Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 23

Fréttablaðið - 17.07.2019, Side 23
til þess að fá tilfinningu fyrir því hvað minni fjárfestar eru tilbúnir að borga fyrir hlutabréfin.“ Væntingar spila inn í verðið Eftir sölu Kaupþings á tuttugu pró- senta hlut í Arion banka í júlí varð bankinn sá fyrsti af íslensku við- skiptabönkunum þremur til að vera alfarið kominn úr höndum slitabús eða ríkissjóðs. Arion var skráður á hlutabréfamarkað sumarið 2018 og var útboðsgengið sett 75 krónur á hlut eða sem samsvaraði genginu 0,67 sinnum bókfærðu eigin fé bankans. Hlutfallið nemur nú 0,73. Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið var kynnt í lok síð- asta árs en lítið hefur frést af þeim tillögum sem þar voru settar fram. Þar kom fram að verð á hlutabréf- um í Arion banka gæfi vísbendingu um markaðsvirði hinna bankanna tveggja. Eigið fé Landsbankans nam 246 milljörðum króna og eigið fé Íslandsbanka 174 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs. Ef markaðsvirði Arion banka sem hlutfall af bókfærðu eigin fé væri heimfært á hina bankana tvo næmi virði þeirra á markaði um 307 millj- örðum króna. Í hvítbókinni kom einnig fram að Bankasýsla ríkisins teldi ólíklegt að unnt yrði að selja eignarhlut ríkis- ins í Landsbankanum eða Íslands- banka til erlends banka. Lítið hefði verið um yfirtökur á bönkum á milli Evrópulanda eftir fjármála- hrunið en hins vegar væri mögu- leiki á því að stór norrænn banki sæi hag sinn í því að gera íslenskan banka að útibúi. Sveinn Þórarinsson, sérfræðing- ur í hagfræðideild Landsbankans, segir ljóst að hægt sé að grípa til ýmissa ráða til að gera bankana söluvæna. „Það er ekkert launungarmál að skattlagning í bankakerfinu er hærri en annars staðar. Þetta rífur niður arðsemina og þar með verðið á bönkunum,“ segir Sveinn. „Síðan er gríðarlega mikið reglu- verk á fjármálamarkaði sem fjár- festar horfa til þegar þeir verð- meta banka. Það skiptir því miklu máli hvaða sýn stjórnvöld hafa á framtíð regluverksins og lagaum- gjarðarinnar.“ Markaðurinn greindi frá því í byrjun júlí að lausafjárstaða stóru viðskiptabankanna þriggja í krónum hefði versnað á síðustu mánuðum. Hertar kröfur drægju úr getu bankanna til þess að auka útlán á sama tíma og hagkerfið þarf á auknu lánsfé að halda. Í skýrslu hagfræðideildar Lands- bankans kemur fram að íslensku lausafjárreglurnar séu byggðar á evrópskum reglum sem séu minni bönkum þungbærari en öðrum. „Reglur um lausafé eru nú að okkar mati orðnar meira haml- andi fyrir lánavöxt og arðgreiðslur en eiginfjárkröfur,“ segir í skýrslu hagfræðideildarinnar. Jafnframt séu reglurnar meira íþyngjandi fyrir íslenska banka í ljósi þess að hlutfallslega sé minna um lausafjáreignir hér á landi í samanburði við önnur Evrópuríki. Ríkisskuldabréf séu helstu lausa- fjáreignir íslenskra banka á meðan til að mynda fyrirtækjaskuldabréf með háa lánshæfiseinkunn séu talin viðunandi lausafjáreignir í tilfelli evrópskra banka. Vegferðin tekur mörg ár Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að lífskjör almennings felist ekki í því að binda gríðarmikla fjár- muni í fjármálastarfsemi. „Í mínum huga er þetta tvíþætt. Annars vegar á ríkið ekki að vera í áhætturekstri á fjármálamarkaði með þeim hætti sem það gerir í dag. Hins vegar þurfum við að taka ákvörðum um það hvort við teljum skynsamlegt að binda