn Yngva. „Stærstu kostnaðarliðir banka eru laun, skattar og kostnaður við upplýsingatækni. Bankar hafa fækkað starfsfólki og útibúum á undanförnum árum. Á upplýsinga- tæknisviðinu er erfitt að draga úr kostnaði nema með auknu sam- starfi við kaup og þróun búnaðar. Skilyrði sem Samkeppniseftirlit hefur sett slíku samstarfi draga mjög úr hagræði eða koma í veg fyir það,“ segir Yngvi Örn. „Bankarnir búa yfir öllum þeim innviðum sem nútímabankarekstur krefst en kostnaður hvers banka dreifist á um hundrað þúsund viðskiptavini á meðan kostnaður Danske Bank dreifist á milljónir viðskiptavina. Þarna eru augljós tækifæri til samstarfs sem myndu leiða til hagkvæmni en afstaða Sam- keppniseftirlits til samstarfs á upp- lýsingatæknisviði torveldar að hægt sé að nýta þau.“ Hvernig telurðu að standa þurfi að sölunni á eignarhlut ríkisins í bönkunum? „Ég hef sagt að áður en bank- arnir verða seldir verður að setja ákvæði í lög um stóra eignarhluti og takmarkanir á atkvæðisrétti þeirra sem eiga stóra eignarhluti í bönkunum. Það á að vera fyrsta skrefið í ljósi reynslunnar. Að öðru leyti þarf salan að fara fram fyrir opnum tjöldum. Ein leið til þess væri að skrá bankana í Kauphöll- ina og byrja á því að selja lítinn hlut Erfitt að selja Íslandsbanka í heilu lagi Bankasýsla ríkisins telur ólíklegt að unnt verði að selja eignarhlut ríkisins í Landsbankanum eða Íslandsbanka til erlends banka. Lítið hefur verið um yfirtökur á bönkum á milli Evrópulanda eftir fjármálahrunið en hins vegar er möguleiki á því að stór norrænn banki sæi hag sinn í því að gera íslenskan banka að útibúi. Bankasýslan skilaði minnis­ blaði til starfshópsins sem skrifaði hvítbókina þar sem fram kom að sú skoðun hefði verið staðfest að mestu leyti í reglu­ legum samskiptum við alþjóð­ lega fjárfestingarbanka. Lárus L. Blöndal, stjórnarfor­ maður Bankasýslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í mánuðinum að hann væri svart­ sýnn á að það tækist að selja Íslandsbanka í heilu lagi. „Eins og staðan er í dag er þó mjög ólíklegt að það takist. Hversu stór hluti bankanna, ef einhver, verður seldur fer eftir hinum pólitíska vilja,“ sagði Lárus. 1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 1 7 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 0 -1 0 2 C 2 3 7 0 -0 E F 0 2 3 7 0 -0 D B 4 2 3 7 0 -0 C 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 6 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.