gríðarmikla fjármuni í tveimur fyrirtækjum sem annars væri hægt að nýta í aðra samfélagslega innviði til þess að bæta lífskjör og samkeppnishæfni atvinnulífsins. Ég tel að lífskjör og lífshamingja landsmanna felist ekki í því að binda nokkur hundruð milljarða í fjármálastarfsemi,“ segir Óli Björn. Sérðu fyrir þér pólitískar hindr- anir þegar kemur að sölu á bönk- unum? „Það liggur fyrir að stefnt er að því að hefja sölu á hluta af bönkun- um. Menn hafa horft til þess að taka fyrstu skrefin með Íslandsbanka og sá undirbúningur er þegar hafinn. Ég vonast til þess að fyrsta skrefið verði tekið á næsta ári en þessi veg- ferð mun ekki taka eitt eða tvö ár. Hún mun taka mörg ár,“ segir Óli Björn. „Það skiptir líka máli að það sé skýr stefna hvað varðar aðferða- fræði og tímaramma. Erum við að tala um að losa að mestu eða öllu leyti um eignarhald ríkisins á fjár- málafyrirtækjum á næstu 10 árum? Ég held að það sé skynsamlegt að setja slíkan tímaramma.“ Þá segir Óli Björn að deildar meiningar séu um það hvaða hlut- verk ríkið eigi að leika á fjármála- markaði en hann telur að ágrein- ingurinn á þinginu muni fyrst og fremst snúast um það hvort ríkið haldi eftir verulegum eignarhlut í Landsbankanum. Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra greip til þess að fresta frum- varpi sínu um lækkun bankaskatts- ins um eitt ár vegna fyr ir sjá an leg s sam dráttar í tekj um rík is sjóðs. Óli Björn segir að skatturinn rýri eignar hlut ríkisins í bönkunum. „Það er ljóst að menn þurfa í þessu ferli, þegar menn leggja hér skatta eða álögur á fjármálakerfið sem er umfram það sem gengur og gerist í samkeppnis- löndum, þá gerist tvennt. Annars vegar verða bankar hér ekki jafn samkeppnishæfir og það verða fyrst og fremst stærri fyrirtæki á Íslandi sem hafa burði til þess að leita sér að fyrirgreiðslu erlendis. Eftir standa íslensk heimili og minni fyrirtæki sem þurfa þá að sætta sig við að eiga viðskipti við innlend fjármálafyrir- tæki sem geta ekki boðið jafn hag- stæð kjör. Það er þá ljóst að það er almenningur, og litlu og meðalstóru fyrirtækin sem borga í raun þessa skatta. Og hitt er að þetta rýrir eignarhlut ríkisins þegar til sölu á eignarhlutnum kemur.“ Ertu vongóður um að hægt verði að selja bankana í heilu lagi? „Auðvitað vil ég að ríkið fari alfarið út af fjármálamarkaði en þetta er langhlaup. Það sem er mikilvægt er að hefjast handa með skýra stefnu. Ef það er niðurstaðan að menn telji að ríkið eigi að eiga ráðandi hlut, 30-35 prósenta hlut í öðrum hvorum bankanum, og þá er yfirleitt alltaf horft til Lands- bankans, þá kann að vera að það sé ásættanlegt til skemmri tíma litið. Langtímamarkmiðið er þó að losa um þessa fjármuni, hætta að taka þátt í áhætturekstri og nýta fjármunina með öðrum hætti.“ Brýnt að skoða aðrar leiðir Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er kveðið á um að ríkissjóður dragi úr eignarhaldi á banka- markaði en verði leiðandi fjárfestir í að minnsta kosti einni kerfislega mikilvægri fjármálastofnun. Ekki hefur gætt mikillar mótstöðu við áformin á opinberum vettvangi af hálfu Vinstri grænna en Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður flokksins, segir að nýta þurfi tæki- færið til að skoða hvaða möguleikar standa til boða. „Við eigum fyrst og fremst að huga að því hvernig við tryggjum ríkinu, og þar með almenningi, sem bestan skerf af þeim verðmætum sem þarna liggja. Þá þarf maður að vera tilbúinn að skoða alla mögu- leika. Er best fyrir almenning að fá hlutdeild í arði, að einn bankanna verði rekinn á öðrum forsendum og eigum við að skoða einhvers konar samfélagsbanka? Er bankakerfið of stórt og eigum við þar af leiðandi að skoða sameiningu banka þannig að úr verði tveggja banka kerfi þar sem annar bankinn er í eigu ríkisins?“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna. „Það er ekki markmið í sjálfu sér að losa eða selja bankann, þar skipta hagsmunir almennings öllu. Við erum stundum föst í gamal- dags hugsunarhætti um að annað- hvort eigi ríkið banka eða hann sé seldur fyrir sem mest fé. Punktur. Við þurfum að horfa til þeirra fjöl- mörgu markmiða sem við ætlum að ná með fjármálakerfinu og þar er verðmiði ekki endilega aðal atriðið. Við þurfum að vera óhrædd við að hugsa um þetta eftir algjörlega nýjum leiðum.“ Spurður hvort hann telji að sala eignarhalds ríkisins á bönkunum verði mikið ágreiningsefni innan ríkisstjórnarinnar segir Kolbeinn að honum kæmi mjög á óvart ef f lokkarnir hefðu nákvæmlega sömu áherslur hvað þessi mál varðar. „Þetta eru ólíkir f lokkar með ólíkar áherslur og þá þarf að finna lendingu. Ég tel að ríkið eigi að eiga fjármálastofnun og í stjórnarsátt- málanum er talað um að það sé leiðandi fjárfestir í að minnsta kosti einni fjármálastofnun.“ Við erum stundum föst í gamaldags­ hugsunarhætti um að annaðhvort eigi ríkið að eiga banka eða hann sé seldur fyrir sem mest fé. Kolbeinn Óttars- son Proppé, þing- maður Vinstri grænna Ég er ekki viss um að bankarnir séu vænlegir til sölu ef við horfum á rekstrar­ umhverfið. Yngvi Örn Krist- insson, hagfræð- ingur Samtaka fjármálafyrirtækja Ég tel að lífskjör og lífshamingja almennings felist ekki í því að binda nokkur hundruð milljarða í fjármálastarf­ semi. Óli Björn Kárason, formaður efna- hags- og viðskipta- nefndar Alþingis Hafa litla trú á stjórnvöldum Við gerð hvítbókarinnar var Arion banki fenginn til að skrifa minnis- blað um lærdóminn af söluferli bankans sem lauk með skráningu á markað í júní 2018. Þar kom fram að eitt af því sem forsvars- menn bankans lærðu í viðræðum við erlenda fagfjárfesta væri að þeir „þurfa ekki að eiga Ísland“. Skráningar íslenskra félaga á markað væru ekki af þeirri stærðar gráðu að erlendir fag- fjárfestar teldu sig þurfa að taka þátt. „Íslenskur fjárfestinga- kostur þarf að vera aðlaðandi í gæðum og verði til að höfða til erlendra fjárfesta,“ segir í minnis- blaðinu. Erlendir fjárfestar hafa að sögn bankans mikla trú á íslensku efnahagslífi en minni sann- færingu fyrir því að stjórnvöld og regluumhverfi hérlendis sé eins og best verður á kosið. Skyndi- leg hækkun á kerfisáhættu auka og ákvörðun Seðlabankans um bindiskyldu á erlent fjármagn hafi einnig orkað tvímælis fyrir fjárfesta. Lög um kaupauka komu erlendum fjárfestum á óvart og þeir furðuðu sig á því að bankinn skyldi vera í samkeppni um íbúða lán við lífeyrissjóði sem sættu ekki sömu kröfum um eigið fé, útlánatap og skatt- greiðslur. MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 1 7 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 0 -1 0 2 C 2 3 7 0 -0 E F 0 2 3 7 0 -0 D B 4 2 3 7 0 -0 C 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 6 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.